Stormur


Stormur - 09.12.1939, Side 2

Stormur - 09.12.1939, Side 2
2 STORMUR landi „frá framleiðslunni“ til þess að setjast við „innivinnm með föstu kaupi“ hjá ríkinu og ríkisstofnunum, en inn- fæddir Reykvíkingar verða að ganga atvinnulausir vegna þessara aðskotadýra. Og stóreflis fyrirtæki og skrifstofu- bákn eru stofnuð til þess að geta fjölgað málaliðinu, og mönnunum, sem notaðir eru sem milliliðir til þess að draga fé úr ríkissjóðnum til þess að halda uppi flokkaáróðrinum. — Og þegar einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins, Jón Pálmason, ætlar að gera skyldu sína, leysa samviskusam- ,lega af hendi það starf, sem honum hefir verið falið, og birta nöfnin á þessum ,,afætum“ og tölur yfir hvað æti þeirra kostar ríkissjóðinn og íslensku þjóðina, þá rísa auð- vitað þessar afætur og verndarar þeirra upp og banna að ósóminn komi fyrir almennings sjónir. — Banna, að flett sé ofan af óráðvandasta og siðspiltast stjórnarfarinu, sem nokkru sinni hefir ríkt í þessu landi. — Þingið hefir nú tekið á sig heilmikla rögg gagnvart Kuusinenmönnum, kommúnistunum íslensku, sem lifa í trú en ekki í skoðun. — Sjálfsagt harma hvorki eg eða þú það, að þessum arftökum þeirra manna á Sturlungaöldinni, sem alt sitt ráð sóttu undir erlent vald, sé viðeigandi lítiis- virðing sýnd. — En þess er rétt að minnast, að kommúnist- arnir íslensku og Stefáns-Jóhanns-flokkurinn — eða hvað hann nú heitir — eru í sama blóðflokknum, hafa lengstum unnið saman, eru líkir að innræti og hafa sama markmið. Og það er ekki heldur rétt að gleyma því, að þessi fóstur- börn Stalins eru líka fósturbörn Hriflu-Jónasar og Fram- sóknarfiokksins. Og mikið má það vera, ef Stefán Jóhann, Haraldur, Sveinbjörn Högnason og ýmsir aðrir jafnaðar- og fram- sóknarmenn, sem eru hreinir byltingarmenn í hjarta sínu, yrðu lengi að „láta sér segjast" — svo að gamalt orðtæki Stefáns Jóhanns sé notað — ef svo skyldi fara, að rúss- neski risinn teygði hramma sína yfir Noreg og Svíþjóð. — Mér er nær að halda, að þessir menn myndu þá jafnvel verða enn auðmjúkari í þjónkun sinni en t. d. Héðinn Valdi- marsson. — En það er auðvitað ákaflega þægilegt og kær- komið fyrir Stefán Jóhann og hinn hrörnandi flokk hans, sem dauðahryglan var komin í, að fá annað eins tækifæri og þetta, sem kommúnistar hafa nú gefið þeim, upp í hend- urnar. — Má vera, að þessi fíflskapur kommúnista og undir- lægjuháttur, megi enn um stund verða til þess, að skýla rotnuninni og spillingunni í hans eigin flokki — og bræðra- flokknum — Framsóknarflokknum. Vertu svo bless. Þinn einl. Jeremías. Happdrætti Háskóla íslands Notið tœkifærið. I 10. flokki eru 2000 vinningar. Samtals 448900 krónur. Happdrættisvinningar koma sér vel fyrir jólin. Ur bréfum Stephans G. Stephanssonar I. í bréfi til Guttorms J. Guttormssonar 1909 skrifar Stephan: Ég hefi aldrei allskostar verið ánægður með sjálfan mig, en nú er ég þó þeim þakklátur, sem geta gert sér kvæðin mín að einhverju góðu, og líklega er ég aldursforseti þess, sem einu sinni var ófyrirleitnast í íslenskum kveðskap, þess, sem að vilst hefir vestur á bóginn. Huggunin í öllum leirburðinum er nú þetta, að hafa „ærlega reynt að gera það bölvaðasta“, eins og við strákar sögðum stundum heima, þegar við unnum dýran eig og drengilegan. Víst væri gaman að gá Gvend frá Sandi vestur, ef þú getur komið því til leiðar, en ekki held ég að „Matta“ skáldi lítist á það, því að honum er síður um, að Gvendur sé jafnoki sinn í neinu, og við sendum ,,Matta“ til Chicago, eins og þú kannske manst, sýningarárið góða, þegar hann villtist á járnbrautinni í Minnisota, og kom hvergi fram í mannabygð, og laumaðist frá únitörum yfir í lútherskra land, sem segir í „Chicagó-förinni“. II. Úr bréfi til Eggerts Jóhannssonar 1909 : .... „Ég man ekki til. að Englendingar eða Ameríkumenn hafi rekist á gott hjá annara þjóða mönnum fyrr en Frakkar eða Þjóðvei’jar höfðu sýnt þeim það. I bókmenntum eru menn af ensku kyni þrörisýnastir sjálfbirgingar af mentuðu stór- þjóðunum. Og dagblöðin herma, þau hafa flest ekki vit á neinu öðru en því, hvernig því og því verður snúið upp í glamur og gylling fyrir sig og sína. Ef t.d. .Westerward Ho‘ hefði fengið tvær línur af stirðasta leirburði frá Kipling með nafninu hans undir, hefði það gleiðgosalegað þeim á titil- blaðið með miklum kostnaði og sent svo sem 1000 sterl- ingspunda ávísun. Brandes, Björnson, Ibsen, Tolstoj, allir heimsfrægir bókmenntamenn, láta aldrei sjá sig í Englandi. Þeir fara til Frakklands, Þýskalands og Rússlands, jafnvel Póllands. Þeir vita hvers vegna. Er þá von, að snáðar eins ég eigi þangað erindi. III. í bréfi til Baldurs Sveinssonar 1910, gerir Stephan svofelda grein fyrir trúarskoðun sinni: „.....Og satt að segja, ég hefi trú á lífinu, mönnunum — en guð og himnaríki finnst mér fátt um. í fám orðum, ég held við þetta: Lífið er eilíft, eins langt og séð verður, var til og verður til. Það er alls um vert, að um það fari sem best. — Það, sem einstaklingurinn á sameiginlegt með lifanda manna lífi, lifir þótt hann deyi. Þegar þess arna kennir í kvæðunum mínum, er það ekki af því, að ég telji mig „trúboða“ van- trúarinnar, heldur hitt: Hefði ég nokkurn tíma mátt mín, hefði ég freistast til að flýta fyrir degi, þegar það yrði leng- ur engum unnt að falsa vigt manngildisins á villuvog guð- fræðinnar. Svo hefi ég sagt þér eins og er, Baldur minn!“ ÖLL LEIKFÖNGIN ÚR E D IN B O RG

x

Stormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.