Stormur

Útgáva

Stormur - 07.02.1925, Síða 2

Stormur - 07.02.1925, Síða 2
2 STORMUR ugum þessum blöðum geta þeir feng- ið að vita hvað satt er í málunum. Hvorum aðila fyrir sig hætti við að draga það eitt fram og fegra, sem honum getur i hag komið, en sverta hitt og rangfæra eða þegja um það, er best lætur, og svo viti maður ekkert hvorum á að trúa og hvað sé satt. Er og síst furða þótt lesendur blað- anna hafi fundið til þessa, þegar jafn- vel svo langt gengur ósvífnin i blað- lygunum, að frásagnir af opinberum mannfundum eru stórkostlega úr lagi færðar og rangsnúnar af helstu blöð- um beggja ílokkanna. Hvað má þá ætla að lýgin sé i háu veldi, þegar blöðin eru að skýra al- menningi frá einhverju, sem sárfáir vita um og erfitt eða næstum ógerlegt er fyrir fjölda manna að fá vitneskju um. Það er síst að undra, þótt íslenskir blaðlesendur, sem sennilega eru þroskuðustu blaðalesendur í heimi alment, þrjóti þolinmæðina, að láta bjóða sér einhliða frásagnir, rangfærsl- ur og stórlygar ár eftir ár. Þeir finna það, að það er ekki holt, að undirstaða sannfæringar þeirra sé bygð á lygum og falskenningum, en því miður hefir oft og einatt svo ver- ið í stærstu málum þjóðarinnar á undanförnum árum. Auðvitað er þetta ekki sök alþýð- unnar. — Þeir bera sökina og alla ábyrgðina, sem hafa verið þau lítil- menni, að þeir hafa ekki trúað á sigur málefnis síns, nema blekkingum og rógi sé beitt. Maður, sem ber falsvitni fyrir rétti i einu einasta máli og um eitt einstakt atriði hlýtur hegningarhússvist fyrir, ef uppvíst verður, en forystumenn þjóðarinnar í stórmálum hennar hljóta völd og mannvirðingar fyrir það, að bera falsvitni frammi fyrir allri þjóð- inni í hennar stærstu og þýðingarmestn málum, ár eftir ár, og völd þeirra og metorð jafnvel aukast i hvert skifti, sem þeir hafa orðið uppvísir að þess- um stórglæp. Svona hefir það gengið til á undan- förnum árum, og enn standa þeir menn framarla i islenskum stjórnmálum, sem hafa tunguna kolsvarta af lygum og blekkingum margra ára. En sá tími er að nálgast, að menn þessir verði leiddir fram fyrir dóm- stól þjóðarinnar i allri sinni nekt. Hinni brosandi, smjaðrandi fals- grímu, er menn þessir hafa á sér, er þeir standa frammi fyrir kjósendum landsins, verður svift af þeím, og þá sýnir það sig, að undir grimunni felst hið gula og niðurslapandi andlit róg- berans og »spekúlantsins«, sem undir yfirskyni guðhræðslunnar hafði svikið sig inn í trúnaðarstöður þjóðarinnar. (Frh). r við áramótin 1924 —’25 og merkustu viðburðir hins líðna írs. Merkilegasta viðburð ársins má vafa- laust telja þann, að Frakkar og Þjóð- verjar settu grið á milli sín og útlit er á þvi, að fullar sættir muni komast á og jafnvel bandalag er fram líða stundir. Meðan Millerand og Poincaré sátu við völdin í Frakklandi og héldu Ruhr og Rínarlöndunum í hershöndum, hataði hver einasti Þjóðverji Frakka og sór þeim hefndir, en nú hefir mikil breyt- ing orðið á hugsunarhætti beggja þjóð- anna hver gagnvart annari, og í ýms- um iðnaðargreinum er komin náin sam- vinna. Með Dawessamþyktinni var bráða- birgðaúrlausn fengin í skaðabótamálinu og þeir aðilar, sem að henni stóðu, hafa i engu verulegu hvikað frá loforðum sinum og skuldbindingum. Þjóðverjar hafa greitt þær afborganir af skaðabót- unum, sem þeim var gert að greiða, og Frakkar og Bandamenn hafa á móti dregið her sinn úr Ruhr og Rínarlönd- unum og komi ekkíný misklíðarefni til, mun ekki liða á löngu, fyr en Þjóð- verjar hafa aftur feugið full umráð þess- ara landa. Hagur Þjóðverja batnaði mjög á síð- STORMUR kemur út venjulega tvisvar í viku (100 blöð á ári). Ritstjórinn til viðtals á Laufásveg 25. Sími 1191. — Afgreiðsla á sama stað. Verð í lausasölu 25 aurar, en áskrift- argjald fyrir mánuðinn kr. 1.50. astliðnu ári. Auðvitað hafa þeir haft við mikla örðugleika að stríða^en af- koma alls þorra almennings, batnaði þó stórkostlega á árinu, sem einkum var þvi að þakka, að unt var að stöðva gengið. Vald þeirra manna á Þýskalandi, sem ekki vilja uppfylla friðarskilmálana, fór mjög þverrandi á árinu og alt virðist miða til þess, að leiðandi menn þjóðar- innar vilji, eftir því, sem máttur er til, uppfylla skuldbindingar sínar. Um áramótin 1924—25 urðu stjórnar- skifti. Fór Marxráðuneytið frá völdum, en sá heitir Luther er stjórn myndaði. Hefir hin nýja stjórn lýst því yfir, að hún muni fylgja stefnu fyrverandi stjórn- ar í utanríkismálum. (Frh.) Hvað verður af wliiskýinu? Margir hafa spurt »Storm« að því, hvað yrði af öllu whiskýinu, sem tekið er úr skipum og hjá einstökum mönn- um, en »Stormur« hefir litlu getað svarað. Hann hefir sagt það eina, að hann héldi, að það færi alt til geymslu í tugthúsið. — Lögregluþjónar mundu keyra það þangað og að líkindum hefði lögreglustjórinn lykilinn að þessu dýr- mæta herbergi eða einhver þeirra trún- aðarmanna hans, sem hann best trúir. Þetta er nú það, sem »Stormi« hefir verið sagt, en hvort satt er frá skýrt veit hann ekki. Nú þætti »Stormi« mjög æskilegt að fá að vita um það hjá stjórnvöldunum, hvort þetta sé rétt. En svo langar hann til þess að grenslast um dálítið meira, enda veit hann, að ekki muni standa á hlutað- eigendum að svara. Pað sem »Storm« langar til að vita er þetta: 1. Hvað er gert við whiskýið, genev- erinn og brennivfnið, sem upptækt er gert? 2. Hversu mikið hefir verið gert upp- tækt síðan bannlögin gengu í gildi, og er það alt í tryggum ílátum enn þá? 3. Fer ekki að verða skortur á hús- rúmi? Og svo er loks eitt enn: Er upptæki spíritusinn látinn í áfeng- isverslun ríkisins, og, ef svo er, fer þá fram rannsókn á honum á efnarann- sóknarstofunni áður?

x

Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.