Baldur - 23.12.1952, Page 9

Baldur - 23.12.1952, Page 9
BALDUR 9 í Norðurfara, þá hafi þeir svarað óvininn af höndum sér, svo að hann geti minnst þeirra sem uppbyggilegra máttarstólpa félagsins, en ekki eins og rotna trésins, sem engan ávöxt bar“. tlr Vestur-fsafjarðarsýslu 31/7 1880. „ ... Vöruverð er hér hið versta í saman- burði við undanfarin ár; kaupmenn bjóða enn- þá ekki nema 45 kr. fyrir saltfisk, 34 kr. í hákarlslýsi og 75—70 aura í ull, 32 kr. smá- fisk, 24 kr. Ýsu. Verð á útlendri vöru er hér- umbil sama og hjá ykkur nyrðra. Margir vona að þeir muni bæta sig og fiskurinn komist í 50 kr. og ullin stígi að mun. Isfirðingar þurfa jafnan langan tíma til að ákveða prísana, og stendur grautargerðin oftast yfir fram í ágúst. Kaupmenn, sem ekki eru búsettir á ísafirði, Ijúka ekki upp sínum munni fyrr en herrarn- ir í höfuðstaðnum hafa fullsoðið prísana, því að það væri synd að segja að verzlunarkeppni væri hér vestra. Fundur sá, er ég minntist á í bréfi mínu af 27. maí, var því miður ekki fjölsóttur, þó var þar tekið til umræðu eftir óskum ísfirðinga, að reyna að koma á alþýðuskóla, sem átti að standa á Rafnseyri í minningu Jóns sál. Sig- urðssonar, og var öllum það áhugamál, sem sjá má af því, að þegar komu samskot úr ein- um hreppi hér um bil 900 kr., og má þó full- yrða, að úr þeim sama bætist töluvert við. Samskotum úr sýslunni á að vera lokið fyrir 18. sept., því að þá verður haldinn almennur sýslufundur til að taka einhverja ályktun i þessu mikilsvarðandi málefni, Vér erum sann- færðir um, að vér með engu getum betur heiðrað minningu hins ástkæra alþingismanns vors, en ef vér getum komið alþýðuskóla á stofn í minningu hans, því hann sýndi bæði í ræðu og riti, hve mjög alþýðumenntun lá honum á hjarta, og þetta ætti ekki að vera oss ofvaxið fyrirtæki, ef vér höfum eindreginn vilja, því jafnframt og vér reisum skóla í minningu hins látna þjóðskörungs vors, þá mun sjálfum oss og niðjum vorum ekkert verða fremur til blessunar, því að það er viður- kennt um allan hinn menntaða heim, að al- þýðumenntunin sé hið nauðsynlegasta skil- yrði fyrir hvert þjóðfélag, til þess að geta náð sem mestum þroska og framförum í öllum greinum, því skyldi oss þá ekki vera það lífs- nauðsyn að afla oss sem mestrar þekkingar í öllu vísindalegu og verklegu, sem oss er frekast unnt, oss, sem búum á þessum út- kjálka landsins, og enga stofnun höfum, hvorki fyrir unga né gamla, að fráteknum einum barnaskóla. Kæru sýslubræður! verum ótrauðir, höfum samheldni, leggi hver af mörkum, sem honum er mögulegt, það mun oss ekki yðra, að koma skóla þessum á stofn, það mun verða oss og niðjum vorum affarar sælla heldur en vér offrum vorum versta af- guði, vínfjandanum, svo hundruðum króna skiptir á ári“. Úr lsafjarðarsýslu 30/3 1881. „Það hörmulega slys vildi til 10. f.m., að áttæringi hvolfdi á uppsiglingu úr hákarla- legu, skipið var frá Hólum í Dýrafirði. Skips- höfnin öll, að einum undanskildum, komst á kjöl, svo vildi heppilega til, að hinn mikli afla- og dugnaðarmaður Andrés Pétursson var á uppsiglingu og gat hann bjargað 6 af mönn- unum, en tveir voru famir af kilinum, þegar hann kom að. Formaðurinn, Stefán