Stormur


Stormur - 08.02.1928, Síða 3

Stormur - 08.02.1928, Síða 3
STORMUR 3 neinn baggi, því að þær voru lánaðar banka og goldnar aftur. — Vafalaust er að margir hafa orðið til þess að trúa þessari lýgi og ekkert er sennilegra en að sú trú hafi ráðið um atkvæði þeirra. Ólafur Thórs benti því „verði sið- gæðis laga og réttar" á það, að hann skyldi líta með dálítilli miskunsemi á smáu afbrotin — og bera þau saman við þenna verknað, sem líklegur væri til þess að fá fjölda manna til þess að greiða atkvæði öðruvísi en þeir myndu gert hafa, ef þeiin hefði ekki vísvitandi verið vilt sjónir af þessari tegund „at- kvæðafalsara". Má hiklaust segja, að aldrei hafi nokkur ráðherra á íslandi orðið að þola önnur eins litilsvirðingarorð og jafnþungar ásakanir fyrir fortíð sína eins og Jónas Jónsson varð að þola á Alþingi föstudaginn 27. jan. 1928. Ekkert gerði þetta Jónasi Jónssyni til, ef orðin hefðu verið ómaklega mæld, þá hefðu þau orðið þeim einum til hneysu, sem mæltu þau. — En sú er ekki raunin á. Hvert litilsvirðingar- orð, hvert skammarorð var sannleikur. — Sannleikur, sem hvert mannsbarn á landinu veit að er satt. Og svo ömurleg er tilvera þessa vesalings manns, að enginn flokks- manna hans leitaðist við að bera blalc af honum. — Þeir fundu eins og aðr- ir, að alt var satt, og þeir hvorki vildu leggja virðingu sína í það að reyna til þess að verja hann og treystust heldur ekki til þess að halda uppi vörnum gegn svo auðsæjum sannindum. Svo hamramt jafnvel var það, að forseti sameinaðs þings, Magnús Torfa- son ávítaði ekki einu sinni þótt óþing- leg orð væri viðhöfð um ráðherrann. — Honum hefir fundist, að hann gæti ekki samvisku sinnar vegna, ávítað menn fyrir að segja sannleikann, þótt þeir gerðu það í öðru formi en þinglegt þykir. — Ráðherrann sjálfur gekk líka á undan með óþinglega orðbragðið, svo að réttlætistilfinning forseta sam- einaðs þings, sem er mjög þroskuðt hefir hannað honum að grípa fram í. III. Allur þessi skrípaleikur um kosn- ingu Jóns Auðuns, sem jafnaðarmenn og nokkur hluti framsóknarflokksins hefir Ieikið til þessa, hefir einungis verið gerður í þeim tilgangi að reyna með þvi að svala sér á þessum þing- manni og andstæðingum sínum — íhaldsmönnum. Það hefir verið hefndarleikur og hin- um svivirðilegustu vopnum hefir verið beitt i þessum leik. Jafnvel forsætisráðherrann sjálfur hefir viðhaft þá dæmafáu strákslegu aðferð, að drótta því að Magnúsi Guð- mundssyni, fyrverandi dómsmálaráð- herra, að hann muni hafa vitað um falsaða atkvæðið í Strandasvslu og fémútur á ísafirði. Magnús Guðmundsson gerði það eina sem rétt var. Hann skoraði á for- 0'''0 O^OiO^O On\Ö D)iiQ!0;hQ!0m0 O/ivQ OmQtOmQ r.wíi O'Ú o ö Kaupstefnan í Leipzig verður haldin að þessu sinni 4.—14. marz n. k. Aðsókn að vörusýningu þessari hefur aldrei verið eins mikil og á haustkaupstefnunni síðastliðið ár. Þangað komu: 160,000 kaupsýslumenn frá 44 löndum. Þetta er stærsta vörusýning heimsins og t ættu kaupmenn að gera innkaup sín þar, þar eð allar þær vörur eru þar samankomn- ar, sem vér íslendingar þurfum að nota. Nú eru skipaferðir svo greiðar við Hamborg héðan að menn eru fljótir að bregða sér til Leipzig og með því gerið þér innkaup yÖar - á réttum stað. - Upplýsingar um sýninguna fást hjá undirrituðum: Hjalti Björnsson 6tCo. Sími: 720. Reykjavík. Pósthólf 658. °V/0|0 Omolö

x

Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.