Skákfélagsblaðið - 16.12.1937, Page 1
SKÁKFÉLAGSBLAÐIÐ
4. árg. Akureyri, 16. desember 1937. 1. tbl.
Jélagjafir
handa ungum og gömlum, og við allra
hæfi:
Bæknr,
sögU', skemmti- og fræðibækur,
innlendar og erlendar, ijóðabækur
og Ijóða-söfn flestra islenzkra skálda.
Sfálf blekungar:
Mont-Blanc, heimsþekktur, og ýms
Rltföng og pappírsvttrur
margt tilvaldar jólagjafir er allt á
einum stað í
Bókaverzlun
Þorsl. Ihorlacius.
Keppni Aljechin os Enwe
um heimsmeistaratignina
hefir ekki einungis vakið áhuga
skákmanna út um víða veröld,
heldur einnig sett af stað meist-
ara íþróttarinnar, sem vildu verða
sjónarvottar að hinum mikla hild-
arleik. Þar getur að líta fyrst og
fremst skákstjórann Maroczy og
einvígisvotta hvors um sig þá
Eliskases og Fine, og er þeirra
hlutverk að hjálpa köppunum við
rannsókn á skákstöðum. Auk þess
eru viðstaddir meistaramir
Kmoch, E. Griinfeld, Flohr,
Reschewsky, Keres, Dr. Tarta-
kower; Dr. E. Lasker kom þama
líka til skammrar dvalar, þá og
enski meistarinn Winter, sem nú
er orðinn albata, ásamt frú sinni.
Skákirnar eru tefldar víðsvegar
um Holland og eru teflendur og
starfsmenn því á stöðugu ferða-
lagi.
Menn höfðu í byrjun orrust-
unnar spáð Euwe sigri og ekki að
ástæðulausu, og virtist byrjun
leiksins styrkja þá spá. Fyrstu
skákina vann Euwe með snild, 2.
skákina vann A., 3. og 4. skákin
urðu jafntefli og 5. skákina vann
E. glæsilega. En nú skipti heldur
en ekki um, því A. vann 6. skák-
ina (í Haarlem 16. nóv.), 7. skák-
ina (í Rotterdam 19. nóv.) og 8.
skákina (í Leiden 21. nóv.), hverja
af annari í bezta stíl. í 9. skák-
inni (í Haag 24. nóv.) sýndi hann
dæmi um snild sína í að ná jafn-
tefli úr verri stöðu og vann 10.
skákina í snildarlegu smámanna-
tafli og stóð nú með 6% : 3%. Kom
nú upp kurr nokkur með Hollend-
ingum og tekið að undrast um
ástæðu þessa. Skyldi þetta nú
vera að kenna fresskettinum, sem
A. hafði stungið í frakkavasa sinn.
Þetta virðist þó ekki líklegt, því
allt hið ytra er E. gersamlega
sama um meðan hann er að hugsa
vjð taflborðið. Eða skyldi E. vera