Guðmunds son, og tveir aðrir, druknuðu, allir voru þeir ungir og efnilegir menn. Dagana 30. og 31. dundi ofsa veður yfir Vestfirði, alls staðar, sem til hefur spurzt. Þá tók upp af sléttum velli nýja, og að öllu vandaða, timburkirkju að Núpi í Dýrafirði, sem óðalsbóndi herra Guðmundur Bjamason lét byggja fyrir fjór- um ámm, í henni vom ýmsir munir, sem að öllu em tapaðir. Kirkjan má heita öll svo mulin í sundur, að það litla, sem af henni hef- ur fundist, er að litlu nýtt. Kirkjan skuldaði fjárhaldsmanni sínum nálægt 1000 kr., sem engin von er til að endurgjaldist, því sóknin er fámenn og tíundir lágar, svo ekki er ætíð hagur fyrir einstaka menn, að hafa umráð yfir fé kirkna Túnið á Núpi hefur fengið stór- skemmdir af möl og grjóti, sem vindurinn hefur borið yfir það, svo það kemst ekki í samt lag, sem það áður var, nema með ærn- um kostnaði, eins stórkostleg eyðilegging hefur ekki dunið yfir Núp, síðan hann byggð- ist. 1 sama veðri tók upp áttæring og sex- æring hjá herra Gísla Oddsyni á Loðskinnu- hömmm og 12 tylftir af borðum, allt brotið í mjöl, skaðinn mun nema um 1000 krónum. Víða hefur frézt að brotnað hafi skip og skemmdir á jörðum meiri og minni. Veður þetta mun lengi minnisstætt hér vestra og yfirhöfuð þessi vetur“. í öðmm fréttabréfum frá þessum tíma, er veðurs þessa einnig getið, t.d. segir í einu: „Þá tók upp áttæring með stórviðum á, á bæ einum á Rauðasandi, lyfti veðrið horium upp yfir hús eða hey og braut hann í spón, er hann kom niður hinsvegar. Annað skip (eða bát) tók veðrið upp á bæ einum á Suðurfjörð- um (við Amarfjörð) og sást eigi eftir af hon- um annað en kjölurinn“. Bréf úr Dýrafirði 1. jan. 1881. .....Lítið heyrist nú minnst á skólann, sem þeir hafa verið að tala um að stofna á Rafnseyri til minningar um Jón heitinn Sig- urðsson, og er það mál líklega sofnað svefnin- um langa, sem hefur engan draum...“ (Bréfakaflar þessir eru úr blaðinu Norður- fari, sem kom út á Akureyri 1860—1885). Á tímabilinu, sem bréfin ná til, kom ekkert blað út hér vestanlands. Þau eru því allmerki- leg heimild í sögu Vestfjarða á þessum árum). '■■liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiii HÁTIÐ AMESSUR: | Isafjörður: | Aðfangadagskvöld kl. 8. Jóladag kl. 2 e.h. Á Sjúkrahús- | inu kl. 3 e.h. Sunnudaginn milli jóla og ný- 1 | árs: Barnamessa kl. 11 f.h. . | | Gamlárskvöld kl. 8 e.h. | Nýársdag kl. 2 e.h. | | Sunnudaginn eftir nýár: Elli- | heimilinu kl. 2 e.h. Hnífsdalur: Aðfangadagskvöld kl. 6 e.h. Annan jóladag kl. 2 e.h. 1 | Gamlárskvöld kl. 10 e.h. | llllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll 'JIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIillllllllllliUIHIIHIH, llllllil, lilllUI,111(1,11,1!,Il„l„l„l„ Jólabækur Vestfirðinga Úr blámóðu aldanna 15 sagnaþættir skráðir af Guðmundi Gíslasyni Hagalín. Göngur og réttir IV. bindi Birtir meðal annars fróðlegar og skemmtilegar frásagnir af fjárleitum á Vestfjörðum. NORÐRI lill„l„l„l„l„l„■„l„l„■„l„l„llll„l„l„l„l„llll„■„■„l„■„l„l„l„l„■lll„l„l„l„■„l„l„l„llll„l„l„l„lll■„l„l„l„l„l„l„l„l„l„l„■„l„l„l„lml„llll„l„llll„l„l„l„l„ll'

x

Baldur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.