Sendiboðinn - 18.12.1945, Blaðsíða 5
5
SENDIBOÐINN
STUNDVISI OG SVEFNÞÖRF
SKÓLABARNA
Ein af þeim skyldum, sem skólarnir leggja á nem-
endur sína er stundvísi. Því hefur verið haldið fram,
að Islendingar væru ekki jafnokrar annarra menn-
inga þjóða á þessu sviði.
Um það atriði mun ég ekki ræða í þessari grein,
eh mun hinsvegar fara nokkrum orðum um stund-
vísi skólanemenda og gildi hennar.
Eins og áður er sagt, kref jast allir skólar þess af
nemendum sínum, að þeir mæti stundvíslega í
kennslustundir.
Af hvaða ástæðum skólarnir gera þetta er óþarft
að fjölyrða. Allir geta gert sér grein fyrir því, hve
mikill vinnufriður væri í skóla, þar sem nemendur
væru að tínast inn, megin hlutann af kennslustund-
inni.
Afleiðingin af því yrði þessi.
Nemendur sem kæmu á réttum tíma fengju ekki
vinnufrið, fyrir hinum, sem ekki höfðu hirðu á því að
koma á tilsettum tíma.
Hinsvegar er kennslustundin glötuð þeim, sem ekki
koma nógu snemma að meira eða minna leyti.
Skólarnir gera því ýmsar ráðstafanir til þess að fá
nemendur sína til þess að virða mikilvægi stund-
vísinnar, t. d. með því að halda skrá yfir fjarvistir
og óstundvísi. Ennfremur með því að loka skólanum
o. s. frv. Nú mun það vera reynsla við flesta eða alla
skóla, að óstundvísi gæti mest í fyrstu stund, þ. e. a. s.
á morgnana. Þáð teljum við kennarar að stafi af því,
að svefnþörf barnanna sé ekki gætt sem skyldi. Allir
vita, að börn þurfa að sofa meira en fullorðnir, en
þessu er ekki alltaf gefinn sá gaumur sem skyldi.
Nokkuð er það talið misjafnt, hve mikils svefns hver
einstaklingur þarf, en þó er talið, að ekki megi
skakka meira en einni klukkustund frá þeim tíma,
er hér er talinn ef vel á að vera séð fyrir svefnþörf
barna:
6—10 ára IOV2—HV2 klukkustund
10—15 ára 10 —10 V2 klukkustund
Af þessu má sjá, að börn á aldrinum 6—10 ára
HEIMANÁM SKÓLABARNA
(Framhald af 4. síðu).
leggi fram sinn skerf til þess, að árangurinn af því
verði sem mestur og beztur.
Þess var áður getið, að upphaflegt hlutverk skólans
er að veita heimilinum hjálp við uppeldi barnanna, og
miðaður við það, að uppeldið fari þó sem áður að
mestu fram á heimilunum.
Benedikt Sigurðsson
þurfa að sofa minnst tíu og hálfa klukkustund á
sólarhring. Börn á aldrinum 10—15 ára minnst 10
klukkustundir í sólarhring. Börn sem eiga að mæta
í barnaskólann tíu mínútur fyrir níu þurfa því í
síðasta lagi að fara að sofa kl. 9—10 á kvöldin.
Það er ekki óvenjulegt hér bæ að mæta skóla-
börnum úti, löngu eftir þann tíma.
Þetta þarf að laga, og kemur þar fleira til greina
en svefnþörfin ein, þótt að hún ein sé ærið nóg tilefni
til þess, eins og áður er sagt. Hér þurfa heimilin, skól-
inn og lögreglan að leggjast á eitt og koma í veg
fyrir, að skólabörn flækist úti, allt til miðnættis og
kennske lengur.
Að lokum þetta. Bam, sem ekki hefur nógan svefn
líður bæði andlegan og líkamlegan skort. Barn, sem
ekki hefur nógan svefn verður fljótlega tekið til
augnanna og önugt í skapi, af því að líðan þess er
ekki góð. Það þreytist fljótt í kennslustundum, á
erfitt með að einbeita huganum að náminu, þótt það
af skyldurækni komi í skólann á tilsettum tíma.
Það er skoðun mín, að skólaböm sofi yfirleitt of
lítið, og margt af því, sem miður fer í uppeldismálum
okkar eigi rætur að rekja til of lítils svefns hjá skóla-
börnum.
Kristján Sturlaugsson
MERKINGAR A FÖTUM
Oft kemur það fyrir, að börnin finna ekki húfur
sínar, stígvél, vettlinga eða annað, er þau fara úr
skólanum. Stafar þetta oftast af því, að viðkomandi
flík, hefur ekki verið nógu vel og greinilega merkt
barninu, og annað hefur tekið hana í misgripum fyrir
sína, án þess að athuga, hvort hún væri auðkennd.
Nauðsynlegt er, að öll stígvél, skór, húfur, vett-
lingar og annað, sem hætta er á að lendi í misgripum,
sé glöggt og auðkennilega merkt. Komi það hins-
vegar fyrir, að hlutur glatist, ætti að gera viðkomandi
bekkjarkennara aðvart, og mun hann þá gera það,
sem hægt er til að finna hlutinn aftur. Öllum óskila-
hlutum er haldið saman, flest húfur, sem engin börn
virðast þekkja. Ættu aðstandendur þeirra barna, sem
týnt hafa fatnaði í skólanum að koma í skólann og
athuga hvort hann er ekki meðal vanskilamunanna,
og þá helzt sem fyrst.
Æskilegt væri, að heimilin litu daglega eftir því
hvort börnin eru á sínum eigin skóm eða hafa sína
eigin húfu, og gerðu þá sem fyrst ráðstafanir til
þess, að misgripin verði leiðrétt.
Hlöðver Sigurðsson. Jóhann Þorvaldsson.
Benedikt Sigurðsson. Kristján Sturlaugsson.
Arnfinna Björnsdóttir.