Baldur - 07.04.1952, Page 4
Miklar umbætur á símstöð og
símakerfi bæjarins.
Aflafréttir.
Áyfirstandandi vetrarvertíð hafa
gengið héðan á veiðar 5 bátar frá
Samvinnufélagi ísfirðinga og 3 frá
h.f. Nirði.
Afli Samvinnufélagsbátanna er
sem hér segir til marzloka:
Ásbjörn 229.022 kg. í 52 legum
Gunnbjöm 81.557 kg. í 25 leg-
um(vélabilun).
Sæbjöm 165.275 kg. í 45 legum.
Vébjöm 131.786 kg. í 35 legum.
Finnbjörn 68.095 kg. (Togveið-
ar).
Allir þessir bátar lögðu afla
sinn hér á land. Finnbjörn hefur
verið á togveiðum frá 1. marz s.l.
Afli Njarðarbátanna er til marz-
loka sem hér segir:
Bryndís frá 10/2 80.645 kg.
Hafdís frá 9/2 177.062 kg. Auk
þess ca. 20 tonn keila.
Freydís frá 5/1 239.085 kg. Auk
þess ca. 17 tonn keila.
Bryndís lagði allan sinn afla hér
á land, en Freydís og Hafdís, sem
báðar stunduðu útilegur, fóm í
kringum 20. febr. s.l. á veiðar við
Faxaflóa og lögðu afla sinn þar
á land. Þann 2. þ.m. lögðu þær hér
á land afla, sem þær fengu út af
Vestfjörðum, Freydís 21.890 kg.
og Hafdís 17.830 kg.
Um afla annara báta, sem héð-
an hafa gengið, er Baldri ekki
kunnugt.
Fyrir og um s.l. mánaðarmót
leit út fyrir að afli væri heldur
að glæðast hér útaf. Fékkst þá
talsvert af loðnu og einnig varð
vart við smásíld í Djúpinu, en ekki
tókst að veiða hana, þrátt fyrir til-
raunir til þess. Nú hefur tíðarfar
spillst og er ekki veiðiveður, verð-
ur því ekki sagt hve lengi þessi
aflahrota verður.
Hjúskapur.
Þann 8. marz s.l. voru gefin sam-
an í hjónaband af sóknarpresti,
séra Sigurði Kristjánssyni, ungfrú
Sigríður Aðalsteinsdóttir, ísafirði
og Jón Kristján Jónsson, Guð-
mundssonar, Króksbæ, stýrimað-
ur, Vestmannaeyjum.
Andlátsfregn.
Agnes V. Jónsdóttir, Mánagötu
5, andaðist 2. þ.m. Hún var fædd
í Vatnsfirði í Norður-ísafjarðar-
sýslu 16. júlí 1876.
Frú Elín Jónsdóttir, Ijósmóðir,
átti 65 ára afmæli 1. þ.m.
Nýr borgari.
ólafur, fæddur 15/3 1952, skírð-
ur 1/4 1952. Foreldrar Þóra S.
Þórðardóttir og Haraldur Stein-
þórsson, kennari, Isafirði.
Kosning 15. júní.
Auglýst hefir verið, að kosning
Laugardaginn 22. f.m. bauð
Sigurður J. Dahlmann, símstjóri,
fréttamönnum blaða og útvarps að
skoða þær breytingar og umbætur,
sem gerðar hafa verið á landsíma-
stöðinni hér.
Breytingar þær og umbætur,
sem gerðar hafa verið, eru aðal-
lega þessar:
Afgreiðsla bæjar- og landsímans
hefur verið flutt á efri hæð sím-
stöðvar- og pósthúss. Hafa þar
verið sett upp ný skiptiborð og af-
greiðsla landsíma og bæjarsíma á
daginn aðskilin. Við skiptiborðið,
sem afgreiðir innanbæjarsímtöl, er
hægt að tengja 540 númer, en þau
eru nú aðeins 300 í notkun, og við
það geta þrjár stúlkur unnið sam-
tímis. Segja má að með þessari
breytingu séu skiptiborð nú f jögur.
en áður voru þau ekki nema tvö
og landsímasamtöl afgreidd frá
öðru þeirra.
