Stormur - 28.09.1928, Page 3

Stormur - 28.09.1928, Page 3
STORMUR 3 Mun honum fmnast nú til um ráð- herrann »íslendinganna í landinu« sem sleppir breskum veiðiþjófi, enda þótt sönnuð sé á hann sök, svo skýrt sem verða má? Nei, það er áreiðanlegt, að ef hann er ^gamalk þessi skipstjóri og ef hann er »merkur« þá hefir hann fallið i stafi yfir lítilmensku og ræfilshætti ráðherrans, sem til þess að þóknast erlendri þjóð, — sem auðvitað í hjarla sínu fyrirlítur þenna verknað ráðherr- ans — lét ekki undir höfuð leggjast að svivirða hæstarétt sinnar eigin þjóð- ar og auglýsti það fyrir öllum heim- inum, að Islendinga brysti manndóms- þrek og karlmensku til þess að verja landhelgi sina og láta rétta dóma ganga um brot erlendra ofbeldismanna. III. En »gamli«, »merki« skipstjórinn er án efa undrandi á fleiru i framferði framsóknarflokksmanna, sem að dómi hans eru »lslendingarnir í landinu«, að sögn Jónasar Jónssonar. Mun hann ekki lika vera undrandi á þvi, að þessi flokkur skuli hafa gert þann mann, að dóms- og kirkjumálaráð- herra, sem liggur undir þyngstu áfell- isorðunum, sem sögð hafa verið um nokkurn íslending, og hagað hefir sér óheiðarlegar i vopnaviðskiftum, en verstu siðleysingjar Sturlungaaldarinn- ar gerðu. — Manninn sem hvað eftir annað og þráfaldlega hefir ekki látið sér fyrir brjósti brenna, að ráðast á þann garðinn sem er lægstur — dæmda ólánsmenn — eða menn undir ákæru — til þess að svala hefnigirni sinni á mönnum sem hann hefir átt í höggi við. Manninn, sem þráfaldlega hefir ekki skirst við það, að svívirða börn og foreldra og frændur þeirra, sem hann hefir deilt við og lapið hefir upp hverja slúðursögu — sanna og ósanna — sem hið æfða og hljóðnæma eyra hans hefir getað greint. — Og mun hann ekki »gamli« og »merki« skipstjórinn vera undrandi á þvi, að þessi íslenskl flokkur i land- inu. sem að mestu leyti er samansett- ur af bændum, skuli nú styðjast við þann stjórnmálaflokk, sem er óþjóð- legastur allra stjórnmálaflokka í hverju landi sem er, en hefir auk þess það sér til ágætis, að hafa um mörg ár lifað á dönsku gulli, sem hann hefir snýkt hjá flokksbræðrum sínum í sam- bandslandi voru. — Því landinu, sem vér allra hluta vegna þurfum að vera sem sjálfstæðastir gegn, sökum binna ströngu ákvæða Sambandslaganna og hættunnar, sem af jafnréttinu getur leitt. IV. Jónas Jónsson er fyrsti ráðherrann og verður vonandi sá siðasti, sem i skiftum sínum við aðrar þjóðir hefir ekkl þorað að halda fram sjálfsögðum rétti þjóðar sinnar. — Og fyrir það hefir hann hlotið nafnið »Tervani- ráðherrann«. 9 © © oi verai © © © © miklar birgðir nýkomnar. - Eldri birgðir verða seldar meðlækkuðu verði t.d. Karlmannafatnaöur, sem kostaði áður kr. 68.00 — — 88.00 — — 110.00 nú kr. 38.00 — — 68.00 — — 84.00 Vetrarfrakkar, sem kostuðu áður kr. 50.00 — — 85.00 — — 118.00 nú kr. 22.00 ------62.00 — — 78.00 Hér eru aðeins nefnd nokkur verð. Unglingafrakkar og regnkápur mjög ódýrar. Lítið í gluggana! VORUHÚSIÐ. © © © © © © © © © © . Fyrsta sendingin af Karlmanna-, unglinga- og fermingarfötum, blá og mislit, ev komin, ásamt KARLMANNA REGNFROKKUM með nýjasta sniði (sport). I/erð frá 25 krónum. Eftir viku fáum við mjög stóra senditijgu af KARLMANNA og DRENGJAFOTUM allar stærðir (hentug skó/aföt). — Yfir 20 ára reynsla ætti að vera næg sönnun þess að við seljum að eins hentugar og ödýrar vörur, því reynslan er sannleikur. Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. Austurstæti 1. jjrr 7&|3 EBXEB0 HnmWc taHxHfp 9BHHB En Jónas Jónsson er líka fyrsti ráð- herrann, sem hefir vítt á sér heimild- ir og gerst flugumaður þeirra manna, sem kaupa daglegt brauð sitt fyrir er- lent málagull, sem ættlandi þeirra staf- ar ófyrirsjáanleg hætta af. — Og það er Framsóknarflokkurinn — nokkur hluti íslensku bændanna — sem ber ábyrgð á þessum Tervani, sem breitt hefir yfir nafn og númer frá því að hann hröklaðist frá Askov og fram til þessa dags. verða allir hamingju- samir, sem kaupa trúlof- unarhringana hjá SIGURÞÓR JÓNSSVNI Aðalstræti 9. Sendi gegn p&atkröfu hvert á landsem Kaupiö og útbreiöiö „STORM“.

x

Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.