Sendiboðinn - 18.12.1945, Blaðsíða 1

Sendiboðinn - 18.12.1945, Blaðsíða 1
Siglufjarðarprentsmiðja Siglufirði, þriðjudaginn 18. desember 1945 2. tölublað HEIMILEÐ ER FYRSTI SKÖLINN Hin svonefnda skólaskylda 4 íslandi byrjar um 7 ára aldur og stendur 7 ár. Ákveðnar reglugerðir gilda um það, hve mikla menntun barnið á að hafa hlotið að því námi loknu. Það er kunnara en frá þurfi að greina, hve mis- jafnlega vel börnin standast þau próf, sem krafizt er af börnunum að loknu skólanámi. Sum börnin standast prófin vel, önnur sæmilega og nokkur alls ekki. Telja verður, að kröfur þær, sem gerðar eru, séu nokkurnveginn við hæfi, en þó munu margir skólar stilla kröfum nokkuð hærra, en stranglega er fyrir mælt í fræðslulögum. Þetta er í sjálfu sér eðlilegt og sanngjarnt, ef nánar er athugað. Kröfur fræðslulaganna eru fyrst og fremst lág- markskröfur. Þ. e. þær eru kröfur, sem ætla má að nærri hvert barn geti staðist. Þá gefur að skilja, að fjöldi barna getur betur en staðist þessar lágmarkskröfur' og skólarnir eru vitan- lega skyldir að koma hverju barni svo langt áleiðis og stendur í þeirra valdi og barnið er fært um. Kröf- urnar, sem skólinn gerir til duglegustu barnanna verða því að jafnaði hærri en lágmarkskröfur fræðslulaganna. Samt er það staðreynd, að á hverju ári eru í sér- hverjum skóla nokkur börn, sem alls ekki standast þær lágmarkskröfur, sem til þeirra eru gerðar. Það virðist nú liggja beinast við að álykta, að hér sé aðeins um tvær orsakir að ræða. Þ. e. að annaðhvort sé skólinn ekki sínu hlutverki vaxinn, eða þá að þessi böm séu öll það gáfnatreg, að þau séu fyrir neðan það meðallag, sem fræðslulögin gera ráð fyrir. Að fyrri ástæðunni um vangetu skólanna mun ég víkja nánar síðar, en athuga fyrst lítilsháttar hina hlið málsins um gáfnafar hinna tornæmu bama. Á því leikur að vísu enginn vafi, að einstaka börn eru það vangefin, að þau eru alls ekki fær um að læra það, sem lögboðið er undir fullnaðarpróf, en ég vil leyfa mér að fullyrða, að þau séu í rauninni sára- fá og miklu færri, en almennt er haldið, ef þau hefðu frá byrjun fengið þau þroskaskilyrði, sem þeim voru nauðsynleg. Þegar börnin koma í skólann eru þau misjafnlega undirbúin sem vitanlegt er. Sum eru orðin nokkurn- veginn læs og jafnvel farin að skrifa og reikna, en önnur hafa ekki „séð staf“ sem kallað er. Það ræður náttúrlega af líkum, hversu miklu léttara þeim börn- um verður um allt nám, sem þegar hafa fengið sæmilega undirstöðu, þegar þau koma í skólann. Þessi mikli munur er svo sýnilegur, að hann liggur öllum í augum uppi, en þó er það annar og meiri að- stöðumunur þessara barna, sem erfiðara er að sýna í tölum, en þó er öllu afdrifaríkari. Það er staðreynd, að nokkur þeirra barna, sem í skólanna koma „alveg óundirbúin“, sem kallað er, eru mjög fljót að semja sig að náminu og standa e. t. v. eftir tvö til þrjú ár algerlega jafnfætis þeim börnum, sem komu sæmi- lega læs í skóla án þess að gáfnafari einu sé til að dreifa. Sannleikurinn er sá, að þessi börn komu ekki óundirbuin. Þeim hafði e. t. v. ekki verið „sýndur stafur“ en hæfileikar þeirra höfðu fengið þá þjálfun, sem er meira virði en tveggja ára barnaskólanám. Þau hafa þegar þroskað hæfileika sína í samræmi við það aldursskeið, sem þau eru á. Þau hafa enn- fremur hlotið þann aga í uppeldinu, sem nauðsynlegur er til þess að þau geti samið sig að skólaaganum. Þau hafa kynnzt reglubundnu hátterni og lært að upp- fylla vissar skyldur. En mikilsverðast er þó að þau hafa fengið æfingu í að leysa margvísleg verkefni og leggja fram andlega og líkamlega krafta sína til þeirrar úrlausnar, stundum jafnvel til hins ýtrasta. Þótt þau hafi ekkert lært í lestri, skrift eða reikn- ingi hafa þau lært skil á algengustu hlutum í kringum þau. Þau hafa e. t. v. lært að telja; þau hafa lært vísur og kvæði, lært að þekkja á klukku, nöfn viku- daga og mánaða og margt fleira. Allt eru þetta gagn- legir og nauðsynlegir hlutir, sem hvert barn þarf að kunna fyrir 7 ára aldur, ef vel er á haldið. En hitt er þó meira um vert en þessi atriði sjálf, að með þessu eru þroskaðir námshæfileikar barnsins, getan til að læra og viljinn til að læra. Þeim hefur skilist, að til séu verkefni, sem þau verða að vinna áð og Ijúka við. Sé sæmilega gefið barn búið að fá slikan undir- búning þegar það kemur í skóla 7 ára gamalt, þá er (Framliald á 2. síðu).

x

Sendiboðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sendiboðinn
https://timarit.is/publication/1028

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.