Baldur - 18.03.1950, Síða 3
B A L D U R
3
3/1950. H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Tilkynning Aðalfundur.
Innflutnings- og gj aldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefur ákveðið
eftirfara.ndi hámarksverð á benzíni og olíum:
1. Benzín............... kr. 1,12 pr. ltr.
2. Hráolía ............... — 450,00 — tonn
3. Ljósaolía.............. — 760,00 — tonn
Ofangreint verð á benzíni og hráolíu er miðað við afhend-
ingu frá „tank“ í Reykjavík eða annarri innflutningshöfn, en
ljósaolíuverðið við afhendingu á tunnum í Reykjavík eða ann-
arri innflutningshöfn. Sé hráolía og benzín afhent í tunnum, má
verðið vera 3 aurum hærra hvert kíló ai' hráolíu og hver lítri af
henzíni.
I Hafnarfirði skal benzínverð vera sama og í Reykjavík. I
Borgarnesi má benzínverð vera 5 aurum hærra hver lítri, og í
% Stykkishólmi, Isafirði, Skagaströnd, Sauðárkróki, Siglufirði,
Akureyri, Húsavík, Þórshöfn, Norðfirði og Eskifirði má vcrðið
vera 7 aurum hærra hver lítri. Ef benzín er flutt á land frá ein-
hverjum framangreindra staða, má hæta einum eyri pr. lítra við
grunnverðið á þessum stöðum fyrir hverja 15 km. sem henzínið
er flutt og má reikrn gjaldið, ef um er að ræða helming þeirrar
vegalengdar eða meira.
A öðruin stöðiuii utan Reykjavíkur, sem henzín er flutt til
sjóleiðis, má verðið vera. 11 aurum hærra en í Rcykjavík.
Verðlagsstjóri ákveður verðið á hverjum sölustað sam-
kvæmt framansögðu.
I Hafnarfirði skal verðið á hráolíu vera hið sama og í
Reykjavík. I verstöðvum við Eaxaflóa og á Suðurnesjum má
verðið vera kr. 40,00 hærra pr. tonn, en annars staðar á landinu
kr. 50,00 pr. tonn, ef olían er ekki flutt inn heint frá útlöndum.
I Hafnarfirði skal verðið á Ljósaolíu vera hið sama og í Reykja-
vík, en annars staðar á landinu má það vera kr. 70,00 hærra
pr. tonn, ef olían er ekki fluttbeint frá útlöndum.
Söluskattur á henzíni og ljósaolíu er innifalinn í verðinu.
Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 1. marz 1950.
Reykjavík, 1. marz 1950.
Verðlagsstjórinn.
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags Islands verður
haldinn í fundarsalnum i húsi félagsins í Reykjavík, laugar-
daginn 10. júní 1950 og hefst kl. 1,30 e.h.
D A G S K R Á:
1. Stjórn félagsins skýrir frá liag þess og framkvæmdum á
liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári,
og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endur-
skoðaða rekstursreikninga til 31. desemher 1949 og efnahags-
reikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórn-
arinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu árs-
arðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr
ganga samkvæmt félagslögum.
4. Kosning eins endurskoðanda i stað þess er frá fer, og eins
varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna
að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hal'a aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umhoðsmönnum hluthafa á skrifstol'u félagsins í Reykjavík,
dagana 7. og 8. júní næstk. Menn geta fengið eyðuhlöð fyrir um-
hoð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í
Reykjavík.
Reykjavík, 27. fehrúar 1950.
STJÓRNIN.
Aðalfundur
Aðdfundur togarafélagsins ISFIRÐINGUR H.F., verður
haldinn að Uppsölum föstudaginn 31. marz 1950 kl. 8,30 e.h.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Kjörskrá
til alþingiskosninga 1 ísafjarðarkaupstað, gildandi frá
15. júní 1950 til 14. júní 1951, liggur frammi í bæjarskrif-
stofunni kjósendum til athugunar næstu fjórar vikur frá
deginum í dag.
Kærur yfir því, að einhvern vanti á kjörskrána eða sé
þar ofaukið sendist bæjarstjóra.
Bæjarstjórinn á ísafirði, 11, mraz 1950
Stöinn Leós.
settur.
Þakkarávarp:
B j örgunarskútusj óði V est-
fjarða hafa borizt eftirtaldar
peningagjafir:
Aheit frá H. E. kr. 50,00.
Aheit frá N. N. kr. 100,00.
Aheit frá N. N. kr. 50,00. -
Áheit frá Ónefndum kr. 100,00.
— Áheit frá Magnúsi Jónssyni,
sjómanni (hann hefur gefið
áður), kr. 100,00. — Samtals
kr. 400,00.
F. h. Björgunarskútusjóðs
Vestfjarða j)akka ég gjafir
þessar.
Kristjún Kristjánsson,
Sótgötn 1, Isafirði.
Frá húsmæðraskólanum á ísafirði
Námskeið í matreiðslu verða haldin í skólanum, sem hér
segir, ef næg þátttaka fæst:
l. Sýnikcnnslunámskeið í tveimur flokkum, frá 11. apríl til
13. maí, annan hvern dag frá kl. 2,30—5.
1. Kvöldnámskeið frá 15. maí til 16. júní, frá kl. 6,30—10.
Náiiari upplýsingar verða veittar í skólanum á mánudag og
finuntudag í næstu viku frá kl. 2—4.
SKÓLASTJ ÖRI.
Mánaðarleiga í Fjarðar-
strætishúsunum kr. 450,00
á íbúð.
Á bæjarstjórnarfundi 8. J).
m. lá fyrir yfirlit yfir hygging-
arkostnað Fjarðarstrætishús-
anna og er hann sem næst kr.
1.441.887,32.
Samþykkt var að mánaðar-
leiga fyrir hverja íhúð verði
kr. 450,00 þar til endanlegt
uppgjör á byggingarkostnaði
liggur fyrir.
Ennfremur var samþykkt að
íhúum húsanna verði gefinn
kostur á að kaupa íbúðir sínar
með kostnaðarverði og þeim
skilmálum, sem félagsmála-
ráðuneytið samþykkir.
Gjalddagi til Máls og menn-
ingar var 1. marz.
Magnús Guðínundsson.
Rúmgott einsmanns her-
bergi óskast til leigu frá 1.
apríl. Helzt í neðri bænum.
Talið við ritstjóra Baldurs.