Stormur


Stormur - 15.08.1935, Blaðsíða 1

Stormur - 15.08.1935, Blaðsíða 1
STORMUR XI. árg. ravsgon inagniusQn Fimtudaginn 15. júlí 1935. 23. blað. Dómur andstæðings i. „Ennþá er fjandinn hliðhollur Hriflu-Jónasi og ár- um hans“, varð einum sniðugum manni að orði, er hann frétti lát Tryggva Þórhallssonar, bankastjóra Búnaðar- bankans. Ekki er ósennilegt, að við eitthvað hafi þetta að styðjast hjá manninum, — Framsóknar og sócíalista- flokkunum verði styrkur að því, að pólitískur foringi Bændaflokksins, og auk þess aðalbankastjóri Búnaðar- bankans og formaður Búnaðarfélags íslands skyldi falla í valinn, a. m. k. hafa þeir þarna ráð á einni vellaunaðri stöðu handa einhverjum flokksmanni sínum, sem er gráðugur og heimtar mikið fyrir sannfæringu, sína og samvisku. — Aðgætandi er þó, að síðustu árin var Tryggvi Þórhallsson hættur að mestu leyti að hafa opin- ber afskifti af pólitík, og innan flokksins mun hann heldur ekki hafa látið mjög mikið til sín taka. Er senni- legt, að pólitísku lífi Tryggva Þórhallssonar hafi að fullu eða því sem næst verið lokið, er hinn jarðneska dauða hans bar að höndum, og að þar hefði aldret orðið um neina upprisu að ræða. En vinsældir Tryggva Þórhallssonar og aðstaða hans sem bankastjóra hlaut auðvitað ávalt að vera nokk- ur styrkur fyrir lítinn flokk, sem lítil völd hefir og fáa atkvæðamenn innan sinna vébanda. Þeim, er þetta ritar, þykir þó ólíklegt, að þetta dauðsfall verði banamein Bændaflokksins. Sumir þeirra manna, er þar standa fremstir eða framarlega, eru ól- seigir menn og sauðþráir, undirhyggjufullir, kappsamir og ófyrirleitnir, ef því er að skifta. Auk þess eygja svo þessir menn í bjarma byltingarinnar þann möguleika, að þeir verði miðflokkur þingsins, sem með 2—5 mönnum geti ráðið, hverir skipi stjórnina, og hafi í raun og veru þungamiðju valdsins í sínum höndum. — Þess er og enn gætandi, að þessi flokkur er hreinn stéttaflokkur, hreinni og óblandaðri en nokkur hinna flokkanna og hreinni en þeir nokkru sinni geta orðið. — Sjálfstæðis- flokkurinn hefir lýst yfir því, eins og kunnugt er, að hann væri flokkur allra stétta í landinu og taki ekki hagsmuni einnar fram yfir aðra. Jafnaðarmenn telja sig að vísu fyrst og fremst flokk verkamannanna, þeirra er laun taka hjá atvinnurekendum, en ef þeim á að vaxa verulega fiskur um hrygg, verða þeir að látast bera um- hyggju fyrir fleirum, ,,kokettera“ framan í smábændur o. s. frv. Framsóknarflokkurinn er í raun og veru pólitískt viðrini og stefnuskrá hans, enda er hann líka eins og vændiskonan á gatnamótum, sem rennir augunum í all- ar áttir til þeirra, sem fram hjá ganga, í von um að ein- hver þeirra ánetjist, og gjaldi henni hvílutollinn. Bændaflokkurinn er hinsvegar hreinn stórbænda- flokkur, flokkur þeirra bænda, sem hafa stór bú og mikla framleiðslu. Hagsmunir þessara manna rekast því ekki aðeins á hagsmuni verkalýðsins í ýmsum mikils- verðum atriðum, heldur og hagsmuni smábændanna, eða þeirra, sem vinna einir að búum sínum, eða því sem næst. — Fyrir stórbóndann, sem hefir mjög mikla fram- leiðslu og heldur margt fólk, sem hann launar, er lág íslensk króna gróði; en fyrir smábóndann, sem lítið framleiðir, getur hún verið tap, og fyrir verkamanninn verður hún altaf tap. — Það er því ekki nema eðlilegt, að það sé fyrst og fremst á stefnuskrá þessa stórbænda- flokks að fella íslensku krónuna í verði. En það er einmitt þetta þrönga sjónarmið flokks- ins, sem gerir hann sterkan innávið, en varnar því hins- vegar, að hann geti nokkru sinni orðið fjölmennur flokkur. II. Um það verður ekki deilt, að Tryggvi Þórhallsson hefir átt mikinn þátt í stjórnmálasögu Islands síðustu 12—15 árin, og má þó að vísu sleppa tveim þeim síð- ustu. — Áhrif Tryggva Þórhallssonar byrja, er hann tekur við ritstjórn Tímans. I höndum hans og að nokkru leyti vegna hans aðgerða og hæfileika varð Tímnin um langt skeið í raun og veru mestalla ritstjórnartíð Tryggva, áhrifamesta blaðið í íslenskum stjórnmálum. Og af hverju stöfuðu svo þessi áhrif Tímans? Var Tryggvi Þórhallsson mikill blaðamaður? I raun og veru var hann það ekki. Hann var að vísu áhlaupamaður og skjótur að sjá hvar óvinurinn var veikastur fyrir. Nægilega ófyrirleitinn var hann og hafði engar skruplur af því, þótt gengið væri bæði af honum sjálf- um og öðrum, sem í blaðið skrifuðu, á snið við sannleik- ann, og það var jafnvel ekki hikað við að ryðja honum úr veginum, ef svo reyndist, að lyginni yrði heldur þröngt að smjúga fram hjá honum. Stíll hans var fjörugur, söguþekking mikil, og gerði hún oft greinar hans skemtilegar og gaf honum saman- burð, sem oft gat orðið andstæðingunum ónotalegur. Þekking hans á sumum greinum landsmálanna var sæmileg. En hér með munu líka kostir Tryggva Þórhalls- sonar sem stjórnmálaritstjóra og blaðamanns vera taldir, ef slept er þeim persónulegu eiginleikum, sem hann hafði til að bera. En það sem olli því, að Tryggvi varð aldrei mikill blaðamaður, náði ekki einu sinni Birni heitnum Jónssyni í öxl, var margt. Þótt hann væri snöggur í áhlaupunum og sæi oft vel, hvar víggirðingar og varnarvirki óvin- anna voru ótraustust, þá var um leið öllum hans vopna- burði og herklæðum mjög ábótavant. — Og hann lá alt- af sjálfur mjög vel fyrir höggi. I höndum sæmilega víg- fimra manna urðu ætíð greinar hans sjálfs besfcu vopnin á hann sjálfan, málefni hans og flokk. Það, sem gerði þetta fyrst og fremst að verkum, var

x

Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.