Baldur - 31.07.1957, Page 4
Nýir borgarar.
Einar Valur fæddur á Isafirði
9. janúar 1957, skírður 20. júlí
1957. Foreldrar: Hansína Einars-
dóttir, Hri'ífsdal, og Kristján K.
Jónasson, Isafirði.
Höskuldur Heiðar fæddur á Isa-
firði 1. júlí 1957, skírður 21. júlí
s. á. Foreldrar: Hansína Jónsdóttir
og Ásgeir Höskuldsson, Reykja-
vík.
Ari Daníel fæddur á Isafirði 23.
maí 1957, skírður 28. júlí 1957.
Foreldrar: Valgerður Jakobsdótt-
ir og Haukur S. Daníelsson, Isa-
firði.
Hjúskapur.
Þann 20. júlí s.l. voru gefin sam-
an í hjónaband af sóknarpresti,
séra Sigurði Kristjánssyni, ung-
frú María Erla Eiríksdóttir frá
Keflavík og Birgir B. Valdimars-
son, skrifstofumaður, Isafirði.
S.l. laugardag voru gefin saman
í hjónaband í Neskirkju í Reykja-
vík ungfrú Agnes Hallvarðsdóttir
og Karl Aspelund, Isafirði. Séra
Jón Thorarensen, sóknarprestur í
Nessókn, gaf brúðhjónin saman.
Andlát.
Einar Thomsen, verkamaður
hér í bæ, andaðist í Sjúkrahúsi
Isafjarðar 17. júlí s.l. Hann var
fæddur á Blámýrum í ögursveit
16. marz 1880.
Reknetasíld.
Bátar á Suðureyri í Súganda-
firði hafa fengið síld í reknet, allt
að tunnu í net. Er hún sögð ágæt-
lega feit.
Tunnuskip.
* Skip með síldartunnur kom
hingað 30. þ. m. Mun ætlunin að
hér verði söltuð reknetasíld, eins
og gert var s.l. sumar.
Tíðarfar.
S.l. viku og nokkra daga áður,
var einmuna góður þurrkur hér
vestan lands, og gátu bændur hirt
eftir hendinni. Það, sem af er
þessari viku, hefur verið þurrk-
laust og rignt af og til. Á sunnu-
daginn var þó ágætur þerrir.
Síldaraflinn.
S.l. sunnudag höfðu vestfirzku
síldarskipin aflað sem hér segir,
talið í uppmældum tunnum og
málum: Gunnvör 3254, Guðbjörg
3281, Auðbjörn 641, Páll Pálsson
2917, Mímir 2014, Heiðrún 5350,
Einar Hálfdáns 3000, Þorlákur
2350, Hugrún 900, Víkingur 1400,
Trausti 1800, Freyr 1260.
Á plani Samvinnufélags ísfirð-
inga var búið að salta 2100 tunn-
ur.
BALDU 1
★ ★ ★ FRÁ BÆJARSTJÓI - — """" ~ \N'
Vegna till. um unglingavinnu,
sem Matthías Bjarnason flutti og
samþykkt var í bæjarstjórn 20. f.
m. hefur bæjarráð mælst til þess,
að bæjarstjóri í samráði við bæj-
arverkstjóra hlutist til um að
koma nokkrum unglingum í þau
verk, sem bærinn hefur með hönd-
um, og eru þannig vaxin að not
verði að vinnu þeirra. Auglýst
verði eftir unglingum, eftir því
sem verkefni verða fyrir þá.
Byggingarlánasjóður Isafjarð-
arkaupstaðar hefur tekið ríkis-
tryggð skuldabréf til 15 ára með
7% ársvöxtum gild sem handveð
fyrir 70 þús. kr. láni til bygginga-
samvinnufélags sjómanna, gildir
þetta veð þar til félagið getur sett
þær tryggingar, sem kveðið er á
um í reglugerð sjóðsins.
Gunnlaugur Pálsson, arkitekt,
var hér á ferð fyrir nokkru og
ræddi við bygginganefnd um skipu-
lagsmál.
Snerust þær viðræður um skipu-
e '
Þvottapottar
með eldstæði
70 lítra @ kr. 1.638,00
80 — - — 1.700,00
90 — - — 1.868,00
Mjólkurbrúsar
3 lítra @ kr. 73,65
5 — - — 87,00
10 — - — 100,00
20 — - — 238,00
30 — - — 353,00
Bakpokar
Tjöld
Svefnpokar
Kaupfélag fsfirðinga
lag við Norðurtangann sjávarmeg-
in Sundstrætis, framhald Austur-
vegar sömu megin Sundstrætis og
staðsetningu á húsi, sem Norður-
tanginn h.f. sækir um að byggja
þar á eignarlóð sinni. G. P. lagði
til að athugaður verði möguleiki á
því að húsið verði byggt með gafla
að götu, að öll út- og innkeyrsla í
húsið fari fram um þá hlið þess,
sem snýr að Austurvegi, og að suð-
urhlið þess verði ekki fjær lóðar-
mörkum Norðurtanga h.f. en 3 m.
