Stormur - 14.02.1938, Blaðsíða 4
4
S T O R M U R
betur skilin, eftir því verður móðernið meira aðlaðadni
fyrir greindar konur.
.... Áður fyr gerspiltu foreldrar sambúð sinni við
börnin með því, að prédika fyrir þeim, að þeim væri skylt
að elska sig. Ennþá eyðileggja mörg hjón sambúð sína
með sama hætti.
Ástin getur ekki orðið skylda, af því, að hún er
ekki á valdi viljans. Hún er náðargjöf, besta náðar-
gjöfin. Þeir, sem hneppa hana í -varðhald, spilla þeirri
fegurð og þeim unaði, sem hún getur aðeins veitt, þegar
hún er frjáls og óbundin.
Hér er einnig við óttann að etja. Sá, sem óttast að
missa hamingjugjafa sinn, hefir þegar mist hana. Hér
sem annarsstaðar er óttaleysið meginkjarni alls vísdóms.
Úr kaflanum um refsingar.
Vægar hegningar eru nytsamlegar til þess að bæta
úr ýmsum smávægilegum yfirsjónum, dinkum miður
heppilegur siðum. — Lof og last eru næsta mikilvægar
tegundir verðlauna og refsinga fyrir ung börn og jafn
framtfyrir eldri drengi og telpur, ef um þann er að
ræða, sem barninu stendur virðing af. Eg álít að það
sé ekki gerlegt að ala upp barn án þess að beita lofi og
lasti, en þar verður að gæta nokkurrar varúðar. — í
fyrsta lagi má ekki beita því til samanburðar. Það má
ekki segja barni, að það hafi unnið betur en eitthvert
annað barn, eða að eitthvert annað barn sé aldi’ei óhlýð-
ið: Hið fyrra leiðir af sér fyrirlitningu og hið síðara
óvild. í öðru lagi ætti að beita lasti miklu minna en lofi.
Það ætti að vera hrein hegning, sem látin er í té, þegar
barnið tekur eitthvert óvænt hliðarhopp frá góðri hegð-
un og því ætti aldrei að vera haldið áfram, eftir að það
hefir borið árangur. I þriðja lagi ætti aldrei að lofa
neitt, sem alveg er sjálfsagt, að barnið geri. ... Á öll-
um aldri ættu börn að hljóta lof fyrir óvenjuvel unnin
verk. Lof fyrir þrekraunir er hið ánægjulegasta, sem
æskunni getur fallið í skaut, og óskin eftir þessari ánægju
er réttmæt viðbótaruppörvun, þótt hún ætti ekki að vera
aðalhvötin. Aðalhvötin ætti altaf að vera fólgin í áhuga
á málefninu sjálfu, hvert svo sem málefnið er.
SWA N
hveitið er viðurkennt sem ágætis kökuhveiti
og til allrar heimabökunar.
i smápokum
50 kg. pokum
Ávallt til fyrirliggjandi,
Heildverstun Garðars Gístasonar
STANDARD
BAÐHERBERGI
MEÐ „STANDARD“ HREIN LÆTISTÆKJUM ÚR
POSTULÍNI (VITREOUS CHINA) — ERU^EG-
URST OG FULLKOMNUST. — BIÐJIÐ UM
„STANDARD", ÞAÐ BORGAR SIG BEST.
Helgi Magnússon & Co.
REYKJAVÍK, HAFNARSTRÆTI.
Lfftryggingar
Liftryggingardeild
Sjóvátryggingarfjelags íslands h.f.
Aðalskrifstofan: Tryggingarskrifstofa: Carl D. Tulinius & Co.
Simi 1700 Simi 1730
Rio-kaffí
jaftian fyriríiggjandi í heildsölu.
Reykjavik.
Pórður Sveinsson & Co. h.f
fSAFOI.DARPKKNTSMIÐJA H.F.