Stormur - 08.11.1924, Page 2
2
STORMUR
STORMUR
kemur út á fimtudögum og laugar-
dögum.
Rítstjórinn til viðtals á Laufásveg 25
kl. 10-2 og 7-8. Sími 1191.
Verð: í lausasölu 25 aurar.
Áskriftargjald kr. 1.50 um mánuðinn
(8 blöð).
Askriftum veitt móttaka fyrst um
sinn á Laufásvegi 25. Sími 1191.
„Magnús Magnússon
gegn
Tryggva Þórhallssyni".
Svo heitir kafli úr grein í síðasta blaði
yðar og þar farið þér að gera saman-
burð á því, Tryggvi, hvor okkar hafi
skammáð hvorn annan meira og kom-
ist aðoþeirri niðurstöðu, að eg hafi aldrei
látið yður í friði, sífelt látið dynja á
yður niðrandi ummæli um einkalíf yöar
og reynt að særa yður persónulega eftir
bestu getu, en sjálfur hafiö þér gætt
þess vandlega að minnast ekkert á mitt
einkalíf, »svo gersamlega hefi eg haldið
persónu þessa andstæðings mins utan
við þær pólitisku deilurcc, segið þér.
Mikið ósköp er að vita hvernig eg hef
farið með yður, Tryggvi, alsaklausan,
en mér finst að yður hafi farist dálitið
óhönduglega þegar þér farið að tilfæra
dæmin, þar sem eg hef svivirt yður og
ráðist á yðar einkalíf. Eg trúi varla öðru
en þér hefðuð getað fundið önnur betri,
Tryggvi.
Hvaða manni haldið þér t. d. að finn-
ist það vera árás á yðar einkalif þó að
sagt sé að þér hafið »riðið á folalds-
mericc? Sjálíur hefi eg oft gert það og
ekki fundist það vera neitt niðrandi.
Eftir því sem heilög ritning segir reið
Kristur sjálfur á ösnu inn f Jerúsalem
og álítið þér folaldsmerina nokkuð ó-
göfugri skepnu, Tryggvi?
Og hvað haldið þér að bændunum
sýnist um það, Tryggvi, ef það eru talin
meiðandi ummæli um mann að segja
að »angi af honum töðuilmur og kúa-
lykt«?
Haldið þér að Strandamönnum hefði
fundist meira til um yður, Tryggvi, ef
vinnukonuvatnslykt hefði angað af yður?
Og er það svívirðileg blaðamenska
gagnvart yður, að segja að þér hafið
haft wbarðastóran hattcc á höfði? Er hann
ekki barðastór hatturinn yðar og er
nokkuð ljótt að hafa barðastóran hatt?
Og snertir það mjög átakanlega einka-
líf yöar þótt sagt væri, að þér hefðuð
verið í skinnsokkum í kosningaleiðangr-
inum? Hefði það ekki verið meira niðr-
andi ef sagt hefði verið, að þér hefðuð
ekki haft vit á að búa yður og verið
með kálfsskinnsskó á fótunum?
En gerum nú ráð fyrir, að þér hafið
hvorSi verið með kálfskinnsskó né í
skinnsokkum, heldur í nýjum vatnsstíg-
•oooooooooooooooooooooooooooooo#
♦ooooooooooooooo O OOOOOOOOOO oooo*
Sími 377
Sauma eins og áður karlmannaföt fyrir 50
krónur. — Pressingar og viðgeröir teknar.
Fljót aígreiðsla. Sparið peuin^a.
Guðm. Sigurðsson, klæðskeri.
Ingólfsstræti 6.
vélum. — Var þá einhver höfuðsök að
geta ekki um þennan búnað yðar?
Haldið þér að kjósendur yðar gangist
eða hafi gengist svo mjög fyrir því,
hvernig þér voruð búinn, Tryggvicc?
En þá eru það tryppin.
Yður finst alveg frámunalega svívirði-
leg árás á einkalif yðar að segja að
tryppi hafi rutt yður um koll á hafnar-
bakkanum svo að fötin yðar hafi orðið
skítug og auk alls þessa sé þetta svo
svívirðileg lýgi.
Rað má vel vera, Tryggvi, að það sé
rétt hjá yður að tryppaskrattarnir hafi
aldrei rutt yður um koll, eg skal alls
ekki fullyrða um það, fyrst þér segið það
gagnstæða, því eg veit að þér eruð ekki
ósannsögull, Tryggvi.
En hvernig í ósköpunum er þvi varið
með réttlætistilfinningu yðar og siðferð-
isskilning, ef yður finst það svivirðileg
árás á einkalíf yðar, þótt sagt sé frá
því, að skynlaus skepna, sem engan
mannamun kann að gera, hafi velt yður
um koll, og fötin yðar hafi orðið blettótt.
