Stormur - 03.06.1942, Page 3

Stormur - 03.06.1942, Page 3
S T 0 R M U R 3 Druknun Þorsteins Sigurðssonar . Þorsteinn hét maður Sigurðsson frá Hnausum í Húnavatns- sýslu. Ilann var greindur, smiður góður og talinn vel að sér til munns og handa og fékk gott orð. Hafði hann áður búið í Iiaga í Þingi. Þorsteinn átti konu þá er Ragnhildur hét og var systir henn'ai' Arnþóra, er flutst hafði suður á land og komist þar í kynni við mann er Jón hét; var hann talinn tveggja handa jám, en skáldmæltur vel. Arnþóra fluttist til hans. Fóru þau bæði litlu síðar norður í kaupavinnu. Fór Amþóra til systur sinnar að Haga og var þar um sumarið. Um haustjð fór Þorst. með henni í Vatnsdalsréttir; var hús- bóndi hennar þar íyrir og tók á móti kaupi hennar og henni. Þótti Jóni það lítið, en Þorsteinn kvaðst hafa vel goldið. Varð þeim þetta að sundurþykkju og kvöddust þungum orð- um á. Og er þeir skildu kastaði Jón fram stökum fjórum og eru þannig tvær þeirra: Fyrir hrelling háðungar handar svella viður, þar sem fellur flóð í mar feldu elli niður. Auðs fyrir beðju atlotin, af því gleðjast máttu. Þarna er kveðjan, Þorsteinn minn; þér vel geðjast láttu. Árið eftir reri Þorsteinn úti á Skagaströnd og var formað- ur á skipi er Jósep Skaftason læknir átti. Er hann fór h'eim hélt hann skipinu inn í Húnaós og fórst þar. Var þannig sem ummæli Jóns rættust. Tilkynning frá ríkisstjórninni. Breska flotastjómin hefir tilkynnt íslensku ríkis- stjóminni að nauðsynlegt eé að öll íslensk skip, 10—750 smál. að stærð fái endurnýjuð eins fljótt og hæg er, ferða, skírteini þau, sem ræðir um í tilkynningu ríkisstjórnarinnar dagsett 7. mars 1941. Skírteini þessi verða afgreidd sem hér segir: I Reykjavík hjá breska aðalkonsúlnum, á Akur- eyri hjá býeska vicé-konsúlnum, á Seyðisfirði hjá bresku flotastjóminni og í Vestmannaeyj- um hjá bresku hernaðaryfirvöldunum. Atvinnu- og samgöngumála- ráðuneytið, 27. maí 1942. Aöalfundur Utvegsbanka Islands h.f. verður haldinn í húsi banltans í Reykjavík föstudaginn 5. júní 1942, kl. 2 e. h. Dagskrá: 1. Skýrsla i'ulltrúaráðsins um starfsemi Útvegsbankans síðastliðið starfsár. 2. Framlögð endurskoðuð reiknisuppgerð fyrir árið 1941. 3. Tillaga um kvittun til framkvæmdarstjórnar fyrir reikningsskil. 4. Kosning tveggja l'ulltrúa í fulltrúaráð og jafnmargra varafulltrúa. 5. Kosning tveggja endurskoðunarmanna. 6. Breyting á samþyktum hlutafélagsins. 7. Önnur mál. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir í skrifstofu bankans frá í. júní n. k. og verða að vera sóttir í síðasta lagi daginn fyrir fundihn. Aðgöngumiðar verða ekki af- bentir nema hlutabréfin verði sýnd. Útibú bankans hafa um boð til að athuga hlutabréf, sem óskað er atkvæðis- réttar fyrir og gefa skilríki um það til skrifstofu bankans. Reykjavík, 28. apríl 1942. f. h. fulltrúaráðsins Stefán Jóh. Stefánsson. Lárus Fjeldsted. r Utgerðarmenn. Leyfum oss hér með að tilkynna yður að fyrir- tæki vort hefir nú tekið til starfa, og munum vér framvegis hafa ís til sölu. — Sími 5532. Hraðfrystistöðin í Reykjavík h.f. við Mýrargötu. Tilkynning frá Pásf- o« símawiálafiffárnðnol Hinn 17. maí hófst að nýju beint símskeytasamband við Ameríku. — Frá sama tíma eru öl) símskeytaviðskifti við útlönd háð skeytaskoðun Bandaríkjasetuliðsins og gilda um þá skeytaskoðun og skeytaviðskifti við útlönd yfirleitt sérstakar reglur, sem fást í afgreiðslusal lands- símans í Landssímahúsinu. Öl) skeyti til útlanda, sem afhent verða á landssíma- stöðina í Reykjavík, skulu vera í 2 samhljóða eintökum. faafoldarprentsmiöja h.f. V %

x

Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.