Stormur


Stormur - 03.06.1942, Qupperneq 1

Stormur - 03.06.1942, Qupperneq 1
S T O R M U N Ritstjóri: Magnús Magnússon XVIII. árg. Reykjavík, 3. júní 1942. 13. tölublað. Jeremíasarbréf Reykjavík í maí 1942. Gamli kunningi! Áliðið var orðið þiingtímans, þegar ekki var útlit fyrir annað en að þetta ný afstaðna þing mundLverða með þeim lélegustu, sem haldin hafa verið, og hafa þó afrek margra verið næsta lítil. En þessu þingi lauk svo. að það mun æ verða talið með þeim merkari og ber tvennt til. Annað er það, að því bar gæfa <41 að hrinda úr valda- stóli stjórn þess flokks, sem um fimtán ár hafði farið með æðstu völdin í landiu og misbeitt þeim svo, að óhlutdrægir sagnritararseinni tíma munu verða sammála um það, að ójafnaðarfyllri og ósvífnari stjórnmálaflokkur hafi aldrei starfað í íslenskum stjórnmálum. — Stjórnmálaflokkur, sem mútaði os? þá mútur og lét æ sína hagsmuni sitja ífyrir- rúmi fyrir hagsmunum þjóðarinnar. En hitt afrek þingsins er stjóniarskrár breytingin, sem hefir það í för með sér, að framsóknarflokkurinn mun tapa 6 þingsætum, sem hann hefir ranglega haldið í mörg ár, en þau sæti hljóta þeir flokkar, sem fullan réttt hafa haft og eiga á þeim. Með þesari miklu réttarbót er loku fyrir það skotið, ao framsóknarflokkurínn geti nokkurntíma hlotið það þingfylgi, að hann verði forystuflokkur í íslenskum stjórnmálum, og þó svo ólíklega kjmni að fara að hann ætti einhverntíma eftir að mynda stjórn, þá myndi þing- val dhans vera svo lítið, að hann þyrði ekki að beita því einræði og þeiiri ósvífni, sem hann beitti meðan hann naut hins .rangfengna þingmanna fjölda. I útvarpsumræðunum um þctat mál báru formæl- pndur Sjáifstæðisflokksins — ráðherramir brír — langt af andstæðingum sínum. Málflutningur alh-a var rök fastur, rólcgur og prúðmannlegur. Þeir lýstu því allir yfir, að þeir hefðu verið fylgjandi kosninga frestun til þess að friður og samstarf gæti haldist, en þegar framsóknar- flokkurinn sleit friðinn og ætlaði að knýja fram kosn- ingar án stjórnarskrárbreytingar, var ekki hægt að hafa samstarf við þessa ófyrirleitnu flokkshagsmuna menn, og þá var ekki önnur leið fær, en sú sem farin var. Lýstu þeir því allir yfir, að þeir myndu fylgja fast fram oí? ein- læglega stjómarskrárbreytingunum, og einn þeirra, Jakob Möller, kvaðst nú vera farinn að sjá, að sér hefði skjátl- ast, er hann vildi halda áfram samstarfi við þessa ósvífnu menn, sem skirtust ekki við að stofna til upplausnar á hættulegustu tímum. Han lýsti því líka yfir, að þótt sú ógæfa henti þenna flokk, að hann fengi stöðvunarvald, bá mundi það ekkert gagna honum, því að kosningum yrði haldið áfram þar til yfir lyki og fullu réttlæti vær. náð. Það er þetta stöðvunarvíald, sem framsóknarmenn heimta af kjósendunum. Hann heimtar það af þeim, að þeir séu svo illgjarnir og ofstopafuhir að þeir ekki að- cins kjósi þá 19 þingmenn, sem um 15 ára skeið hafa framið og lagt samþykki á öll óhæfu verkin, sem unnin hafa verið í stjórnmálunum, heldur bæti 5—6 þingmönn- um við svo að hægt verði að hindra það, að kjósendur njóti þess réttar, sem þeim ber og þeim er ætlaður i sjálfri stjórnarskránni. En hver eru þá líkindin fyrir því að hann hljóti þetta vald? — Til þess verða þeir að haláa öllum t/ímennings kjördæmunum, sem þeir nú hafa og bæta við 5—6 kjör- dæmum, sem Sjálfstæðismcnn hafa haft þingumboð fyrir. Þau kjördæmi sem framsóknarmenn gera sér nokkra von um eru þessi: Vestur-Skaftafellssýsla, Akureyri, Aust- ur-Húnavatnssýsla, Dalasýsla, Vestur-Isafjarðarsýsla og Snæfellsncssýsla. Er það nú herbragð þeirra að taka annan þing- manninn úr sumum tvímenningskjördæmunum og tefla þeim fram í þessum vonar kjördæmum. Stafar þetta bæði af því, að þeir hafa lélegt mannaval nýrra og ungra manna og svo hitt, að þessir menn eiga þótt þejr falli nú, að fara þar fram í haust og síðar. Sagt er að Sveinbjörn Hö(gnason prestur eigi að fara í Vestur-Skaftafellssýslu gegn Gísla Svcinssyni sýslu- manni. — Prests planta þessi mun ættuð þaðan, þó ólíklegt megi virðast því að margt er þar góðra grasa. _____Um Sveinbjörn þenna er það að segja, að hann er tillaftna verstur hinna nýju brennumanna og jafnframt er hann sá, sem einna mesta bitlingana hefir þegið, enda einn af hátekjumestu embættismönnum þjóðarinriar. Er hér mikill manna munur á frambjóðendum. Gísli Sveinsson er, eins og öllum er vitað, einhver flekklaus- asti embættismaður þessa lands. Drenglundaimaður og prúður, sem í engu vill vamm sitt vita, gáfaður maður og mentaður, og einn af helstu forvígismönnum þjóðarinnar í vsjálfstæðisbaráttu hennar, bæði að fornu og nýju. Yrði Skaftfellingum að því mikil hneisa, ef þeir tækju prestsribbalda þenna og orðhák, fram yfir þenna prúða, gáfaða og flekklausa mann. Vesalings Rangæingarnir eiga að njóta áfram gáfu- mannsins á Stórólfs-Hvoli, sem sagður er skýrastur í hugsun allra framsóknarþingmanna og fegurst talaður. Ekki hefir heyrst, hver eigi að fara með honum, en langt fyrir neðan meðallag af gáfum mætti sá maður vera — enda hafa framsóknarmenn gnótt slíkra manna — til þess að samanlagðar gáfur þeirra Helga og hans yrðu þó ekki flokknum til sæmdar. Á Akureyri er sagt, að maðurinn sem ekki mátti vera

x

Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.