Baldur - 17.06.1953, Blaðsíða 4

Baldur - 17.06.1953, Blaðsíða 4
BALPUR Eggert Lárusson, Bolungarvík: Erindi, sem aldrei var flutt. Andlát. Gunnar Þorsteinsson, klæðskera- meistari, andaðist á heimili tengda foreldra sinna í Reykjavík 4. þ.m. Jarðarför hans fór fram frá tsa- fjarðarkirkju í gær, 16. þ.m., að viðstöddu fjölmenni. Séra Ingólf- ur Ástmarsson, sóknarprestur að Mosfelli í Grímsnesi, flutti hús- kveðju og mælti blessunarorð yf- ir hinum látna, áður en hann var borinn til grafar, en sóknarprestur séra Sigurður Kristjánsson flutti líkræðu og jarðsöng. Þessa mæta manns verður nánar getið síðar hér í blaðinu. Jón Auðunn Jónsson, fyrv. al- þingismaður, andaðist í Reykja- vík 6. júní s.l. tæpra 75 ára að aldri. -- t Húsmæðraskólanum ósk var sagt upp 10. þ.m. Skólinn var, eins og venjulega, fullskipaður í vetur. Nokkru fyrir skólaslit var opin fyrir almenning sýning á munum þeim, sem námsmeyjar höfðu gert í vetur. Skólastjórinn, fröken Þorbjörg Bjarnadóttir, sleit skólanum með ágætri ræðu og ein af námsmeyj- um þakkaði skólastjóra og kennur- um fyrir hönd nemenda og afhenti skólanum útvarpstæki að gjöf frá þeim. Við þetta tækifæri afhenti frú Elín Jónsdóttir, ljósmóðir, ^skólan- um að gjöf mynd af fyrsta skóla- stjóra skólans, frú Fjólu Stefáns- dóttur Fjelsted. Gjöfin var frá námsmeyjum á fyrsta námskeiði skólans, en þær voru 12, eru allar á lífi og áttu á þessu ári 40 ára námsafmæli. Af gestum tóku til máls frú Hólmfríður Jónsdóttirí magister, Ásberg Sigurðsson, form. skóla- nefndar, og frú Sigríður Jónsdótt- ir, kaupmaður. --------O--------- GUÐNÝ BJÖRNSDÓTTIR. Framhald af 3. síðu. Við húskveðjuna var litla dótt- irin skírð hjá kistu móður sinnar og hlaut nafn hennar^ Guðný Margrét. Lík Guðnýjar var flutt til Reykjav. til greftrunar og jarðsungið frá Fossvogskirkju 12. þ.m. að við- stöddu fjölmenni. Þeirri athöfn var útvarpað. Minning Guðnýjar Björnsdóttur er hugljúf öllum, sem þekktu hana. Henni fylgdi ekkert annað en gleði og gæði hvar sem hún fór. Við andlát hennar er þungur harmur kveðinn af ættingjum hennar og vinum, en sárust er sorg eiginmannsins, sem misst GÓÐIR FÉLAGAR! Það var engin tilviljun að frí- dagur verkamanna var valinn á þeim árstíma, sem öll náttúran á norðurhveli hnattar vors er að losna úr spennitreyju vetrarins og búast til þjónustu lífsins og ljóss- ins. Það var hliðstætt verkalýð ýmsra landa, sem byrjaður var að losa sig úr spennitreyju auðvalds- ins. í hvaða tilgangi var dagurinn valinn? — Sá tilgangur var marg þættur. hefur ástríkan lífsförunaut eftir gleðiríka en alltof stutta sam búð og litlu stúlkunnar, sem ekki auðnaðist að njóta kærleika og um- hyggju móður sinnar, og við, sem Guðnýju þekktum, vitum hve mik- ið það barn hefur misst. Vonandi verður þessi litla stúlka í fyrsta lagi átti hann sam- kvæmt kjörorðinu, „öreigar allra landa sameinist“ að vera samein- ingartákn og áminning til fólksins um að gjöra það að veruleika. í öðru lagi eiga menn að koma sam- an, líta yfir farin veg og búa sig undir það, sem framundan er. 1 þriðja lagi lyfta sér upp frá önn hversdagslífsins með sameiginleg- um gleðskap. Nú langar mig til að fara örfá- um orðum um annan lið þessarar upptalningar. föður sínum til gleði og ánægju og ásamt minningunni um ástríka móður hennar sólargeisla hans á lífsleiðinni. Ég þakka Guðnýju Bjömsdóttur ánægjulegar samverustundir. Blessuð sé minning hennar. Halldór ólafsson. Er þá íyrst að harma það ó- gæfuspor, sem stígið var, þegar verkafólk hér á landi afhenti auð- valdinu völdin í aðalsamtökum sínum og í mörgum félögum innan þeirra. Og það er kaldhæðni ör- laganna að Alþýðuflokksmenn áttu alla sök á því óhappi og