Baldur - 23.12.1952, Side 10
10
BALDUR
Tílkynníng
frá Bókaverzlun Jónasar Tómassonar, Isafirði.
Það tilkynnist hér með að frá 1. janúar 1953 hefi |
ég selt Gunnlaugi Jónassyni verzlun mína á ísafirði
og tekur hann frá þeim tíma við öllum skuldum |
hennar og innstæðum, |
ll_llll!lllllllllll]lllllllll!lllllllllllll|[|llll]llllll|llllllMIIIII]lll||||ll||l||l|l||||||||||||III|||||||||||||||l|||ll]l||||||||1|||l|1||||„ll1ll||l|nait
Frá bankaútibúunum
Frá þeim tíma tekur hann einnig við umboði því,
sem ég hefi haft fyrir Bóksalafélag Islands og
Happdrætti Háskóla Islands.
Jafnframt því að tilkynna þetta, vil ég nota tæki-
færið og þakka öllum viðskiptavinum mínum nær
og f jær áratuga greið viðskipti og góð skil. Vona ég
að Gunnlaugur, sonur minn, njóti í framtíðinni
slíkra vinsemda, sem ég hefi notið hjá viðskipta-
mönnum mínum.
Isafirði, 15. desember 1952
JÓNAS TÓMASSON.
Eins og sjá má á ofanritaðri auglýsingu hefi ég
keypt Bókaverzlun Jónasar Tómassonar frá 1. jan-
úar n.k., og mun frá þeim tíma reka hana á eigin
ábyrgð en undir sama nafni og áður.
Vona ég að verzlunin njóti áfram sama trausts
og vinsælda sem ávalt hingað til og mun ég leitast
við að hafa á boðstólum öll venjuleg ritföng og
skólavörur, auk innlendra og erlendra bóka og
blaða.
Engin afgreiðsla í almennum sparisjóðsbókum eftir
lokun miðvikudaginn 24. desember n.k., þar til
2. janúar 1953.
■■ —
i —
| | CTVEGSBANKI ÍSLANDS H.F.
I I útibúið á Isafirði.
LANDSBANKI ISLANDS
útibúið á lsafirði.
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
ísafirði, 15. desember 1952
GUNNLAUGUR JÓNASSON.
(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBii
<iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiIiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiiii
Iðgjöld til Sjúkrasamlags Eyrarhrepps hækka í |
| kr. 25,00 á mánuði, frá 1. janúar 1953. |
Þeir sjúkrasamlagsmeðlimir sem ætla að skipta |
| um heimilislækni þurfa að tilkynna gjaldkera það |
| fyrir 10. janúar 1953. Einnig þurfa þeir, sem ekki |
| hafa vaiið sér heimilislækni áður, að gera það fyrir |
| sama tíma. |
| Stjórnin. |
III llllllllllllllllllllllllllllllllllllll lllllllllllllll llllllllll lllilllllllllll lllillllllllll ■lllllllllllllllllllllllllllll llllllllllllllllllllllllllllMIIIII
ERLENDUR SÝSLUMAÐUR.
Framh. af 7. síðu.
endanna, Erlends og Mörtu, í fjör-
unni í Vigur morguninn 29. des-
ember 1857, hlökkun þeirra til
bráðra endurfunda og væntanlegr-
ar sameiningar í hjónaband, og
svo hinsvegar þá köldu sæng, sem
bóndaefninu var búin í skauti Isa-
fjarðardjúps þennan sama dag,
kemur mér í hug þetta stef eftir
Matthías:
Svo örstutt er bil milli blíðu og
hels,
svo brugðizt getur lánið frá
morgni til kvelds.
Marta Kristjánsdóttir í Vigur
giftist tvívegis. Hið fyrra sinnið
Sumarliða Sumarliðasyni, gull-
smið, sem síðar var kenndur við
Æðey, og bjuggu þau í Vigur.
Eignuðust þau einn son og var
hann skírður Erlendur. Þau Sum-
arliði og Marta skildu. 1 annað
sinn giftist hún Jóni Árnasyni,
ættuðum úr Breiðafirði. Áttu þau
heimili í svonefndum Fótartröð-
um í Folafæti. Þeim varð barna
auðið.
Marta andaðist hér. á ísafirði
15. maí 1900. Hennar lífssaga varð
harmsaga, en ekki verður hún sögð
að sinni.
óli Ketilsson.
Sigurður Breiðfjörð
Framhald af 5. síðu.
auk þess var í umsjá og undir stjórn ná-
frænda hans, er hafði styrkt hann til beykis-
námsins, og var í eigu vinar hans og velgerð-
armanns, Áma ólafssonar Thorlaciusar, er
hann síðar dvaldi löngum hjá í Stykkishólmi?
Er ósennilegt að gizka á, að þeir Ámi og Bogi
hafi reynt að sjá Sigurði fyrir vinnu að beyk-
isnáminu loknu? Þótt ekki væri öðru til að
dreifa en þessum nánu tengslum Sigurðar við
yfirmann og eigendur Thorlaciusarverzlan-
anna, sem að framan getur, mundi hiklaust
mega álykta, að Sigurður hefði orðið starfs-
maður Hæstakaupstaðarverzlunarinnar frem-
ur en nokkurrar annarrar verzlunar á Isafirði.
En það, sem tekur af öll tvímæli um þetta,
eru orð Gísla Konráðssonar í ævisögu Sig-
urðar. Hann segir svo: „En út kom hann
(þ.e. Sig. Breiðfjörð) á verzlunarskipi í ísa-
fjörð til Jóns gamla faktors Jónssonar frá
Reykjahólum, er þá var í þjónustu Thorlacius-
ar stórkaupmanns". Þarf þá ekki frekar vitn-
anna við. Hér er skýmm og ótvíræðum orð-
um sagt til hverra Sigurður Breiðfjörð fór til
starfa, er hann kom hingað árið 1818, sem sé
til Hæstakaupstaðarverzlunarinnar.
Sigurður Breiðfjörð hefir því ekki verið
„kóngshöndlunarbeykir" við Neðstakaupstað-
arverzlun á Isafirði. Því er engin leið, að
benda nú á þau hús, sem hann vann og bjó í.
Segja má, að það sé reyndar ekkert megin-
atriði í sögu Sigurðar Breiðfjörð hvort hann
vann heldur við þessa verzlunina eða hina,
þegar hann var hér á ísafirði. En skylt er að
hafa það sem réttast er í hverri grein. Og
óþarft er að nota nafn Sigurðar Breiðfjörð að
ófyrirsynju til þess að varpa ljóma á gömlu
verzlunarhúsin í Neðstakaupstaðnum. Þeim er
nægileg sú virðing, sem aldur þeirra skapar
þeim.
óli Ketilsson.