Ingjaldur - 26.06.1932, Blaðsíða 2
2
INGJALDUR
/
þeir annara eru meuugir urn að láta eitthvað
af hendi rakna. Og eins og éS benti áðan á,
þá eru menn almennt miklu megnugri þess að
greiða eitthvað, enn menn telja sér og öðrum
trú um, sbr. eyðslu á óhófsvörum. það er
miklu fremur hitt, að mönnum er sumpart tal-
in trú um, og sumpart telja Bérsjálfum trú um,
að menn greiði opinberu gjöldin fyrir ekki
neitt eða sama sem ekki neitt, sem skapar þessa
hugsun alinennings.
Heilbrigðaði hugsunarháttur er það, að hafa
ánægju af því að greiða til landsins síns eða
bæjarins síns, svo unt sé að frarakvæma eitt-
hvað. Þess v®ri óskandi, að meiri þegnskapar-
andi mætti vetða hér á landi, en minna af
hugsunarhætti ölmusumannsips. Sá bugsunar-
háttur setur kotungabrag á menn, h.vort sem
þeir eru efnaðir eða efnalausir. Og þá munu
menn ekki gera sig til athlæis með því að
vola framan í alla yflr „útsvarinu sínu°, held-
ur heimta og reyna að sjá um, að það sé
notað á viturlegan hátt.
K. L.
Úlvarpið.
Hér í bæ munu vera um 110 útvarpsnotendur,
ef meðtaldir eru þeir, sem hafa hátalara frá við-
tækjum annara. Ætla mætti að svo fjölmennur
hópur manna hefði margskonar skoðanir á hinu
andlega fóðri, sem útvarpsráðinu þóknast að senda
þeim gegnum loft'ð, en ekki minnist ég að hafa
séð þess í neinu getið f blöðum hér.
Margir útvarpshlustendur hafa eflaust heyrt
erlndl Elís Guðmundssonar í útvarpinu nýlega,
en það var að miklu leyti hvatning til þeirra að
ganga i útvarpsnotendafélag Reykjavíkur. þó í
sjálfu sér sé lítið við það að athuga að ganga i
félagið, virðist þó liggja betur við að hlustendur
hér stofni með sér félagsskap, sem geti svo í
samvinnu við önnur slík félög í landinu, komlð
komið fram áhugamálum sínum við útvarpsraðið
og stjórn útvarpsins. Elís Guðmundsson gat þess
f erindi sínu að sendir yrðu til útvarpsnotenda
út um land, kjörseðlar til að kjósa mann í út-
varpsráðið, og að í hverjum bæ yrði einum
manni sendir þessir seðlar til útbýtingar.
Ekki veit ég hver hefur orðið fyrir valinu hér,
en t-eðlunum hefur ekki verið útbýtt enn, og
ætti þó að vera kominn tími til þess, þar sem
kosnlng á að fara fram í júlí. Stofnun útvarps-
notendafélags hér er því mjög aðkallandi, og vil
ég hér með skora á útgefanda „Ingjalds" og aðra
þá útvarpsnotendur sem tll forystu eru fallnir,
að gangast fyrir stofnun slíks félagsskapar með
því að boða alla útvarpsnotendur á fund, og er
ég visa um að ekki mun vanta þátttöku í fél-
aglð, fáist einhverjir til að hafa forgöngu um
stofnun þess.
Um verkei’ni fyrir félagið er’’ óþarft að r.
hér, nægir að benda á að mest af þeim útvar^
truflunum, sem nú ætla að æra hlustendur, mL
vera hægt að deyfa svo að ekki valdi óþægind-
um framar, og mun félagi veitast auðvelt að koma
því í lag, þó að einstaklingum veitist það óklelft.
Lagaákvæði um bann gegn notkun ódeyfðra raf-
tækja, er truflunum valda, eru mjög ströng og
varla nokkur, sein bryti þau, ef þau væru al-
menningi kunn.
22. júní 1932.
Hjálmar Eiríksson.
Útvarpið er þegar orðinn verulegur þáttur í
heimilislífi fjölda manns um ö'I lönd og er á
góðum vegi með að verða það nú þegar hér.
En það þjáist mjög af bernskusjúkdómum og var
þegar óheppilega á stað farið, er sá maður var
valinn til forustu sem vitanlegt var að ekki yrði
talinn hlutlaus eða hefði nokkra getu til þess að
að vera hlutlaus. það er því mikil þörf fyrir
útvarpsnotendur að beita sín og það yerður ekki
gert nema með félagsskap. Skal hér í því sam
bandi skýrt frá tillögum, sem Félag útvarpsnot-
enda í Reykjavík samþykti á fundl nýlega.
Á fundi Félags útvarpsnotenda 9. þessa mán-
aðar var samþykt að gera þessar kröfur:
1. Að útvarpsstjórnin geri víðtækar róðstaf-
anir til þess að útbreiða útvarpið, meðal annars
með því að selja viðtæki með auðveldum greið-
sluskilmálum, og stuðli ennfremur að þvi að
menn geti smíðað viðtæki sin sjálfir.
2. Að viðtækjaverslunin útvegi ávalt fullkomn-
ustn og ódýtustu viðtækin sem völ er á á heims-
markaðinum, en bindi ekki viðskifti sín við
örfáar norðurálfuverksmiðjuJ, eíns og nú er gert,
og selji þau ekki hærra verði en þarf til að
standast verslunarkostnaðinn.
3. Að viðtækjaverslunin hafl næga sórfróða
menn í þjónustu sinni við innkaup og sölutækj-
anna.
4. Fé’agið álítur nauðsynlegt að rekstursskýrsia
yfir allan rekstu útvarpsins sé birt almenningi
ársfjórðungslega.
5. Félag útvarpsnotenda telur æskilegt, að lög-
um og reglugerð um útvarpið verði breytt þannig
að Félag útvarpsnotenda fái fullan íhlutunarrétt
um fjármálastjórn útvarpsins, ásamt meiri hlut-
töku en það hefur nú að lögum um skipun út-
varpsráðs.
6. Sjái útvarpsstjórnin sér ekki fært að taka
<il greina krófurnar undir töluliði 1, 2 og 3, þá
álítur Félag útvarpsnotenda nauðsynlegt að breyta
um sö’.ufyrirkomulag.
Lesið lngjaid.