Stormur


Stormur - 19.07.1930, Page 4

Stormur - 19.07.1930, Page 4
4 S T O R M U R Nafnið á langbesía iólfáfmrðiiiiim er ræst i öllum verslunum. hans eru réttar, og að við séum því sammála. Magnús Magnússon. Frá Finnlandi. Nýkomin erlend blöð eru full af frá- sögnum um hina ískyggilegu atburði, sem nú eru að gerast í Finnlandi. — Því miður er það svo um þessa at- burði og aðra jafnmerkilega, að íslensk blöð geta þeirra að litlu. Veldur þar nokkru um smæð þeirra, en það þó meira, að áhugann sýnist vanta hjá þeim, sem yfir dagblöðunum hafa að ráða, að birta glöggar yfirlitsgreinar um merkustu viðburðina, svo að al- menningur geti fylgst með því mark- verðasta, sem í umheiminum gerist. Símskeyti þau, sem öll blöðin birta samhljóða, gera ekkert nema svala for- vitnisfýsn manna í bili, og er ekki einu sinni svo, að þau geti stundum um það, sem mestu máli skiftir, held- ur flytja þau í þess stað ómerkilegar dægurflugufregnir. Ef dagblöðin halda þessari venju sinni áfram, væri hér í raun og veru hin mesta þörf fyrir tímarit, sem kæmi út vikulega, ein örk eða svo, er flýtti nákvæmar og hlutlausar frásagn- ir af öllum stórviðburðum, merkustu uppgötvunum o. s. frv. — Mætti und- arlegt virðast, ef slíkt tímarit þrifist ekki hér í Reykjavík, ef vel væri vandað til heimildanna. „Alþýðublaðið" flutti fyrir nokkru grein um Finnland, en mjög hlutdræga. Hafa „Tíminn“ og Alþýðublalðið tekið upp þann sið, ein allra íslenskra blaða, að flytja litaðar frásagnir um menn og málefni annara þjóða til styrktar þeim pólitísku skoðunum, sem þau halda fram. Var það um eitt skeið háttur Hriflu-Jónasar að skrifa um ýmislegt í fari erlendra íhaldsflokka og draga líkinguna með þeim og íhalds- flokknum hér, og hallaði sannleikur- inn þá auðvitað undir flatt hjá hon- um, eftir því sem best- hentaði í það og það sinnið. Fyrir nokkru flutti „Morgunblaðið" einnig stutta en hlutlausa grein um Finnland og atburði þá, sem þar eru að gerast. og verður það ekki rifjað upp hér, en bætt við einstöku atrið- um, en fá geta þau aðeins orðið sök- um smæðar blaðsins. Fram að þessu hafa rósturnar í Finnlandi staðið á millum Lappó- mannanna svo nefndu, sem eru trúaðir þjóðernissinnaðir bændur, og kommun- istanna, sem að vísu eru ekki mjög sterkir í Finnlandi, en hafa b.eitt sér m.jög fyrir kenningum skoðanabræðr- anna rússnesku og jafnvel gert'tilraun- ir til þess að innlima Finnland öðru sinni í Rússland. Bændaflokkurinn eða Lappómennirnir hafa fyrir foringja mann, sem Kosola heitir. Er hann sagður maður einbeittur og viljafast- ur og að s.umu leyti ekki ósvipaður Mússólíni, en ekki mun hann talinn jafnoki hans að gáfum. Þessi flokkur hefir fyrst og fremst sett það á stefnuskrá sína að útrýma kommunismanum með öllu úr Finn- landi. En margt bendir til, að leiðandi menn flokksins hafi annað og jafnvel meira fyrir augum, eða hvorki meira né minna en það að koma á einvalds- stjórn í landinu, en afnema þingræðið, að minsta kosti „faktiskt“. Ennfremur óttast sænsku Finnarnir, að þeir muni leggja kapp á að má burtu áhrif þeirra, því að bændur þessir eru Finnar í húð og hár og vilja engin erlend frumefni hafa. í fyrstunni var þessi flokkur fá- ménnur, en hann er vel „organiserað- ur“ og hefir á skömmum tíma aukið fylgi sitt stórkostlega og Svinhufvud- stjórnin, sem nú situr að völdum í Finnlandi, er hliðholl flokknum, og verður að beygja sig fyrir honum, jafnvel meira en henni gott þykir. — Forsetinn, Relander, og frelsishetja Finnanna, Mannerheim hershöfðingi, sem Finnar eiga sjálfstæði sitt jafn- vel meira að þakka en nokkrum öðr- um, standa einnig nálægt flokknum og hafa tjáð sig samþykka ýmsum aðgerð- um hans. Frh. Naínið á langbesta skóábnrðinnm er Fæst í öllum verslunum. OOOOOOOOOOOOOOOO<OO<OOO< 0 HUDDENS FINE V $ 0 Gamall og góður g o kunningi margra S reykingarmanna. g Huddens cigarettur g fást alstaðar. Kaupið þær í næstu búð. Gleymið ekki ísl. landslagsmyndunm sem fylgja með hverjum pakka. Kaupendur blaðsins í Hafnarfirði eru hér eftir beðnir að vitja blaðsins til hr. kaupm. Þorvalds Bjarna- sonar og greiða það til hans. Kosningin. Úrslit þessarar landskjörskosningar eru nú kunn orðin. 1 næstu blöðum Storms verða nokkrar ályktanir af henni dregnar og drepið á sumt, sem nú stendur næst fyrir dyrum hjá Sjálf- stæðisflokknum. ísafoldarprentsmiðja h.f. 4

x

Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.