Stormur - 25.11.1940, Blaðsíða 3

Stormur - 25.11.1940, Blaðsíða 3
STORMUR 3 Undralond A§íll Japönsku keisararnir eru ekki krýndir og engin kóróna er til. Þeir setjast sjálfkrafa að völdum, en nýi keisarinn gefur samstundis út hina keisaralegu tilskipun sína. Til- skipunin eða yfirlýsingin sem Hirohito birti, er hann tók við völdum, var á þessa leið: ,,Þar sem vér með náðarsamlegri hjálp hinna keis- aralegu forfeðra vorra höfum sest að ríkjum eftir fyrirrennara vorn, samkvæmt ríkiserfðum, sem frá örofi alda hafa verið óslitnar og hafa veitt oss vald- ið til þess að stýra og stjórna ríkinu, höfum vér nú int af hendi allar hinar hátíðlegu athafnir, sem ríkistökunni fylgja. Það er ákvörðun vor, að beygja oss undir grundvallarlög ríkisins, rækja hinar arf- teknu dygðir, og varðveita óflekkaðir hina dásam- legu erfðavenju, sem forfeður vorir hafa oss eftir skilið“. Til krýningarinnar svarar hin mikla ríkistökuhátíð (So- tai-rei) og matarveisla (Daijosai), sem haldnar eru í Ky- oto — hinum forna höfuðstað — eftir að keisarinn hefir tekið við völdunum. Þessar veislur eða hátíðafögnuðir eru sambland af veraldlegum og trúarlegum siðvenjum, svip- að eins og krýning í Westminster Abbey, en það trúarlega má sín meira. Hugh Byas hefir lýst þessu mjög vel í blað- inu Japan Advertizer: Vér sjáum hann (keisarann) eins og prestakonunginn, sem á dularfullan hátt sameinast sál kynflokksins. Þetta dularfulla og trúarlega atriði gengur eins og rauður þráður í gegn um alt hátíðahaldið og helgi- siðina og gefur skýringuna á því hversu áhrifamiklir þeir eru til þess að vekja dýpstu þjóðerniskendina hjá japönsku þjóðinni. Þeir eru lifandi tengiliður milli fortíðar og nútíð- ar, og því annað og meira en viðhafnarmikil erfðavenja". Á ríkistökuhátíðinni, sem haldin er fyr, gengur keisarinn að litlu og fátælclegu Shinto skríni og lýsir því ,,yfir við anda forfeðra sinna, að hann hafi nú sest í hásætið". Því- næst hlustar hann á — klæddur í bleikgulan kirtil (fyrsti litur upprennandi sólar) — á hina opinberu tilkynningu ,,forsætisráðherrans“ um valdatökuna. Sú athöfn er geysi- lega tilkomumikil og á engan sinn líka í Evrópu eða Asíu. „Það tilkynnist hinmu lifandi heimi, sem áður hefir verið tilkynt öndunum“. Að endingu fer svo fram einskonar uppskeru helgisiður, sem keisarinn framkvæmir einn. Hann gefur guðunum mat, og talar einslega við hina himnesku ættmenn sína í afviknum kofa. Þrjú tákn um keisaradóminn og guðdóminn eru lang- samlega þýðingarmest í þessum helgisiðum: spegillinn, hálsfestin og sverðið, sem sólgyðjan „gaf“ Jimmu, sem tákn um völd hans. Heilagastur þessara gripa er spegillinn, því að í honum sést sál sólarinnar. Jafnvel ekki keisarinn má horfa í hann. Hann er geymdur í svörtu ski'íni, fóðruðu með hvítu silki, í hofinu mikla í Isi. En eftirlíking af spegl- inum er geymd í konungshöllinni í Tokyo í herbergi, sem heitir Kash-Kidokoro — staður lotningarinnar. Helgisögnin skýrir svo frá, að spegillinn hafi verið merki- legasta hernaðartækið, fyrr á tímum því að flötur hans hafi endurspeglað hið ægilega og æruverðuga auga sólarinnar, sem blindaði alla fjandmenn. Hálsfestin er úr steinum og er geymd í Tokyo. Af svei'ð inu er aðeins til eftii-líking, því að það týndist í orustu á miðöldunum. Þegar nýr keisai’i sest að völdum veitist hon- um sá í’éttur að taka í vörslur sínar þessa þrjá helgu gripi, en spegillinn verður ávalt að vei’a kyr í Isi-hafinu hjá Na- goya, sem er helgasti staðurinn í Japan, en þar var honum komið fyrir í geymslu af keisara nokkrum þremur ái’um fyr- ir fæðingu Ki’ists. Við rnjög hátíðleg tækifæi’i fer keisarinn til hafsins í Isi — helgidóms sjálfrar sólgyðjunnar. .Erindi hans þá er að skýra sólgyðjunni fi’á mikilvægum ákvæðum. Hann fór þangað þegar faðir hans dó, bæði á undan og eftir ferð sína til Evrópu, eftir brúðkaup sitt o. s. frv. Ef Japan lýsti yfir sti’íði mundi hann tafarlaust fara þangað. Þegar ráð- herrar hans og háttsettir embættismenn taka við störfum verða þeir undir eins að fara þangað til að biðjast fyrir og skýi’a sólgyðjunni fi’á útnefninu sinni. Það er fyrsta em- en treysta mest eigin fyrirhyggju. Hann hefir keypt hjónatryggingu og líftryggt bæði börnin. Svo bjóða þau framtíðinni byrginn.

x

Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.