Stormur - 25.11.1940, Síða 4

Stormur - 25.11.1940, Síða 4
4 bættisskylda þeirra. Fyrir nokkrum árum bar það við, að ráðherra nokkrum að nafni Hari varð það á, er hann var í heimsókn hjá gyðjunni, að lyfta upp fortjaldinu að hof- inu með göngustaf sínum. Hann var myrtur á laun, og morðingi hans dáður sem hetja. Hér á eftir fer ein tilvitnun úr „Japan Advertiser“: „Hofið í Isi er ekki aðeins helgur staður í trúarlegri merkingu, heldur er það ennfremur sýnilegt tákn allra eðl- iseinkenna þjóðarinnar. Tilbeiðsla hennar á því felst í orð- inu makoto, sem ekki er hægt að þýða nákvæmlega. Föð- urlandsást, þjóðerniskend, keisaradýrkun og aðstaðan til krúnunnar felst alt í þessu eina orði, er alt makoto, en ekk- ert af þessu felur í sér alla merkingu orðsins. En í því felst einnig: trygð, sonarleg lotning og ættrækni, sem er sterk- ari persónukendinni. Öll þessi hugtök felast í makoto, en ekkert þeirra hefir nákvæmlega sömu merkingu í Japan CEREBOS borðsalt er þekkt um víða veröld, enda tek- ur það langt fram öllu öðru salti Vörpugam Botnvörpur Línugarn Biodigarn H.F. HAHPIÐJAN Símar: 4390 4536 . 8ímnefni: Hampiðja STORMUR sem í Evrópu eða Ameríku. Vér getum ekki skilið þá lotn- ingu, einlægu konungshollustu og ættartilfinningu, sem Japaninn er gagntekinn af til keisara síns og um leið allrar þjóðarinnar og sín sjálfs, sem brots af henni“. Fyrir nokkrum mánuðum stóð ég við innganginn að hinu mikla Meiji hofi í Tokyo. Það er ákaflega merkilegt að sjá Japana biðjast fyrir. Þetta var síðari hluta dags og það rigndi mikið. Konur í kvenvestum og aldraðir menn í diplomat frökkum streymdu til hofsins. Þegar komið var í námunda við það — alt fór fram utan húss — hneygðu þeir sig og skeltu saman lófunum til þess að kalla á and- ann, sem þeir ætluðu að komast í samband við. Síðan töl- uðu þeir stutta stund við látinn forföður sinn, lágt og inni- lega. Síðan hneygðu þeir sig aftur, vörpuðu koparskilding- um yfir hálmmottuna, hneygðu sig enn, og hurfu svo á brott, aftur á bak. Er ég kom til Japan heimskaði ég mig á því, að bera fram þessa spurningu: „Ef keisarinn sjálfur er guð, hvern ákallar hann þá?“ Hlutleysi Grein þessa ritaði ég 15. október þ. á. og sendi „Vísir“ og bað hann flytja, en það hefir ekki orðið. Tek ég því þann kost, að biðja „Storm“ fyrir greinina, sem hér fer á eftir orðrétt: „Forystugrein í Vísi í gær, hvetur mig til þess, er ég hefi lengi ætlað, að rita örfá orð um orðið hlutleysi, sem nú er mjög hampað, og á lofti haldið, og verður þetta þó til engr- ar hlítar gert; en ég ætla að fordæmi til þess að þjóðir brjóta eigið hlutleysi engu síður en hlutleysi annara þjóða, þegar þeim virðist svo best hlýða. Þegar Italir höfðu fyrir nokkrum árum sigrað Abyssiníu- menn, sendi danska stjórnin ítölum, eða Mussolini heilla- óskaskeyti, og samfagnaðar. Hið sama gerði sendiherra vor í Kaupmannahöfn, herra Sveinn Björnsson, fyrir íslands hönd. Ekki veit ég, hvort hann gerði þetta að fyrirlagi ís- lensku ríkisstjórnarinnar, eða ekki. Mér þótti þarna hrófl- að við hlutleysi Islands, þó varla mætti hætta af stafa. Lét ég þetta berast í tal við nokkra menn, og töldu þeir flestir Svein þarna hafa leikið af hinni mestu snilld bæði diplo- matiskt bragð og ökonomiskt. Hann hefði með þessu komið oss í varanlega vináttu við ítali, er oss væri mikilsverð, og auk þess tryggt oss mikinn og góðan saltfiskmarkað á Ítalíu þessa öld, og líklega miklu lengur. Dirfðist ég ekki að mót mæla, svona viturlegum og sterkum röksemdum, þó ég fengi ekki skilið hvernig slík brögð mætti duga til markaðs- öflunar, og skilji ekki enn, enda hefi ég aldrei haft fyrir að grennslast um, hvernig saltfisksmarðaðinum á ItalíU hafi brugðið við skeyti Sveins. Kem ég nú að öðru dæmi. Nokkru eftir aldamótin síðustu áttu Rússar og Japanar í grimmum ófriði. Árið 1904 á- kváðu Rússar að senda eystrasaltsflota sinn í Austurveg til þess að herja á þeim gulu. Kröfðust þeir þess, að Danir léðu þeim lóðsa til þess að segja flotanum leið út um Stórabelti. Gerðu Danir það svo sem þeim var vænlegast, því ella hefði þeir vafalaust orðið illa fyrir barði Rússa. En öllu grófara hlutleysisbrot en þetta danska getur varla verið um að ræða. Er nú komið að lokum máls míns, sem ritað er til þess að sýna það að orðið hlutleysi er orðblaðra ein, ei þjóðii sprengja jafnt fyrir sjálfum sér og öðrum þjóðum, þegar þeim virðist svo betur horfa og nauðsyn bjóða. Ritað 15. október 1940. Árni Árnason (frá Höfðahólum). ÍSAFOI-DARFRENTSMIDJA H.P.

x

Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.