Baldur - 07.04.1952, Page 1
xvm. ÁRG.
SAUðJDIl
Isafjörður, 7. apríl 1952.
6. tölublað.
Baráttan gegn dýrtíðinni.
Árni J. Auðuns, skattstjóri.
Fæddur 19. júní 1906 — Dáinn 26. marz 1952.
NOKKUR MINNINGARORÐ.
Árni J. Auðuns.
Ég hygg að fátt hafi hryggt fólk
hér í bæ jafn almennt og andláts-
fregn Árna J. Auðuns, skattstjóra,
er andaðist í Reykjavík 26. marz
s.l. eftir stutta legu en miklar
þjáningar. Að vísu kom þessi sorg-
arfregn ekki með öllu óvænt, því
að nokkrum dögum áður var hann
fluttur helsjúkur með flugvél til
Reykjavíkur og engin von talin að
umskipti gætu orðið nema á einn
veg, en þegar þess er minnst, að
skömmu áður gekk hann til starfa
í fullu fjöri, verður ekki annað
sagt en að veikindi hans og dauða
hafi borið mjög sviplega að.
Það, sem einkum aflaði Árna J.
Auðuns þeirra miklu og almennu
vinsælda, sem hann ætíð naut,
voru frábærir mannkostir hans, og
vegna þeirra er hans svo almennt
saknað. Hann var allra manna dag-
farsprúðastur, einstaklega orðvar
og umtalsfrómur um aðra menn,
kurteis og alúðlegur í allri fram-
komu, manna skemmtilegastur í
vinahóp og kunningja, enda prýði-
lega gáfaður og víðlesinn og gat
því tekið þátt í umræðum um
hvaða efni sem var. Þá var ekki
síður ánægjulegt að spjalla einn
við hann, og einmitt í slíkum við-
ræðum komu mannkostir hans
bezt í ljós.
Því fór fjarri, að vinsældir Árna
byggðust á því, að hann talaði eins
og hver vildi heyra, þvert á móti
hélt hann skoðunum sínum á
mönnum og málefnum hiklaust
fram, ef því var að skipta, en hon-
um var mjög f jarri skapi allt þjark
og þras um slíka hluti að óþörfu,
og vinfengi gat hann bundið jafnt
við málefnalega andstæðinga sem
samherja.
Árni J. Auðuns var fæddur á
ísafirði 16. júní 1906, sonur merk-
ishjónanna Margrétar Jónsdóttur
og Jóns Auðuns Jónssonar, fyrver-
andi alþingismanns. Hann var því
af góðu bergi brotinn, þar sem for-
eldrar hans voru af dugmiklu og
gáfuðu fólki komin. í foreldra-
húsum naut hann ágætasta upp-
eldis og prýðilegustu menntunar,
bæði heima og heiman. Þegar hann
var orðin fulltíða, vann hann um
margra ára skeið á skrifstofu hjá
föður sínum, sem gegndi hér í bæ
ýmsum ábyrgðarstörfum, eins og
kunnugt er. Meðal þessara starfa
má nefna embætti skattstjóra, sem
Jón Auðunn gegndi síðustu árin,
sem hann bjó hér. En er hann lét
af því starfi og flutti með konu
sinni til Reykjavíkur 1947, var
Árni settur til að gegna embætt-
inu. Nokkru síðar var honum veitt
það og hélt því óslitið til dauða-
dags.
Þann 1. júlí 1950 kvæntist Ámi
eftirlifandi konu sinni, Sigrúnu
Ragnarsdóttur, Thorarensen.
Vegna áðurgreindra mannkosta
var Árni J. Auðuns einn þairra
mapna, sem allir, er kynntust hon-
um, sakna, og því méir sem þau
Undir eins og Bretum barst á-
kvörðun íslendinga um stækkun
landhelginnar, gerðu þeir hefndar-
ráðstafanir á þann hátt, að íslenzk
fiskiskip voru látin sitja á hakan-
um með löndun í Bretlandi, en er-
lend skip, þar á meðal þýzk, látin
ganga fyrir.
1 síðasta ófriði, þegar Bretar
áttu í höggi við Þjóðverja, lögðu
íslendingar sjómenn sína og skip
í hættu til að flytja brezku þjóð-
inni matvæli. Á þeim ferðum lét
fjöldi íslenzkra sjómanna lífið fyr-
ir morðtólum Þjóðverja og mörg-
um íslenzkum skipum var sökkt.
Eitt íslenzkt skip, vélskipið
Helgi í Vestmannaeyjum, fór á
þessum árum 60 ferðir með mat-
væli til Bretlands. Fyrir það af-
Fyrir nokkru byrjuðu að birtast
í Þjóðviljanum smáletursgreinar
undir fyrirsögninni: Hagtíðindi
Þjóðviljans. Eins og yfirskriftin
bendir til er í greinaflokki þessum
drepið á ýms hagfræðileg mál,
bæði erlend og innlend og mikinn
fróðleik þar að finna. í Þjóðviljan-
um 30. marz s.l. er í þessum grein-
arflokki tekið til umræðu mál, sem
snertir hvert mannsbarn á Islandi,
en það er hin geigvænlega og stöð-
ugt vaxandi dýrtíð á landi hér. Fer
sú grein orðrétt hér á eftir:
„Það er stefna ríkisstjómarinn-
ar að vinna að því af alefli að
stöðva hækkun dýrtíðar og fram-
leiðslukostnaðar og athuga mögu-
leika á lækkun hennar“.
