Baldur - 31.07.1957, Blaðsíða 3

Baldur - 31.07.1957, Blaðsíða 3
B A L D U R 3 F. I. 20 ára. Framhald af 1. síðu. sem áður eru nefndir, er nú flogið til Stokkhólms og Hamborgar. F. í. getur nú boðið upp á fleiri og skjótari ferðir milli Islands og út- landa en nokkru sinni áður. T. d. hafa í sumar verið farnar 9 ferð- ir á viku milli íslands og 5 staða erlendis. Þá má nefna flugferðir F. í. til Grænlands, en þær hófust í júlí- mánuði 1950. Síðan hefur verið flogið þangað meira en 300 sinn- um, og auk þess fjölmargar ferð- ir milli Danmerkur og Grænlands með viðkomu í Reykjavík. Merkasti og umfangsmesti þátt- urinn í starfsemi félagsins frá upphafi eru flugsamgöngurnar innanlands. Á því sviði hefur þró- unin verið þessi: Árið 1938 770 farþegar, 1945 7080 farþegar, 1947 13376 farþegar, 1948 23980 far- þegar og s.l. ár 54850 farþegar. Flogið er að jafnaði til 20 staða á landinu samkvæmt áætlun að sumri til. Umboðsmenn eða skrif- stofur félagsins eru á fjölmörgum stöðum utan Reykjavíkur og í þjónustu þess vinna nú um 220 manns. F. I. hefur einnig skrifstofur í Glasgow, Hamborg, Kaupmanna- höfn, Lundúnum og Osló. Eru skrifstofur þessar oft og tíðum nokkurskonar „sendiráð" íslend- inga, sem staddir eru erlendis, enda veita þær hina margvísleg- ustu fyrirgreiðslu. Frá upphafi vega hafa flugvélar F. í. flutt samtals 445000 farþega. Auk þeirrar starfsemi, sem að framan getur, hafa flugvélar F. 1. verið leigðar til síldarleitar, land- helgisgæzlu, sjúkraflutninga og myndatöku úr lofti í sambandi við landmælingar. Fyrsti framkvæmdastjóri fé- lagsins og jafnframt fyrsti flug- maður var Agnar Kofoed-Hansen, núverandi flugmálastjóri, en fram- kvæmdastjóri þess síðan í júní 1939 er Örn Ó. Johnson. Síaða varahafnsðgmanns fyrir Isafjarðarkaupstað (jafnframt vélamaður á hafnsögubát) er hér með auglýst til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst n. k. Umsóknir ber að senda hafnarnefnd Isafjarðar. Upplýsingar fást á bæjarskrifstofunni. Isafirði, 23. júlí 1957. Bæjarstjóri. Húseign tll sðln Verkfærahús bæjarins við Hafnarstræti er til sölu til niður- rifs og brottflutnings af staðnum. •— Tilboða er óskað. — Tilboð sendist í lokuðum umslögum, merktum: „Tilboð í verk- færahús". — Tilboðsfrestur er til 15. ágúst n. k. að kvöldi. Húsið verður því aðeins selt á þennan hátt að viðunandi til- boð fáist. ísafirði, 25. júlí 1957. Bæjarstjöri. Innlendar vörur. Málfiskur 38 kr. skpd. (S. H. Bjarnarson borg- aði 40 kr.) Langa 34 kr. skpd. Smáfiskur 32 kr. skpd. Ýsa 28 kr. skpd. Ull 50—60 aurar pundið. Helztu útlendar vörur: Rúgur 16 kr. 200 pd. Mél 18 kr. 200 pd. Bankabygg 25 kr. 200 pd. Kaffi 85 aura pd. Kandíssykur 35 aurar pd. Hvítasykur 30 aurar pd. Kaffi- rót 30—40 aurar pd. Púðursykur 30 aurar pd. Ný Jeppasláttuvél til sölu. — Upplýsingar gefur Friðrik Guðjónsson Vogum Reykjafjarðarhreppi SLÁTTUR byrjað um miðjan mánuðinn. Tún voru fremur vel sprottin, en sumstaðar brennd vegna sífelldra þurrka og hita. Prentstofan ISRÚN h.f., Isafirði L in Vlgefandi Prestafélag Vest- fjarSa. 9. úr, 1957. Lindin, ársrit Prestafélags Vest- fjarða er fyrir nokkru komin út eftir að hafa hvílt sig síðan 1946, en ritið kom fyrst út 1929. Verulegur hluti af efni þessa heftis, eru minningargreinar um presta, sem þjónað hafa á Vest- fjörðum og andast eftir 1946. Prestar þessir eru: Dr. theol. Sigurgeir Sigurðsson, biskup, en um hann er birt minn- ingarræða, er Elías J. Pálsson flutti í ísafjarðarkirkju 15. nóvem- ber 1953. Séra Jónmundur Júlíus Hall- dórsson, sóknarprestur að Stað í Grunnavík. Minningargrein um hann skrifar skólabróðir hans, séra Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason. Séra