Ingjaldur - 01.06.1932, Qupperneq 3
INGJALDUR
.—jarfógeti
hefur legið rúmfastur meö snert af brjóst-
himnubólgu. Varð sjúkdómur þessi tll þess að
^lngjaldur® varð til. það stafar margt ílt af veik-
Indum.
ísl. Högnason
er farinn út yfir pollinn i pílagrímsför tll graf-
ar Lenins. Jón Rafnsson og Ingibergur eiga að
gæta »félaganna« á meðan — ásamt bæjarfógeta.
Karl Jónasson læknir
er nýfarinn snöggva ferð til Reykjavíkur í
áríðandi erindum.
í Stórhöfða
er nú búið að mæla land handa vitaverði og
einnig 4 hektara land uppi í Höfðanum handa
nokkrum mönnum til ræktunar. Stórbændur
hér höfðu lengi haldið því fram, að Höfðinn
fylgdi jörðum sinum. En Stjórnarráðið úrskurð-
aði að svo væri ekki, heldur hefðu þeir alsaiað
sér honum eins og öðru landi, þegar gerðir voru
við þá samningarnir 1927. Fjárelgendum hefur
staðið eítthvað land þar tll boða dl beitar, ef
þeir vildu girða það. En þeir hafa hlngað til á-
litið sér hentara að nota annara land, sér að
kostnaðarlausu. Mun þö væntanlega bráðum
vinnast tími til að koma þelm á aðra og heil-
brigðari skoðun.
Bæjarfógeti
bendir þeim, sem óska afgreiðsiu eða viðtals
utan skrifstofutíma, að biðja áður um það í síma.
þeir geta með því sparað sér það ómak að fara
erindisleysu. Það stendur eft svo á að ekki er
unnt að sinna mönnum á þeim tíma.
Jón Hallvarðsson
cand. jur, nú settur sýslumaður i Barðastrandar-
sýslu tekur við fulltrúastöðu a bæjarfógetaskrif-
stofunni 1. júlí n. k. Hefur bæjarfógeti um nokk-
ur ár reynt að svo yrði að fullkominn lög-
fræðingur fengist á skrifstofuna, því að þörfin
er ég hefur verið brýn, en ekki tekist fyr eu nú
síðast í tíð fyrv. dómsmálaráðherra. Ef til vill
verður einhvern tíma síðar brugðið upp mynd af
embættisverkunum hér bornum saman við verk
lögreglustjórans í Reykjavík. Mun þá koma I
Ijós að tæplega hallast á mig þó að skrifstofu-
3
fé hér hafi verlð 6500 kr. en yflr 40,000 kr.
Reykjavík.
Brunnúrinn í Dalnum.
Bæjarstjóri hefur sagt mér að brunnurinn í
Dalnum verði aldrei fullur, heldur komist vatnið
aðeins að ákveðnu hæóarmarki. Úr þessu viröist
mér sjálfsagt að bæta, og niá gera það með þvi
að grafa samskonBr brunn eða brunna við hlið-
ina á þeim sem fyrir er og hafa samrennsli þar
sem vatnið kemst lengat upp. Eiga nýju brunn-
arnir að vera miklð víðari um sig en sa sem er.
Með þessum hætti á að safnast miklu meira vatn
og auk þess fleiri tekið vatn í einu, sem er mik-
111 kostur.
Fundargerðir bæjarstjórnar.
það er siður í flestum sýsluní landsins og ef til
vill öllum, áð láta prenta sýslufundargerðir. En nú
eru þes8ir fundir svipaðastir fundum bæjarstjórna
i kaupstöðum. Virðist mér vera vel til fallið að
bæjarstjórn láti á hverju ári prenta úrdrátt úr
fundargerðum bæiarstjórnar, þar sem allra helstu
mála værl getið, sem fyrir hafa legið á árinu.
Mundu bæjarbúar þá fylgjast betur með því sem
gerðist l bæjarstjórn og skapast melri áhugi fyrir
bæjarmálunum en nú er. Mætti prenta þessar
fundargerðir ásamt reikningunum og láta þær
fylgja þeim.
Sakamál
fyrirsklpaði dómsmálaráðuneytið 30. f. m. að
skyldi höfða gegn bílstjóra Ferd. Carlson f'yrir
meint sviksamlegr athæfi í sambandi við hlð al-
kunna „bílmál“ og gegn þeim Helga Benónýs-
syni búfræðir.g og Helga Benediktssyni kaup-
manni fyrir þátttöku í hinu meinta afbroti Carl-
sons.
Skotmálið.
Dómsmálaráðuneytið hefur nú ákveðið að rnnn-
sókn skuli lokið í kærumáli ísl Högnasonar út
af rúðubrotinu í vetur, sem hann taldi' hafa ver-
ið morðtilraun við sig (og ef til vill telur enn).
Rannsóknin ieiddi ýmislegt í Ijós er miklu frem-
ur benti tii þess, að um steinkast hafi verið að
ræða, og svo mun ráðuneytið hafa litið á úr því ■
það fyrirskipaði ekki mólshöfðun. Mega allir
Vestmannaeyjingar iagna því, að menn eru hér
ekki eins blóðþyrstir og Kommúnisrar álitu. Og
ísleifur sjálfur getur þá lika sofið rólegar eftir-
leiðis — lífvarðarlaus.