Baldur - 23.12.1952, Qupperneq 8

Baldur - 23.12.1952, Qupperneq 8
8 BALDUR Ur gömlum vestfirsku fréttabréfum I tveimur heimum. Framhald af 5. síðu. sem hann sá, og fleygði svo fram í lestri, að undrun sætti. Einhverju sinni var hann staddur úti í skemmu ásamt fóstru sinni. Þá sá hann rif- rildi af bók innan um jámarusl í gamalli hnyklaskúffu tilheyrandi rakgrind. Hann spurði fóstruna, hvort hann mætti taka bókina. — Hvað ætlarðu að gera með það, elskan mín, sagði fóstran, — það hefur enginn gott af því að liggja í bókum. Hann tók þó bókina, bar hana inn í barmi sínum sem helgan grip og þorði naumast að láta sjá hana. Þetta voru Númarímur Sigurðar Breið- fjörðs. Við fyrsta tækifæri tók hann að stauta í bókinni. Orðin urðu að hendingum, hending- arnar að ljóði, en ljóðið var hinn sæluríki unaður lífsins, það var birta guðs í tilverunni. Þetta hafði hann fundið svo vel, þegar hann uppgötvaði þennan leyndardóm ljóðsins, það var ekki langt síðan, en þá birti og glaðnaði yfir huga hans. Og þama hafði hann fundið hina miklu gersemi. Af hinum velktu blöðum reis vem- leiki ilmandi náttúrunnar með lofsyngjandi fuglum um ást og frið allt í kring, — og birtan var svo glöð. Þama hafði drengurinn fundið meistarann, sem síðan varð leiðtogi hans og fyrirmynd, andlegur förunautur og vinur. Hann las: Smala hlýðinn hjarðar fjöldinn heim að líður stekkjunum, þar ég síð á sumarkvöldin sat í víðibrekkunum. Fóstra, já, mér féll í lyndi faðmi á að hvílast þín; hyggði ég þá með æskuyndi ofursmáu húsin mín. Og enn las hann og lærði: Á ég að halda áfram lengra eða hætta og milli Grænlands köldu kletta kvæðin láta niður detta? Hér á milli hárra fjalla ég háttu tóna, heyri því í huldum steina hundrað raddir fyrir eina? Var þetta ekki eins og kveðið út úr huga hans, milli hárra f jalla, um huldur steina, um raddirnar. Laglega í logni fjöllin Ijóð fram bera, mig ef fá til forsöngvara, fús eru þau að endursvara. Drengurinn sat í leiðslu með bókina sína og fann að þetta var ljóðið, — þetta var birtan í tilverunni. Svo spurði hann: Hvað hét skáldið? — Æ, það var hann Sigurður Breiðfjörð. Já, Sigurður Breiðfjörð var hið undursam- lega nafn. Upp frá því varð hann einkavinur rJlagnúsar á lífsleiðinni og andlegur fömnaut- ur. Þegar Magnús var orðinn fulltíða maður orti hann kvæði um þennan vin sinn. Það era þessar vísur: Lítill ljósgeisli að ljóma verður, vex og vex Úr bréfi frá Isafjarðardjúpi 30. sept. 1876. „Nú er ekkert fréttnæmt að skrifa, nema bærilega vellíðan vora, og sumar og haust hefur verið hingað til hið bezta, síðan um sól- stöður. Menn hafa því heyjað vel og hafa góð hey til vetrarins. Við fisk er lítið tilreynt í haust, en Isfirðingar hafa undanfama logn- daga fiskað ákafa mikið af smokk (kol- krabba) til beitu á nýuppfundna rauðlakkaða blýöngla, með látunsbroddum niður úr, beygða út og uppá við allt í kring. Og halda þeir að fiskurinn komi á eftir, og ætla sér þá að nota þessa agnbeitu, sem söltuð er niður til beitu þúsundum saman“. Úr bréfi úr Barðastrandarsýslu 1. nóv. 1877. ....Verzlun var hér góð yfirhöfuð, almenn- ir prísar: Kom 18 kr., B. B. 32 kr., hálfgrjón 30 kr„ kaffi 1 kr. 10 a„ sykur 50 a„ spritt- blanda 67 aurar. Islenzk vara: Haustull 90 aurar, dúnn 20 kr„ saltfiskur 75 kr. skpd., lýsi 50 kr. tunnan. í haust hefur verið tals- verð kjötverzlun. Flateyjarfélagið hefur sent og verður meiri, birta hans bálast og býður yl; — verða skuggar allir í skyndi að flýja. Svo er andríki afbragðs manns, eldur gáfna hans einatt stækkar. Eigi hann ylríki eðallyndis verða skuggar allir í skyndi að flýja. En víst er vangoldið vísna mæring, lágsett er leiði listamanns, ítak sem átti í allra hjörtum, en ytra sér þess engin merki. Og þegar Magnús kom að leiði Sigurðar Breiðfjörðs árið 1912, orti hann: Hingað sný ég fæti fyrst forlagarúnum vafinn, meistarinn í ljóðalist