Baldur - 07.06.1947, Síða 3
BALD U R
3
Sýslufundur Norður-ísafjarðarsýslu
Hvað verður síldarverðið í sumar?
Sjómenn og útgerðarmenn eiga réttlætiskröfu á
að minnsta kosti 50 kr. verði fyrir síldarmálið.
Aðalfundur sýslunefndar Norður-
ísafjarðarsýslu var haldinn á ísa-
firði dagana 29. apríl — 2. maí.
1. Lagður fram reikningur sýslu-
sjóðs fyrir 1946. Tekjuhliðin var kr.
78 056,09. Aðaltekjuliðir sýslusjóðs-
gjöld kr. 60 000,00 og stríðsgróða-
skattur kr. 9584,97. Aðalútgjalda-
liðir: Menntamál kr. 26 540,00,
heilbrigðismál kr. 8916,00, at-
vinnumál kr. 5909,00, samgöngu-
mál kr. 20 200,00.
Eignir voru í árslok kr. 97 382,30,
en skuldir engar. Varasjóður var í
árslok kr. 63 058,16.
Eignir ýmissa sjóða, sem eru
undir eftirliti sýslunefndar, voru
eins og hér segir samkv. reikn-
ingum þeirra, er lagðir voru fyrir
sýslunefnd:
1. Kristsfjársjóður Sléttuhrepps
kr. 2815,79.
2. Lendingarsjóður ögurhrepps
kr. 2430,91.
3. Lendingarsjóður Ytri-Snæ-
fjallastrandar kr 4060,46.
4. Þjóðminjasafn Vestfjarða kr.
2332,96.
5. Styrktarsjóður gamalmenna í
Isafjarðark. og sýslu kr. 465,31.
6. Fræðslusjóður ögurhrepps kr.
10 355,06.
7. Framfarasjóður kr. 2127,16.
8. Minningarsjóður Þuríðar Ól-
afsdóttur kr. 1139,75.
9. Líknarsjóður ögurhrepps kr.
7015,76.
10. Búnaðarsjóður Norður-lsa-
fjarðarsýslu kr. 24 441,27.
11. Farmannasjóður kr. 2468,71.
12. Gjöf Jóns Hermannssonar og
Gríms Jónssonar kr. 3806,99.
13. Styrktarsjóður ekkna og
harna Isfirðinga sem í sjó
drukkna kr. 22 426,64.
Helztu liðir fjárhagsáætlunar
fyrir 1947 voru þessir: Sýslusjóðs-
gjöld kr. 60 000,00 og stríðsgróða-
skattur kr. 13824,28. Tekjuhliðin
kr. 81 328,42. Aðalliðir gjalda voru
þessir: Kostnaður við stjórn sýslu-
málanna kr. 7600,00, menntamál
kr. 29 200,00, heilbrigðismál kr.
11100,00, samgöngumál krónur
20 200,00.
Helztu samþykktir fundarins
voru þessar:
1. Þessir menn voru kosnir i
fræðsluráð:
Séra Þoi’steinn Jóhannesson, Vatns-
firði.
Sigurður Pálsson, Nauteyri,
Páll Pálsson, Þúfum.
Bjarni Sigurðsson, Vigur.
Séra Jónmundur Halldórsson, Stað.
2. Samþykkt var að skora á
vegamálastjóra, að hlutast til um
að lokið verði við bryggjugerðina
á Arngerðareyri á þessu sumri.
3. Eftirfarandi tillögur voru
samþykktar vegna hins erfiða á-
stands í Sléttuhreppi:
a) Komið verði upp fiskmót-
töku á Sæbóli og Hesteyri, eða þeim
verði séð fyrir bát þegar aðalver-
tíð er yfirstandandi, til að flytja
fisk frá þeim til fiskkaupanda þess
eða þeirra, sem fáanlegir væru til
að kaupa afla þeirra.
b) Ibúum Sléttuhrepps verði
greitt hliðstætt verð fyrir afla sinn
og öðrum er greitt fyrir hliðstæða
vöru að gæðum.
c) Halli sá, sem verða kann
vegna þessara framkvæmda verði
greiddur úr ríkissjóði.
4) Meðan meðaltekjur Sléttu-
lireppsbúa eru það litlar, að þær
geta *ekki talizt lífvænlegarj þá
verði greitt úr jöfnunarsjóði bæja
og sveitarfélaga tillag til Sléttu-
hrepps er svari til lýðtryggingar-
upphæðar þeirrar, er þeim ber að
greiða til Almannatrygginga og
þeim.verður nú að teljast ofviða að
greiða.
4. Samþykkt var að skora á
vegamálastjóra, að hlutast til um
að veginum út Langadalsströnd að
Armúla verði lokið á komandi
sumri. *
5. Samþykkt var að leggja til
elliheimilis á Isafirði 50 þús. kr.,
sem greiðist á 5 árum og fari 1.
greiðsla fram á árinu 1948.
6. Samþykktir voru sveitarsjóðs-
reikningar allra hreppa í sýslunni
fyrir 1946. Skuldlausar eignir
þeirra voru í árslok eins og hér
segir:
a. Slettulireppur kr. 13 939,63.
b. Grunnavíkurhr. kr. 40 955,81.
c. Snæfjallahr. kr. 15 269,42.
d. Nauteyrarhr. kr. 4 932,52.
e. Reykjarfj.hr. kr. 24 491,09.
f. ögurhreppur kr. 30 896,25.
g. Súðavíkurhr. kr. 105 275,98.
li. Eyrarhreppur kr. 264 332,87.
i. Hólshreppur kr. 95 782,88.
