Stormur


Stormur - 17.02.1934, Blaðsíða 3

Stormur - 17.02.1934, Blaðsíða 3
i STORM UR Happdrætti Háskóla íslands. Með því að fá hæsta vinning á sama númer í hverjum flokki er hægt að vinna á einu ári 185000 krónur. Fjórðungsmiði kostar 1 kr. 50 au. í hverjum flokki. Á fjórðungsmiða er hægt að vinna á einu ári 46250 krónur. tfinningsrnii nru skatt og dtsvirsfrjaisir. AFGREIÐSLA S T O R M S — einnig fyrir söludrengi — er aftur flutt á NorSurstíg 5. — Duglegustu drengirnir fá happdrættis- miða í verðlaun og geta því orðið ríkir menn, ef hepnin er með. Næsta blað kemur út á laugardaginn. I NÆSTA BLAÐI kemur grein með fyrirsögninni: Er innflutningur Spánarvfna öllum heimill og hefir hann verið það frá 1923? Um alheiminn. Þegar Vetrarbraut kom út keypti eg hana og þótti mér hún besta bók, sem eg hafði séð næst Biblíunni, enda hefi eg enga vísindabók séð eða lesið áður, en í fyrra- vetur keypti eg bók eftir James Jeans um alheiminn. — Þessi bók var eins og ný opinberun fyrir mig til að hjálpa mér til rétts skilnings á tilverunni; eg varð hugfanginn af gleði og hrifinn. Til þess að finna orðum mínum stað, leita eg sönnunar í guðs opinberaða orði. I fyrstu línum Biblíunnar er sagt: „Myrkur grúfði yfir djúpinu, þá sagði guð, verði ljós, og það varð ljós“. Hér er með berum orð- um sagt, að áður en guð skapaði hina fyrstu vetrarbraut var djúpið, sem sé geimurinn, til áður en guð skapaði heiminn. Hér er því ekki nema um tvent að tala, það sem guð hefir skapað Og það sem hann hefir ekki skapað, — með öðrum orðum það sem er og það sem ekki er. Það sem er, er guð og allt, sem hann hefir skapað andlegt og efnislegt. Það sem ekki er, það er geimdjúpið. Mótsetn- ing alls þess sem er, er það, sem ekkert er, og það, sem ekkert er, hefir engin takmörk og það er vel skiljanlegt að svo er. Tíminn og rúmið hefir ekkert gildi fyrir andann og þann, sem eilíflega lifir. Fyrsta meinlokan úr Einstein er það, að það, sem ekkert er, segir hann sé efni, sem sé rúmið eða geimurinn, — önnur meinlokan, að hann setur . rúminu takmörk, sem er vel skiljanlegt að hefir engin takmöik. - Þriðja meinlokan, að bein lína sé sama og hiingui, og fjórða meinlokan er, að hinar tröllauknu hringþokur fjarlægist okkur í allar áttir, með ógurlegum hraða, með því að þenja út alheiminn. Einhver skrifar í Lögréttu, að einfaldasta skýringin á þessu sé sú, að himin- geimurinn sé ekki einungis endanlegur, heldur þenjist hann sífellt út. Rúmið sjálft verður stærra og stærra. — Þetta er ekki rétt hugsað, því eyðist það, sem af er tekið. Hann hefir verið búinn að gleyma gaflaðinu, sem Einstein var búinn að setja í rúmið, því að það er ekki neinn smá- ræðis ,,blokkade“, sem hann hefir sett þar upp fyrir guð og menn. Það einfaldasta og sjálfsagðasta hefði verið að heimta af Einstein heilbrigðisvottorð áður en þessi vaðall og vit- leysa úr honum var prentuð, sem getur orðið til tjóns fyrir mannkynið, því að það er augljóst, að hann hefir tapað vitinu, því mörg eru manna meinin. Það, sem við sjáum nú, eru sólirnar í öllum þeiro vetrarbrautum, sem guð hefir skapað frá upphafi, og ut- an við allan þann stjörnuskara sjáum við vetrarbraut, sem er í smíðum; það eru sveipþokur, í þeim er efnið svo geisilega heitt, að það er líkast stormstraum og fjarlæg- ist okkur í allar áttir, með geisilegum hraða út í geim- inn. Þetta er vel skiljanlegt, því að það þurfti að komast svo langt út í geiminn, að þessi verðandi vetrarbraut ald- rei rækist á þá næstu. Frá þessum hringþokum koma ósýni- legir geislar til jarðar vorrar, sem nýskeð hafa fundist, og er það ekkert furðulegt, því að þeir koma frá áminnst- um þokum, sem ekki eru örðnar að sólum. Eg sé því, að guð getur haldið áfram að skapa til eilífðar. Þetta veit eg eins vel, eins og það, að eg er til og að eg hugsa. Presthólum 24. nóv. 1933. Halldór Bjarnason. Kollumálið. Inngangsorð. Eins og eðlilegt er býður nú allur landslýður með mik- illi eftirvæntingu eftir því, að fá einhverjar fréttir af þessu merkilega máli. Varpeigendur um land allt langar til að vita, hvort það er satt, að lögreglustjórinn í Reykjavík sé í frístundum sínum í raun og veru að drepa bústofninn þeirra, að eyðileggja eign þeirra; hvort hann sé með því að drepa æðarfuglinn — sem reitir af sér dúninn varp- eigendunum til lífsframdráttar — að eyðileggja afkomu þeirra og afkomenda þeirra. Þessi eftirvænting fólksins, þessar og þvílíkar spurningar, eru nú ósköp eðlilegar, hvernig svo sem á þær er litið. Það er alveg sama, þó að liðin séu þrjú ár síðan æðarkollan var drepin. Spursmál- ið er einungis þetta: Var hún drepin? Eða var hún það ekki? Verður nú ekki úr þeirri spurningu leyst hér, enda er málið undir rannsókn og ekki hætt við öðru en sann- leikurinn komi í ljós, eins og börnin segja, en skraflað verður hér um málið fram og aftur í þeim dúr, sem al- menningur gerir nú hér í bænum. Óheilladagurinn. 1. desember 1930 var vonsku veður, vestan stórviðri, mikill sjógangur og gekk yfir Grandagarðinn um flóðið. í þvílíku veðri er það vanalegt, að æðarfuglinn dragi sig í stórhópum alveg upp í land, í varið, — er það því hálf- gerð slysni að drepa ekki nema einn í skoti, ef í hópinn er skotið á annað borð. Hermann Jónasson er sagður vera út í eyju þennan dag og í þessu veðri, hann gengur fram á hóp af æðarfugli, sem kúrir þarna í skjólinu lúpulegur og saklaus, og á sér einskis ills von. Fuglahópurinn verður var við manninn og flögrar nokkra faðma frá landi, sem styttst til að missa ekki alveg af skjólinu og þurfa ekki að fara út í ofstopann og ölduganginn, en í því ríður skotið af. Það er einum lifandi fugli færra; dauða fuglinn rekur í land, hinir fuglarnir halda lengra frá landi; miskunarleysi mannanna hefir hrakið þá úr landvarinu út á ólgandi og

x

Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.