Nefndin var samþykk till. og fól
byggingafulltrúa að ræða hana við
forstjóra Norðurtanga h.f. Umrætt
hús verður úr steinsteypu, 32,6 x
14,95 m. að stærð. í því verður
veiðarfærageymsla, beitingapláss
og freðfiskgeymsla.
Þá bar nefndin fram þá ósk við
Gunnlaug, að gengið verði frá
skipulagi fyrir íbúðarhús á eftir-
greindum svæðum: Gróðrarstöðv-
Framhald á 3. síðu.
----o----
Kennarastoður
Nokkrar kennarastöður hér við
skólann eru nú lausar.
Við barnaskólann vantar skóla-
stjóra í stað Bjöms H. Jónssonar,
kennara í stað frú Jónínu Þór-
hallsdóttur og handavinnukennara
stúlkna, þar sem frú Þorbjörg
Kristjánsdóttir hefur ekki óskað
að halda starfinu áfram, en sú
kennslukona þarf að geta tekið að
sér almenna kennslu.
Við gagnfræðaskólann vantar
matreiðslukennara, þar sem ung-
frú Ásta Sigurðardóttir, sem kennt
hefur matreiðslu við skólann und-
anfama vetur, hefur sagt starfi
sínu lausu.
Við húsmæðraskólann vantar
matreiðslukennara í stað ungfrú
önnu Sigriðar Gísladóttur, sem
sagt hefur upp starfi sínu við skól-
ann, og vefnaðarkennara í stað
frú Guðrúnar Vigfúsdóttur, sem
fær árs leyfi xrá kennslu.
Allar þessar stöður hafa verið
augiýstar lausar til umsóknar.
Fræösluráð hefur lagt til, að
þau Kristín Jóhannesdóttir og
Finnur Finnsson, sem verið hafa
settir kennarar við bamaskólann
s.l. ár, verði skipuð í stöðumar.
1 morgun höfðu 580 synt 200
metrana í Sundhöll ísafjarðar. í
þeim hópi em nokkur 6 ára göm-
ul börn og nokkuð af eldra fólki,
sá elzti er 67 ára, Konráð Jens-
son, veitingamaður.
Það má því segja að yngsta og
elzta kynslóðin ætli ekki að láta
sinn hlut eftir liggja. Aftur á móti
virðist standa frekar á hinum sem
auðveldar eiga með að ljúka þess-
ari keppni. En nú þarf að herða
sóknina. Tíminn líður, og það er
ekki ástæða til að bíða fram á
síðustu stund.
Verzlunarmannafélao
tsafjarðar
Stofnfundur Verzlunarmannafé-
lags- Isafjarðar var haldinn í
Skátaheimilinu á ísafirði föstu-
daginn 26. júlí 1957 kl. sy2 e. h.
1 stjórn félagsins voru kosnir:
Jón Páll Halldórsson, formaður,
Konráð Jakobsson, Haukur Inga-
son, Gunnar Jónsson og Albert
Karl Sanders.
Varastjórn: Olga Ásbergsdóttir
og Steindór Þórisson.
Endurskoðendur: Sigurður Páls-
son og Hörður Þorsteinsson.
Varaendurskoðandi: Jón Karl
Sigurðsson.
Trúnaðarráð: Þorgeir Hjörleifs-
son, Sigurður Pálsson, Hörður
Þorsteinsson, Jón Karl Sigurðsson
og Magðalena Jónsdóttir.
Varamenn: Birgir Valdimarsson
og Hjördís Hjartardóttir.
Isafjörður—Keflavík 1:1
S.l. laugardag léku Isfirðingar
gegn Keflvíkingum til úrslita í
annari deild. Leiknum lauk með
jafntefli eftir að hann hafði verið
framlengdur um y2 klst.
Af þessum sökum þarf að end-
urtaka úrslitaleikinn. Átti sá leik-
ur að fara fram á mánudagskvöld,
og var búið að auglýsa stað og
tíma. En leiknum var frestað á
síðustu stund. I þess stað fór fram
bæjarkeppni milli Keflvíkinga og
Akureyringa.
Óvíst er hvenær og hvar úrslita-
leikurinn verður.
Til sölu er nýleg ítölsk harmon-
ika með 13 skiptingum, 4 kóra. —
Upplýsingar gefur:
Karl Einarsson,
Engjaveg 33 - ísafirði