7. Ýmis önnur mál lágu fyrir
fundinum svo sem kosningar í
stjórnir sjóða o. fl.
--------O-------
Helgi Sigurgeirsson
Framhald af 1. síðu.
sínum, og þykir mjög skemmti-
legur og góður spilamaður.
Helgi hefur alla tíð verið
einn vinsælasti borgari liér í
bænum. Glaðvær og skemmt-
inn svo af ber; manna prúð-
astur í allri framkomu og
snyrtimenni bið mesta. Er ó-
hætt að fullyrða, að fáir munu
vinsælli en Helgi Sigurgeirs-
son“.
1 þessum ummælum er ekk-
ert ofmælt, og munu allir þeir,
sem Helga Sigurgeirssyni hafa
kynnst, geta tekið undir þau
af heilum hug.
Fram á sitt siðasta ár var
Helgi ungur í anda og kvikur
í hreyfingum. Dag hvern fór
hann langar gönguferðir út úr
bænum svo að segja hvernig
sem veður var, og mátti þá
enginn sjá að þar færi maður
á níræðisaldri. En á s. 1. sumri
varð hann að hætta þessum
reglubundnu göngu-ferðum og
halda kyrru fyrir sökum las-
leika. Eftir það fór heilsu hans
og lífsþrótti hnignandi unz
Elli kerling hafði að fullu yfir-
höndina og hann sofnaði hinsta
svefni.
DRENG EÐA STULKU
vantar til að bera Þjóðvilj-
ann í efri bæinn. Talið við
ritstjóra Baldurs.
Prentstofan Isrún h.f.
Sildarverðið hefur enn ekki
verið ákveðið i sumar. Hins-
vegaj.’ er kunnugt að sjómenn
og útgerðarmenn munu ekki
sætta sig við lægra verð en 50
krónur fyrir málið og eiga
líka fyllstu réttlætiskröfu á
þvi verði, miðað við það verð,
sem ákveðið hefur verið á
sildarlýsi.
1 ályktun um sjávarútvegs-
mál, sem stofnþing Alþýðu-
sambands ‘Norðurlands sam-
þykkti, er þess meðal annars
krafist að hræðslusíldarverðið
i sumar verði ekki lægra en 50
kr. fyrir málið og saltsildai'-
verðið tilsvarandi.
Bak við þessa kröfu standa
ekki aðeins verkalýðs- og sjó-
mannafélögin á Norðurlandi,
heldur munu útvegsmenn og
sjómenn um land allt fylgja
henni.
Ríkisstj órnin mun aftur á
móti treg til að samþykkja
þetta verð, en reyna að hanga
í lagaákvæðinu um „sildar-
verðskúfinn“, en samkvæmt
þvi á sildarverðið að vera 40
kr. fyrir málið. Þessi lagaá-
kvæði, sem eru um það, að
„kúfurinn“ verði tekinn af
síldarverðinu i sumar vegna á-
byrgða ríkissjóðs á fiskverð-
inu s. 1. vetur, voru sett án
samráðs við útvegsmenn og
sjómenn og meira að segja
gegn mótmælum þeirra. Sósí-
alistaflokkurinn einn barðist
gegn þehn á Alþingi.
Það má þvi telja víst að sjó-
menn og útvegsmenn láti rikis-
stjórnina ekki komast fram
með að ganga þannig á rétt
þeirra, en haldi fast fram
kröfunni um 50 króna verð.
Innilegt þakklæti vottum við öllum, sem sýnt hafa
samúð við fráfall og jarðarför Helga Sigurgeirssonar
gullsmiðs.
Börn, barnabörn og tengdasonur
Vorhreinsun.
Húseigendur og aðrir umráðamenn lóða og lendna í
bænum eru hér með áminntir um að hreinsa rækilega lóð-
ir sínar, húsagarða (port) og aðrar lendur, í þessari viku
og þeirri næstu. Sorp og rusl ber að láta í sorpílátin eða
í hrúgur við götur, þar sem hreinsunarmenn bæjarins
eiga greiðan aðgang að því til brottflutnings.
Ákveðið hefir verið, að hreinsuninni skuli vera lokið
laugardaginn 7. júní n. k. Láti einhverjir hjá líða að
hreinsa lóðir sínar og lendur fyrir nefndan dag, verður
hreinsun framkvæmd á þeirra kostnað, án frekari aðvör-
unar.
Isafirði, 28. maí 1947.
F. h. Heilbrigðisnefndar.
St. Leós.
Hinn 3. júní 1947 framkvæmdi notaríus publicus á Isafirði
útdrátt á sérskuldabréfaláni Hafnarsjóðs Isafjarðar frá 23.
nóvember 1946.
Þessi bréf voru dregin út:
LITRA A. nr. 50, 78, 100, 101, 104, 142, 143, 163, 209, 210.
LITRT B. nr. 38, 39, 48, 51, 73, 170, 191, 199.
Gjalddagi litdreginna bréfa og vaxtamiða er 1. ágúst n. k.
og fer innlausn þeirra fram i skrifstofu hafnargjaldkera.
Vextir greiðast ekki af útdregnum bréfum eftir gjalddaga
þeirra.
Isafirði, 5. júní 1947.
, F. h. hafnarstjóra
Steinn Leós.