Á neðri hæð hússins er ritsími
og loftskeytastöð auk pósthússins.
Loftskeytastöðin hefur nú til um-
ráða 4 senditæki og 7 viðtæki. Fer
loftskeytaþjónustan fram allan
sólarhringinn og getur sami mað-
ur annast næturvörzlu á bæjar-
alþingismanns fyrir Isafjörð í stað
Finns sál. Jónssonar, fari fram 15.
júní n.k. Kosið verður til loka yfir-
standandi kjörtímabils. Samkvæmt
lögum eiga framboð að vera kom-
in fram 4 vikum og 3 dögum fyrir
kjördag.
Söngskemmtim.
Ungfrú Ingibjörg Steingríms-
dóttir hélt söngskemmtun í Al-
þýðuhúsinu þriðjudagskvöldið 1.
þ.m. á vegum Tónlistarfélags Isa-
fjarðar.
Á söngskránni voru 17 lög, 4 eft-
ir íslenzka höfunda og 13 eftir er-
lenda höfunda.
Ingibjörg hefir dvalið í Dan-
mörku um 4 ára skeið og numið
þar söng, söngkennslu og píanó-
leik. Hún er því fjölmenntuð í
sönglistinni. Ingibjörg Steingríms-
dóttir hefir þróttmikla rödd og
kann vel að beita henni. Áheyr-
endur tóku söng hennar líka vel
og klöppuðu henni óspart lof í lófa
og komst hún ekki undan því að
endurtaka mörg lög og syngja
aukalög.
Áheyrendur voru alltof fáir og
er síður en svo að það sé örfandi
fyrir listamenn að sækja hingað
eða fyrir Tónlistarfélag Isafjarðar
að leggja í mikinn kostnað til að
bjóða Isfirðingum góða tónlist,
síma, landsíma og loftskeytastöð.
Ennfremur geta skeytasendingar
farið fram loftleiðis, verði bilanir
á símalínum til annara staða og
ganga þær skeytasendingar fljótar
en með talsíma. Hefur loftskeyta-
stöðin fengið til þess sjálfvirkt
móttökutæki (ölduritara), sem
getur sent og tekið á móti sam-
tímis 100 orðum á mínútu, en áður
gekk mjög misjafnlega að senda
skeyti í loftlínu.
Þá kvaðst símstjórinn vona, að
ekki liði á löngu, þar til hægt yrði
að senda skeyti á stuttbylgjum.
Þá gat hann þess að uppsetningu 3
rasa fjölsíma milli Isaf. og Rvíkur,
milli Isafjarðar og Reykjavíkur,
verður þa hægt að afgreiða 3 sím-
töl í einu í stað þess að nú er að-
eins einn fjölsími með beinu sam-
bandi við Reykjavík. Þegar þesssi
nýju tæki eru komin í notkun,
ættu hraðsamtöl milli Isafjarðar
og Reykjavíkur að hverfa að
mestu eða öllu leyti.
Að endingu skýrði símstjórinn
frá því, að á komandi sumri væru
ráðgerðar miklar viðgerðir á jarð-
sti’engjum í innanbæjarkerfi sím-
ans á Isafirði.
þegar aðsókn er ekki meiri en hún
var á þriðjudaginn. — Undirleik
annaðist ungfrú Elísabet Krist-
jánsdóttir.
ATVINNULEYSIS-
SKRÁNING.
Við atvinnuleysisskráningu,
sem fram fór hér í bæ í febrúar-
mánuði s.l., mættu alls til
skráningar 37 manns. Þar af
voru 22 fjölskyldufeður með 60
manns á framfæri og krónur
49.424,72 í samanlagðar tekjur
s.I. þrjá mánuði, 14 einhleypir
og ein stúlka með kr. 13.199,00
í samanlagðar tekjur á sama
tíma.