Eg man eftir því einu sinni þegar eg
var lítill, að hálfmannýgt naut réðist á
mig og velti mér niður í forarpoll.
Eg held að eg hefði áreiðanlega ekki
reiðst þótt einhver hefði sagt frá þessu
og ómögulegt hefði mér verið að sjá, að
í því fælist árás á mannorð mitt.
Nei, Tryggvi, eg held að það hljóti að
vera orðið eitthvað »forkert« með moral-
hugtökin hjá yður, ef yður finnast þetta
vera svívirðingar.
Og hvernig getur yður fundist það
svívirðingar þó getið sé um mágsemdir
yðar?
Eg hélt, satt að segja, að þér þyrftuð
ekki að skammast yðar fyrir Klemens.
Eða hvað er mannskemmandi í því,
þó að ætternis yðar sé getið? — Fáir
munu fella yður í verði þótt þeir viti
um hver faðir yðar er.
En þá er skilvindumjólkin.
Yður finst það stórkostlega niðrandi
að eg skyldi segja að skilvindumjólkin
freyddi í glasinu yðar. — Hefði yður
ekki fundist það vera mannskemmandi
ef eg heföi sagt, að þér hefðuð drukkið
dökka mjöðinn með tengdaföðurnum?
Eða við skulum segja að eg hefði
sagt, að þér hefðuð drukkið rjóma. —
Haldið þér að þeim á Gjögri hefði ekki
fundist þaö að lifa í sællífi og hafa
magann fyrir sinn guð?
Og fyndist yður að það væri ekki að
gera heldur lítið úr sparsemi yðar og
búmannsviti, Tryggvi?
En þá eru það gripirnir sem þér segið
að eg hafi talað um, svo að kýrnar og
♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦«♦♦*
♦ ^
♦ Statsanstalten for Livsforsikring. ♦
J Eina lífsábyrgðarfélagið, sem j
♦ danska ríkið ábyrgist. +
♦ Ódýr iðfljöld. Hár bonus. ♦
♦ Aðalumboð fyrir ísland: £
♦ ♦
♦ O. I*. JBlöndal, ♦
♦ Stýrimannastíg 2. Reykjavík. +
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦♦♦♦♦♦«♦♦♦
kálfarnir yðar séu orðnir frægir um alt
land. — Hvernig geta það verið svívirð-
ingar um einkalif yðar, Tryggvi?
Dregur það nokkuð úr yðar frægð,
þótt kálfurinn yðar eða kýrin j'ðar verði
líka fræg?
Ekki finst mér það, Tryggvi.
En þá segið þér að eg fari niðrandi
orðum um túnið yðar. Sagt, að það væri
komið í órækt. — 1*6113 mun vera alveg
satt; en hvernig eigið þér að geta snúist
í öllu, Tryggvi?
I*ér eruð alla daga upptekinn af and-
legri iðju, og eftir því sem þér sjálfur
segið, að skrifa skammir til þess að
koma áhugamálum yðar fram, og hvernig
er þá nokkur von til þess, Tryggvi, að
þér megið vera að sinna túninu yðar?
Nú er eg búinn að rekja í sundur alt
það sem þér kallið svívirðingar, Tryggvi,
og eg segi yður í mestu einlægni, að mér
sýnist hempan yðar ekki vera vitund
svartari en hún áður var, Tryggvi.
í*ér segist aldrei hafa skrifað eða látið
blað yðar flytja neitt um einkalíf mitt,
störf eða fortíð.
Eg veit að þetta er satt fyrst að þér
segið það, Tryggvi.
f*að er sennilega leitun á jafn heiðar-
legum blaðamanni og sannsöglum og
þér eruð, Tryggvi, en varið þér yður
sarat á honum Jónasi. — Hann er hættu-
legur keppinautur í þeim sökum.
En nú skal eg lofa yður þvi, Tryggvi,
að fara mjög gætilega að yður hér eftir,
því að eg veit, að þér eruð viðkvæmur
maður, Tryggvi, og hafið næma sóma-
tilfinningu, og í raun og veru er eg
heldur brjóstgóður, Tryggvi, svo að mér
fellur það þungt að sjá hvert sálarstríð
eg hef bakað yður, Tryggvi, og 'senni-
lega hafa sumir í »Varðar«-flokknum
fundið lika til með yður, Tryggvi, og
því viljað létta þessum krossi af yður.
— Sú hluttekning ætti að geta verið
yður dálítill læknir í raunum yðar,
Tryggvi.