Ofanrituð klausa er tekin úr
stefnuyfirlýsingu stjórnar Stefáns
Jóhanns Stefánssonar — „fyrstu
stjórnar Alþýðuflokksins á Is-
landi“ — er tók við völdum í febr-
úar 1947.
Það var ekki verið að klípa af
kynni voru nánari. En þyngst er
þó sorg ungrar eiginkonu hans,
aldraðra foreldra og syskina, sem
nú .verða að sjá honum á bak í
blóma lífsins, þegar framtíðin
brosti við björt og fögur. En þeim
má vera það huggun í sorg þeirra,
að vinir hans þakka honum af al-
hug ánægjulegar samverustundir
og þeim kemur hann ætíð í hug,
er þeir heyra góðs manns getið.
Halldór Ólafsson.
henti borgarstjórinn í. Fleetwood
skipstjóranum á Helga, Hallgrími
Júlíussyni, heiðurskjal. Skjal þetta
er birt í Minningarriti, sem gefið
er út í tilefni af afhjúpun minnis-
merkis druknaðra við Vestmanna-
eyjar og hljóðar svo í íslenzkri
þýðingu:
„Ráðhúsið, Fleetwood,
Lanchasire, England.
25. april 1946.
Til skipstjóra H. Júlíussonar.
Borgarstjóri Fleetwood-borgar
færir yður beztu þakkir og viður-
kenningu fyrir framkvæmd yðar
við matvælafluttninga yðar til
brezku þjóðarinnar á 6 s.l. stríðs-
árum, en á þeim tíma hafið þér
siglt hingað 60 ferðir, eða 150 000
Framhald á 4. síðu.
loforðunum: Af alefli skyldi unnið
að því að stöðva hækkun dýrtíðar-
innar og jafnframt skyldi athugað-
ir möguleikar á lækkun hennar.
Loforð hinna síðari Marshall-
stjóma, Ólafs Thors og Steingríms
Steinþórssonar var í svipuðum dúr.
öll þjóðin veit að þessi loforð
hafa verið svikin, enda aldrei mein
ingin að þau yrðu efnd. Verðhækk-
anirnar á þeim fimm árum, sem
stjórnir Marshallflokkanna hafa
setið að völdum, hafa verið bæði
margar og miklar.
Hér fer á eftir listi yfir verð-
breytingamar á helztu neyzluvör-
um almennings á þessu tímabili:
Marzmánuður
1947 1952
kg. á kr.
Kindakjöt ............ 10,85 15,25
Nautakjöt, steik ..... 15,00 21,53
Nautakjöt, súpukj...... 9,50 13,35
Kálfskjöt ............. 8,00 13,00
Saltkjöt .............. 8,00 13,00
Dilkaslátur, hvert .... 12,00 25,75
Ýsa, ný ............... 1,15 2,05
Þorskur, nýr .......... 1,10 1,85
Stórlúða, ný .......... 7,00 12,00
Koli .................. 2,90 4,50
Fiskfars .............. 4,00 7,80
Fiskbollur ............ 4,60 8,17
Nýmjólk (ífl.l.) ...... 1,98 3,05
Ný mjólk (í 1. máli 1.) 1,83 2,90
Rjómi, líter ......... 13,00 21,85
Skyr .................. 3,30 5,15
Smjör, ísl............ 30,00 38,10
Smjörlíki ............. 7,00 11,60
Niðurgr. smjörl.kostn. 5,00
Lýsi, i/2 fl........... 2,25 7,10
Mjólkurostur 40% .... 16,00 23,10
Egg .................. 16,80 26,75
Rúgmjöl ............... 1,44 2,97
Hveiti ................ 1,49 3,24
Hafragrjón ............ 1,67 4,45
Hrísgrjón ............. 2,05 5,51
Rúgbrauð (1500 gr.) 2,45 4,20
Normalbrauð (1250) 2,35 4,20
Fransbr. (500 gr.) 1,40 2,55
Kartöflur ............. 0,80 2,20
Sveskjur .............. 5,20 11,30
Rúsínur ............... 6,75 15,60
Strásykur ............. 1,99 5,34
Hvítasykur ............ 2,35 6,14
Kaffi, br. og malað .... 8,40 44,00
Kaffibætir ............ 7,20 13,21
Te, % lbs.............. 1,32 3,56
Kol, tonn .......... 238,00 658,00
Steinolía, líter ...... 0,53 1,20
Krystalsápa ........... 5,00 10,00
Þvottaefni, pr. pk.. 1,95 5,00
Það hefur sýnilega komið við
pýngju manna að Marshallflokk-
arnir hafa haft svo sterka aðstöðu
á Alþingi sem raun ber vitni um.
„Gleymt er þá gleypt er“