Baldur - 31.07.1957, Síða 2

Baldur - 31.07.1957, Síða 2
2 B A L D U R r,~- ■ —^ ju’ih 70 áium.... i>tt«»i«iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii:iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii s Útgefendur: Sósíalistafélögin á Vestfjörðum. | - Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Ólafsson. 1 5 S ;; Árgangurinn kostar kr. 20.00. Gjalddagi 1. júIL | g Lausasöluverð 1.00 króna. g s = M m Niiiaiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiuaiiiiiaiiliiaiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiaiiiiiiiiaiiaiiaiiaiiiiiaiiiiiaiiiiiiiiiiianaiiiiiaiiaiiaiiiiiaiiaiiaii Vinur vestræns lýðræðis S. L. FÖSTUDAG gerðist sá at- burður í einu ríki Mið-Ameríku, Guatemala, að forseti landsins, Castillo Armas, var myrtur í for- setahöllinni af einum lífvarða sinna. Mbrðinginn stytti sér aldur, undireins og hann hafði framið ódæðið. ÚT AF FYRIR SIG er þessi morðsaga 'ekki umtalsverðari en aðrar slíkar. En ástæðan til þess, að hennar er getið hér, eru þau ummæli, sem höfð voru eftir Eis- enhower forseta Bandaríkjanna, að hinn myrti maður hafi verið sérstakur vinur og stuðningsmað- ur vestræns lýðræðis, og því sé að honum mikil eftirsjón. ÞAÐ MÆTTI HALDA, að mað- ur, sem fær slík eftirmæli frá æðsta manni jafn víðkunnrar lýð- ræðisþjóðar og Bandaríkjamanna, hafi haft meira en lítið til síns ágætis, að þar hafi veriö um að ræða sannan framkvæmanda lýð- ræðis og mannréttinda. Þessi lof- legu ummæli forsetans gefa því til- efni til að rifja upp hvernig þessi lýðræðisvinur framkvæmdi hug- sjónir vestræns lýðræðis. ÁRIÐ 1954 sat að völdum í Guatemala frjálslynd og umbóta- sinnuð lýðræðisstjórn. Hún hafði m. a. tekið land af auðugum stór- jarðeigendum og skipt því milli jarðnæðislausra bænda. Þessi ráð- stöfun kom sérstaklega illa við bandaríska auðhringinn United Fruit, sem átti þarna stór land- flæmi og var einskonar Bogesen, sem öllu réði. Þessi auðhringur fékk nágranna- ríki Guatemala, Honduras, til að gera innrás í landið. Sú innrás hófst 20. júní 1954, og henni lauk eftir fárra daga harða viðureign, með algerðum ósigri lýðræðis- stjórnar Guatemala. Forseti þeirr- ar stjórnar, Jacob Arbenz, flúði land og innrásarherinn, undir stjóm Castillo Armas, réði þar lögum og lofum. HÓFST ÞÁ í landinu blóðidrif- in hvít ógnaröld, fjöldahandtökur og fjöldamorð. Þingið var leyst upp, þeim, sem voru í vitorði með innrásarhemum, þ. e. a. s. föður- landssvikurum, gefnar upp sakir, en lýðræðissinnar hundeltir, hand- teknir og myrtir hvar sem til þeirra náðist. Jarðir, sem lýðræðis- stjói’nin hafði afhent bændum, voru fengnar fyrri eigendum. Saga þeirra átaka, sem fram fóru í Guatemala þessa júnídaga, verður ekki sögð hér. Þjóðin varð- ist innrásinni af mikilli hreysti, og það var ekki fyrr en herforingjar landsins frömdu stjórnlagarof og stofnuðu stjórn, sem brátt féll þó fyrir innrásarhernum, að fullur sigur vannst á lýðræðisstjórninni. Það voru svik innan frá sem úr- slitum