Stormur - 09.06.1941, Síða 1
STORMUR
Ritstjóri: Magnús Magnússon
XVn. árg. Reykjavík, 9. júní 1941. 14. tbL.
JEREMIASARBRÉF
Reykjavík í júní 1941
Gamli kunningi.
í viðtali, sem Morgunblaðið átti við Ólaf Thors atvinnu-
málaráðherra nýlega, kvartar Ólafur undan því, með hversu
mikilli lítilsvirðingu almenningur tali um Alþingi. Segir
hann, sem rétt mun vera, að fjölmargir telji að þingið leysi
lítil störf af hendi, og að yfirleitt fari vegur þess og virðing
hnignandi.
Ráðherrann telur, að það sé illa farið, að almenningur
hafi þessa trú, og þetta orðbragð um löggjafar samkomuna,
og hann telur einnig, að þetta almenningsálit hafi ekki við
rök að styðjast. — Þingið vinni bæði mikið og vel, en það
villi almenningi sýn, að vinnubrögðum þess sé nú öðruvísi
háttað en áður var. — Þingmenn séu nú að mestu hættir að
þreyta orðræður langar í þingsölunum, en í þess stað sé nú
málunum ráðið til lykta í nefndum og á flokksfundum þing-
manna eða þá í samstarfi þingflokkanna bak við tjöldin. Má
heyra að ráðherranum þyki hér um framför en ekki aftur-
för að ræða. — Loks telur hann þetta þing hið merkilegasta,
þótt ekki væri nema vegna afskifta þess af sjálfstæðismálinu
einu, en auk þess hafi það fundið viðunanlega lausn á skatta-
málunum — einhverju mesta og erfiðasta deilumáli stjórn-
málaflokkanna — og enn sé það svo að leita að heppilegri
lausn á dýrtíðarmálunum.
Auðvitað er það rétt hjá ráðherranum, að það er mjög
illa farið og jafnvel stórhættulegt að þingið skuli njóta jafn
lítillar virðingar og það óneitanlega gerir nú hjá öllum
þorra manna.
Eins og allir vita, er nú háð harðari orusta um tilveru
lýðræðis og þingræðis í heiminum en nokkru sinni hefir
fyrr verið háð. Mestu stórveldi veraldarinnar heyja þenna
hildarleik og enginn veit hvernig honum lýkur. En það vita
allir, að ef hin svokölluðu möndulríki vinna algei’an sigur,
að þá er úti um lýðræðið og'þingræðið í venjulegustu og
eiginlegustu merkingu þessara orða.
Við íslendingar höfum um nokkra tugi ára haft lýðræði
og þingræði að nafninu til. Allflestir af oss þykjast a. m. k.
unna þessu stjórnfyrirkomulagi, og nú hefir Alþingi með
ákvörðun sinni um að konungssambandinu skuli slitið við
Danmörku og lýðveldi stofnað, lýst því yfir, að það telji þetta
stjómarfyrirkomulag best.
Það má því teljast í mésta máta furðulegt, að um leið
og allur þorri manna telur lýði’æðið og þingræðið ákjósan-
legast, skuli hann fara niðrandi lítilsvirðingarorðum um
þá stofnun, sem fyrst og fremst ber þetta stjórnarform uppi
— Alþingi.
Hvað myndi líka geta orðið lýðveldi voru hættulegra ent
það, að þjóðin missi alla virðingu fyrir Alþingi? Er þá ekkt
í raun og veru brostinn grunnurinn undir lýðveldishöllinni,
og er þá nokkuð annað líklegra en að einhver íslenskur Hitler
eða Mussolini hrifsi til sín einræðisvaldið, þegar minst von-
um varir?
En um leið og ráðherrann bendir á þá hættu, sem af
hinni sívaxandi lítilsvirðingu fyrir Alþingi getur leitt, er
það harla mikilsvert, að bæði æðstu valdamenn þjóðarinnar
og allur almenningur reyni að gera sér Ijóst, hverjar ástæð-
$
t
t
t
!
*H^HinXwX‘*W*‘HnH‘‘X**t**i**íMJ**I**Hf
STORMUR
*!♦
hefir verið sendur allmörgum mönn- £
um hér í bænum frá nýári. Eru nú t
♦*♦•
þeir menn, sem ekki vilja gerast kaup- %
endur að honum vinsamlega beðnir að ý
endursenda þetta blað, eða tilkynna í t
*♦*
síma 4191, að þeir kæri sig ekki um t
það. Hinir, sem hvorugt gera, verða
taldir kaupendur að blaðinu. Það kost- ;!;
ar 1 krónu á mánuði og hefur ekkert |
hækkað, þrétt fyrir alla dýrtíðina. Þess f
*♦*■
skulu menn Iíka minnast, að Stormur f
X
er eina blaðið, ser?i elcki er háð nein- ;!;
*♦• ■
um stjórnmálaflokki og þorir því að |
gagnrýna gerðir þeirra og ríkisstjórn- t
arinnar. X:
Eflið og styrkið STORM með því ;!;
að gerast kaupendur hans og aflið
honum nýrra kaupenda. |