-------0-------
„Gleymt er bá gleypt er“.
Framhald af 1. síðu.
sjómílur. óskandi yður góðra
ferða.
Alfred Wilkinson J.P.
borgarstjóri“.
I þessu skjali kveður við allt
annan tón en nú kemur fram hjá
brezkum fiskikaupmönnum og út-
gerðarmönnum, sem láta höfuð-
óvininn frá síðustu heimstyrjöld
sitja fyrir íslendingum um við-
skipti og hafa jafnvel við orð að
loka brezkum höfnum fyrir ís-
lenzkum skipum.
Kristján Guðmunds-
son, verksmiðjustjóri
Hann andaðist í Reykjavík 26.
marz s.l. Kristján var fæddur á
Tannanesi í önundarfirði 26. júní
árið 1900, sonur Guðmundar
Sveinssonar bónda þar og konu
hans Kristínar Friðriksdóttur.
Hann lauk prófi í Verzlunarskóla
íslands 1921, gerðist sama ár
kaupmaður hér á ísafirði og rak
hér verzlun til 1923, en á því ári
stofnaði hann fyrstu fiskimjöls-
verksmiðjuna hér á landi fyrir
hertan fiskúrgang og starrækti þá
verksmiðju til 1928. Eftir það
kynnti hann sér framleiðslu stein-
steypuvara á Norðurlöndum og
Þýzkalandi, fluttist þá til Reykja-
víkur, varð 1930 forstjóri h.f.
Pípuverksmiðjan og gegndi því
starfi til dauðadags.
Kristján kvæntist 30. nóv. 1930
Sigríði Kristinsdóttur, Gunnars-
sonar. Lifir hún mann sinn ásamt
ungum syni þeirra.
Kristján var að verulegu leyti
alin upp hér á ísafirði og hér byrj-
aði hann verzlunar- og verksmiðju-
rekstur sinn. Þó að liðin séu full
20 ár síðan hann fluttist héðan, á
hann hér enn margt vina og kunn-
ingja, og móðir hans, háöldruð, og
bróðir, Helgi bakari, eru bæði bú-
sett hér. Allir þeir, sem Kristjáni
kynntust, harma að hann er svo
skyndilega burt kallaður á bezta
aldri, enda er með honum til mold-
ar genginn drengur góður og at-
hafnasamur dugnaðarmaður.
Ástæðan fyrir þessari framkomu
Breta við þjóð, sem hefur lagt sig
fram til að hjálpa þeim á þreng-
ingatímum, er sú ein, að Islend-
ingar hafa á algerlega löglegan
hátt ákveðið að stækka landhelgi
sína lítið eitt frá því, sem hún var
ákveðin með samningi, er annað
ríki gerði að þeim forspurðum og
þeir hafa síðan orðið að hlíta í
hálfa öld.
Á þessu tímabili hafa Bretar
rænt íslenzk grunnmið af óstjórn-
legri frekju og yfirgangi, og þeir
virðast nú meta þann ránsfeng
meira en líf þeirra þegna sinna, er
Þjóðverjar drápu í síðustu heim-
styrjöld, og verðmætin, sem þeir
eyðilögðu þá. Hins vegar vanþakka
þeir nú á dólgslegast hátt aðstoð
þá, sem íslendingar veittu þeim á
þessum tíma, og sýna þar með, að
á þeim sannast máltækið „gleymt
er þá gleypt er“.
-.... O--------
PÁSKAMESSUK:
ísafjörður:
Skírdag: Barnamessa kl. 11 f.h.
Föstudaginn langa: Alm.messa
kl. 2 e.h.
Páskadag: Alm. messa kl. 2 e.h.
Hnífsdalur:
Páskadagur: Messað kl. 5 e.h.