liggur hérna grafinn. Auk guðsorðabóka voru nokkrar aðrar bæk- ur til í Efrihúsum, svo sem Þjóðsögur Jóns Árnasonar og íslenzk æfintýri. Þessar bækur rann drengurinn í, þegar færi gafst, gagnlaus þær og lærði. Þá voru þar ljóðabækur. Einnig vora þar Felsenborgarsögurnar. Hann las þær, en hreifst ekki af þeim á svipaðan hátt og af hinu þjóðlega, íslenzka efni. Það var eitt sinn að haustlagi á þessum áram, að Magnús sat á rúmi fóstru sinnar í ytri enda baðstofunnar, undir vesturhlið. Hann var að lesa í Ijóðmælum Bjama Thorar- cnsen. Drengnum fannst þau nokkuð erfið, en sökkti sér því meir niður í lesturinn. Það var friður í baðstofunni, aðeins hann og Gummi gamli uppi. En Gummi gamli lá í rúminu og lét hann afskiptalausan. Hann hafði oft verið góður og hlýr við drenginn, hjálpaði honum að klæða sig og mælt til hans vingjamlega. Drengurinn naut sín því vel, þegar þeir vora tveir einir uppi. út 120 tunnur af kjöti, en frá Stykkishólmi 2—300 og Borðeyri 600 t„ prís á kjöti var 16—20 aurar“. Fréttabréf úr V-fsafjarðarsýslu 27. maí 1880. „Af framförum hér í sýslu er lítið að skrifa, því þó áhugi hjá mönnum sé miklu meiri en áður á ýmsu er að framförum lítur, þá er fátt af því komið í verk, þó er nú komið svo langt, að nokkrir hreppar hafa boðað fund, til að reyna að koma í bamaskólum eða einhverri stofnun, sem unglingar gætu aflað sér upp- fræðingar í. Þá verða líka rædd ýms málefni er nauðsynleg virðast fyrir sveitarfélögin. Bindindisfélög hafa verið stofnuð í mörgum hreppum sýslunnar, og hér í hrepp (Mýra- hrepp) er allur þorri manna kominn í bind- indi með prestinn í broddi fylkingar, þó era nokkrir á svonefndum Ingjaldssandi, sem ekki vilja styggja Bachus með því að afneita hon- um opinberlega, en sá, sem ritar línur þessar, þekkir þá flesta sem reglumenn og góða drengi, og hann vonar, þegar hann ritar næst Þá heyrðist fótatak og Bjami Hermann, einn af sonum fóstrannar, kom upp og fór að ganga fram og aftur um loftið. Þá varð drengurinn hræddur og þorði ekki að láta Bjarna sjá, að hann væri að lesa. Hann stakk því bókinni undir lærið í hvert skipti er Bjami gekk inneftir loftinu, en las í henni er Bjami gekk fram eftir loftinu. Bjarni hafði veður af þessu framferði drengsins, gekk til hans og tók bókina undan læri hans. Drengurinn -horfði á hann kvíðinn og hræddur og bjóst við sneypu, svo sem við ýmis tækifæri. En Bjarni sagði: — Þú mátt hafa hana. Drengnum fannst þetta eitt af því ótrúlega og varð glaður við. Magnús fór líka smám saman að fá viður- kenningu fyrir lestrarkunnáttu sína. Þegar hann var sex til átta ára var hann orðinn „húslestrarfær“. Og þá var talið sjálfsagt að nota lestrarkunnáttu hans, svo að hann var settur til að lesa kvöldlestrana. Þetta þótti þægilegt fyrir fólkið, sem gat þá hvílt sig eða rorrað og dormað meðan drengurinn þuldi. Sá siður var í Efrihúsum, svo sem annars- staðar í sveitinni, að lesa á hverjum sunnu- degi í Vídalínspostillu, allt árið. Á kvöldin var einnig lesið í hugvekjum, nema yfir há- sumarið. Um sjöviknaföstuna var lesið á mið- vikudögum í Vigfúsarhugvekjum. Mitt í hinum sverfandi ótta, sem sífellt og af ýmsum ástæðum sat í huga drengsins, hafði hann nokkra uppreisn með þeirri viðurkenn- ingu, sem hann fékk með lestrarkunnáttunni. Hann var því talinn greindur og næmur- til bókarinnar, en að hinu leytinu ratalegur við ýmis vinnubrögð og við skepnur. Var það oft þyngra á metunum í hinni daglegu umgengni, því að það var öllum sameiginlega Ijóst, að bókvitið yrði ekki látið í askana. Þetta álit fékk hann oft að heyra af vörum fullorðna fólksins: Hann var bjálfi þegar hann var að snúast kringum skepnurnar, og rola í ýmsum viðbrögðum, af því að hann var með hausinn fullan af óram. Og svo var hann trú- gjarn, að sumum þótti unun að ljúga að hon- um.

x

Baldur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.