Böðvar Bjarnason, pró- fastur á Hrafnseyri. Um hann skrifar séra Einar Sturlaugsson, prófastur á Patreksfirði. Þessi minningargrein er með því síðasta er eftir séra Einar liggur, en hann andaðist nokkrum mánuð- um áður en þetta hefti af Lindinni kom út, þar er því minningargrein um hann, eftir séra Jón ísfeld, sóknarprest á Bíldudal. Þá eru minningargreinar um þessa presta: Séra Runólf Magnús Jónsson, Frá bæjarstjórn. Framhald af 4. síðu. artún frá Shellvegi út að fyrirhug- uðu íþróttasvæði. Nýrri götu ofan Hlíðarvegar. Sjávarmegin Sund- strætis sunnan lóðar Norðurtanga h.f. (fjölbýlishús). Iþróttavallar- svæði. núverandi, (fjölbýlishús). Ennfremur tók Gunnlaugur að sér að ræða við íþróttafulltrúa rík- isins um skipulag nýja íþróttavall- arins með umhverfi og að leggja fyrir skipulagsnefnd umsókn séra Sigurðar Kristjánssonar um stað fyrir prestseturshús á landi hins gamla Eyrarprestseturs, eða sem næst því, en séra. Sigurður hefur fyrir nokkru sótt þar um lóð. Nokkur fleiri skipulagsatriði bar á góma í þessum viðræðum og at- hugaði Gunnlaugur þau með lóða- skrárritara. ísfirðingur h.f. færi leyfi til að byggja kælivatnsþró ofan við akkerisvegg hafnarbakkans, sunn- an við hraðfrystihús félagsins, og að leggja sjóleiðslu gegnum stál- þilið í þróna og frá henni inn í hraðfrystihúsið. Þróin verður nið- urgrafin, þak hennar í götuhæð og umferð yfir það áhættulaus. Tryggt verði að sandur skolist ekki út með leiðsluenda í stálþili. din sóknarprest að Stað í Aðalvík, eft- ir séra Jón ólafsson, prófast í Holti. Séra Pál Sigurðsson, sóknarprest í Bolungavík, eftir núverandi sókn- arprest þar, séra Þorberg Krist- jánsson. • Séra Óla Ketilsson, fyrv. sókn- arprest í Ögurþingum, eftir séra Sigurð Kristjánsson, prófast á Isa- firði. Séra Sigurður skrifar einnig minningargrein um Guðmund Jóns- son frá Mosdal. Auk þessara minningargreina, eru í heftinu ræður og ritgerðir um trúarleg efni og kirkjumál, eftir séra Þorberg Kristjánsson, séra Þorstein Björnsson, séra Ein- ar Sturlaugsson og Jónas Tómas- son . tónskáld. Ennfremur tvær þýddar greinar, „Góðir vinir, trú- ir nágrannar", kafli úr bók sænska prestsins, Erik Albins: Sprang gráserna, þýðandi séra Jónmund- ur Halldórsson, og Úr Orthodoxy eftir G. K. Chesterton, þýtt af séra Þorsteini Björnssyni, Reykja- vík. Ennfremur er í ritinu Bæna- sálmur eftir Elías Þórarinsson, Hrauni í Keldudal, fréttir af kirkju- og safnaðarstarfi á Vest- fjörðum og margt fleira. Myndir eru í ritinu af þeim prestum, sem þar eru minningar- greinar um. ---oOo---- Rafveitustjórn hefur synjað beiðni línumanna rafveitunnar um að laun þeirra hækki úr 3. launa- flokki í 2. launaflokk. Vélgæzlumenn við rafstöðina í Engidal benda á, að vegna stækk- unar orkuversins muni vélgæzla við stöðina aukast sem svarar vinnu eins manns. Þeir telja þó ekki fært að bæta fjórða manni við, að óbreyttum aðstæðum, en fara fram á, að áætluðum launum þessa fjórða vélgæzlumanns verði skipt jafnt á milli þeirra frá 1. þ. m., verði þessari aukavinnu bætt við störf þeirra, ennfremur bætist við sumarleyfi þeirra lög- boðnir helgidagar ársins, ellefu að tölu. Málinu var frestað. Birni Jónssyni, Álftafirði, hefur verið byggð jörðin Seljaland í Súðavíkurhreppi með svipuðum kjörum og verið hefur. Veiðirétt- indi fylgja ekki, þar sem þau hafa verið leyfð öðrum. Gísli Kristjánsson, sundhallar- stjóri, fær ársfrí frá 1. september n.k. Ætlar hann að dvelja erlendis í námserinudum. Oddur örnólfsson, Smiðjugötu 4, fær leyfi til að byggja ofan á hús föður síns nr. 14 við Sundstræti. að óbreyttum þeim kvöðum, sem á húsinu hvíla.

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.