réðu. ÞETTA ER í stuttu máli saga þessa „vinar vestræns lýðræðis“, sem forseti Bandaríkjanna kallaði svo. Á þennan hátt álítur einn kunnasti forustumaður lýðræðis- þjóðar að framkvæma eigi hugsjón þess lýðræöis, sem vestrænar þjóð- ir státa nú mest af, og telur þann mann, er það gerir, sérstaklega lofsverðan. Sjálfsagt er bandaríski auðhringurinn United Fruit og aðrir af sama sauðahúsi honum sammála. I eyrum flestra annara hljóma þessi lofsyrði forsetans um valdaræningja og einræðisherra Guatemala sem örgustu öfugmæli, og ekki geta þau talist komplement fyrir vestrænt lýðræði. —0O0— I boði F. I. Framhald af 1. síðu. þessum stað. Félagið nýtur þarna vaxandi trausts og álits, flugvélar þess eru mjög eftirsóttar, einkum nýju Vxscount-vélarnar, og það er íullkomlega samkeppnisfært við önnur liliðstæð flugfélög. Eftir stundardvöl á skrifstof- unni, var farið til eins bezta greiðasölustaðar í borginni, Hótel Vivax, og sest þar að veizluborði. Meðan setið var undir borðum, voru nokkrar ræður fluttar, en að máltíð lokinni var farið í Tívolí, þessi fagri skemmtistaður Kaup- mannahafnarb'úa skoðaður og horft á ýms skemmtiatriði, sem þar voru á boðstólum. Að því búnu var gengið heim í gistihúsið, lá þá leiðin u i. Strikið, eina fjölfömustu götu Kaupmannahafnar, þar sem margir landar hafa átt leið um bæði fyrr og síðar. Þegar til gisti- hússins kom, fór hver til síns her- bergis og tók á sig náðir, eftir við- burðaríkan og skemmtilegan dag Framhald. Júní 1887. VEÐURBLIÐA 1 DAGSTÆÐAR ÞRJÁR VIKUR: — I bréfi frá Djúpinu dagsettu 18. mánaðarins, en birt í Þjóðviljanum þann 27., segir frá veðurblíðu í dagstæðar þrjár vikur, góðu útliti með gras- vöxt og betri fiskafla á vorvertíð en elztu menn muna. SKIPVERJAR YFIRGÁFU SKIP- IÐ: — Seint í mánuðinum lenti há- karlaskipið Guðrún, eign L. A. Snorrasonar og Hjálmars Jónsson- ar, í hafís; skipverjar óttuðust að skipið mundi liöast í sundur, yfir- gáfu það á skipsbátnum og hittu litlu síðar franska fiskiskútu, sem kom með þá til ísafjarðar þann 25. Sögðu skipverjar á Guðrúnu gífurlegar sögur af hættunni, sem þeir töldu sig hafa verið stadda í, skipið var, að sögn þeirra, rétt að sökkva, stór skemmt af ísnum, kolblár sjór féll inn í það o. s. frv. AMTRÁÐSFUNDUR fyrir vest- uramtið var haldinn að Bæ í Hrútafirði 20.—22. dag mánaðar- ins. Þar var m. a. samþykkt: Að veita búnaðarskólanum í ólafsdal 4080 kr. styrk og að mæla með 1000 ~kr. styrk úr landssjóði til forstöðumanns hans, Torfa Bjarnasonar, til að bæta húsakynni skólans. Sýslunefnd ísafjarðarsýslu veitt leyfti til að taka 6000 kr. lán til kaupa á gufubáti. Leyft að stofna lögferjur við Arnarfjörð, Dýrafjörð, önundar- fjörð, Skutulsfjörð og Jökulfirði. Mýrahreppur í Dýrafirði gerður að sérstöku yfirsetukonuhéraði og nýtt yfirsetukonuhérað ákveðið frá Hælavíkurófæru í Sléttuhreppi yf- ir Strandir að Geirhólmi. Mælt með að Barðastrandarsýslu verði skipt ’í tvö sýslufélög. HVALVEIÐIFÉLAGIÐ á Lang- eyri hafði fengið 17 hvali um