afleiðing- um þess, sem nú eru öllum Ijósar og enn ekki séð fyrir endan á. Komi til þess að núverandi stjórn haldi völdum eftir kosningar er víst, að herskylda verður lögleidd, það er leyft í stjórnarskránni. En sá her verður aldrei notaður til annars en að halda verkafólki nægilega nálægt sultarstiginu, svo að. það verði nægilega auð- sveipt til að mala gull fyrir þá háu herra, sem njóta ávaxtanna af vinnu þess. Það er ein leið til að veita þess- ari stjórn hvíld frá störfum og hún er mjög auðfarin. Leiðin er sú, að allir vinnandi menn og kon- ur á landinu taki höndum saman og kjósi til þingsetu þá menn eina, sem öruggt er að vinni að hagsmunum þeirra. Og það merki- lega hefur skeð, að hér á íslandi er starfandi einn stjórnmálaflokkur, Sameiningarflokkur alþýðu — Sós- íalistaflokkurinn, sem aldrei hefur brugðist verkafólki í baráttu þess við auðvaldið. Um þennan flokk þarf verkalýð- urinn að fylkja sér og gera hlut hans sem mestan. --------0-------- 17. j úní. Eins og að undanförnu verður Þjóðhátíðardagurinn 17. júní hald- inn hátíðlegur hér á Isafirði. Það er bæjarstjórnin sem sér um hátíðahöldin og allan undirbún- ing þeirra. Til skemmtunar verð- ur: Ræður, söngur, hópganga skáta og íþróttamanna, íþrótta- keppni, s.s. handknattleikur, knatt- spyrna o.fl. Að lokum verða svo dansleikir í samkomuhúsum bæjarins. Allur ágóði af deginum rennur til bygg- ingar Elliheimilis. ------7-0-------- Framboðsfundir á ísafirði. Framboðsfundir á Isafirði hafa verið ákveðnir fimmtudaginn 18. júní og mánudaginn 22. júní. Fundirnir verða í Alþýðuhúsinu og mun þeim verða útvarpað. --------O-------- GJAFIR til björgunarsjóðs Vestfjarða: Frá N.N. kr. 100,00; frá ó- néfndri konu kr. 1000,00; minn- ingargjöf um Kristján Þorsteins- son, ísaf, frá Guðm. Guðmunds- syni, skipstjóri, kr. 100,00; frá ónefndri konu kr. 100,00; frá ó- nefndum gömlum sjómanni kr. 50, 00. Samtals kr. 1350,00. Kærar þakkir. — Kr. Kristjáns- son, Sólgötu 2, Isafirði. Bændúr gegn bandarískum her 1 maímánuði s.l. gerðust þau tíðindi að bandaríski her- inn rændi löndum bænda á Vatnsleysuströnd með sam- þykki Guðmundar I. Guðmundssonar, hernámsstjóra og frambjóðanda Alþýðuflokksins í Gullbringu- og Kjósar- sýslu, hóf þar skotæfingar og aðra eyðileggingaraðgerðir. Bændur undu þessu ráni illa, sem von var, og sendu Bjarna Benediktssyni og Guðmundi hernámsstjóra, efir- farandi mótmæli. , Við undirritaðir landeigendur í Vatnsleysustrandar- hreppi bönnum hér með stranglega allar hernaðaraðgerð- ir, þar með taldar skotæfingar og umferð erlendra herja um lönd okkar. Við mótmælum þeim aðgerðum sem þar hafa fram farið og þeirri ósvífni að leyfa slíkt að oss forspurðum. Við krefjumst fullra skaðabóta fyrir öll spjöll, óþægindi og tjón sem við höfum orðið fvrir og kunnum að verða af völdum skotæfinga og að þeir menn sem leyft hafa þessar aðgerðir í heimildarleysi voru verði látnir sæta þeirri þyngstu refsingu sem lög leyfa að beitt sé gegn land- ræningjum. Vatnsleysustrandarhreppi, Gullbringusýslu, 25. maí 1953“. Mótmæli þessi voru undirrituð af 14 bændum eða þeim öllum, sem orðið höfðu fyrir ásælni hins erlenda hers. Árangurinn varð líka sá, að skotæfingarnar hættu og bændur fengu aftur fullt umráð yfir jörðum sínum. Þessi einarðlegu og ákveðnu mótmæli Vatnsleysustrand- arbænda og sá árangur, sem með þeim náðist, er stærsti sigurinn í baráttunni gegn her í landi. Með því er sýnt að jafnvel hinn erlendi her og innlendir skósveinar hans láta undan einhuga samtökum almennings. Islendingar geta, ef þeir eru nægilega einhuga og sam- taka um það, hrakið erlenda herinn af höndum sér.

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.