mán- aðamótin júní og júlí, eða nær helmingi fleiri en um sama leyti árið áður. Félagið hafði tvo gufu- báta til hvalveiða, Isafold og Reykjavík. Júlí 1887. TÍÐARFAR: — Mestan hluta mánaðarins hélst sama veðurblíð- an og í júní, en undir mánaðarlok- inn brá til kuldatíðar og fennti í fjöll. Þann 28. breytti þó aftur til batnaðar. Hafís var mjög nærri landi seinni hluta mánaðarins og teppti nær því siglingar fyrir Horn. ÚR ÖNUNDARFIRÐI var skrif- að 2. dag mánaðarins: „Gras- spretta með bezta móti. Fiskafli einnig talsverður. Áhugi manna á þjóðmálum sáralítill síðan félag vor önfirðinga leið undir lok. Hér er mest talað um niðursetningu 'J þurfamanna, náungakrit 0. fl. þesskonar. Ekki entumst vér Ön- firðingar til að senda þingi bæna- skrá um aukalækni, og er þó marg- sannað, að hans er bráð þörf. Al- menna fundi sækjum vér enda mið- ur en kirkjuna. Ef eitthvað er til- rætt um stjórnmálaefni, láta ýmsir málsmetandi menn í ljós, að Island eigi helzt að vera lýðveldi; að al- ríkiseiningunni verður mörgum að brosa, er þeir líta á hugsmuni þá, er ísland hefur af henni. Um verzl- unarprísa heyrist enn lítið; von- andi að vöruverð verði tiltölulega skárra en í fyrra.“ SKIPAKOMUR. Laura kom til ísaf jarðar frá Reykjavík aðafara- nótt þess 4. Meðal farþega: Þor- valdur kennari Thoroddsen, sem ferðaðist þetta sumar um Isafjarð- arsýslu til náttúrufræðirannsókna, og séra Matthías Jochumsson á leið til Akureyrar með fjölskyldu sína. Gufuskipið Camoens kom frá Rvík þann 9. og fór aftur samdæg- urs með yfir 100 vesturfara. Sama skip kom hér aftur þann 26., ætl- aði þá til Sauðárkróks að sækja vesturfara, en varð að snúa aftur og leita hingað. Skipið hélt áfram norður þann 28. Thyra kom að norðan að kvöldi hins 25. Hafði getað smogið fram hjá Horni, en lenti þó þrisvar í ís. HÁKARLASKIPIÐ GUÐRÚN, sem getið er hér að framan, kom aftur við sögu í þessum mánuði. Selveiðiskipið Mjölnir fann hana í ísnum og kom með hana til ísa- fjarðar þann 17. Var hún þá þétt og alveg ósködduð, enginn sjó- dropi hafði komið í skipið og það hafði ekki hreyfst meira en svo, að kaffibollar stóðu fullir á káetu- borðinu. Um þetta atvik sagði Þjóðvilj- inn: „Það er hætt við að sumir fari að gamna sér yfir hugrekki og sjómennsku ísfirðinga, ef svona tekst oft til; í fyrra kom alveg sama fyrir með skipið „Ane Sophe“. Skipstjórar voru í hvoru- tveggja skiptið ólærðir sjómenn, og hefUr ótrúleg hræðsla gripið þá, er þeir sáu ísjakana. Á Guðrúnu var kostur fyrirliggjandi til fleiri vikna.“ HÁKARLASKIPIN höfðu fyrri- hluta mánaðarins lagt á land 1200 tunnur lifrar, þar af á Flateyri 885 tn., á ísafirði 195 tn. og á Dýra- firði 120 tn. Afli þessi var feng- inn á 11 skip, voru tvö þau afla- hæstu með 180 tunnur hvort. Til þriggja hafði ekki spurst síðan á sumarmálum, og var óttast um að þau væru farin eða að einhverju leyti hindruð. - VÖRUVERÐ á ísafirði, var í lok mánaðarins sem hér segir:

x

Baldur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.