Barnablaðið


Barnablaðið - 21.10.1938, Qupperneq 3

Barnablaðið - 21.10.1938, Qupperneq 3
BARNABLAÐIÐ 3 hann slengdi á axlirnar. Því næst kom hann niður. Strákarnir stóðu kyrrir í sömu sporunum og gátu naumast trúað eigin augum. Maðurinn tók af sér húfuna og gleraug- un, og kom þá í ljós glaðlegt og sólbrennt andlitið og brosandi út undir eyru. Hann heilsaði öllum veizlugestum, eins og ekkert væri um að vera. En svo teymdi Benedikt hann, með pakkann á bakinu, inn í lestrar- stofu sína. Skömmu síðar kom ókunni maðurinn þaðan fram og var þá í vanalegum ferða- fötum. Drengirnir þyrptust kring um hann og hlýddu á hina fjörugu frásögn hans með mestu athygli. Hann hló, þegar hann heyrði um útvarpsfréttina og drakk súkku- laði með beztu lyst. „Þetta var ljómandi ferð,“ sagði hann með munninn fullan af afmæliskringlu, ,,allt hefir gengið að ósk- um, en ég verð að hafa mig á burt héðan, áður en lögregla og blaðamenn koma á staðinn. Og þið strákar lofið mér að þegja, að minnsta kosti þangað til á morgun.“ Allir lofuðu þeir því hátíðlega. Pétur var alveg frá sér numinn af hrifningu. „Þetta var þó vel af sér vikið,“ sagði hann hvað eftir annað. Afmælisgestirnir dvöldu að minnsta kosti kálfri stundu lengur en þeir höfðu ætlað, því að svo ákafar voru viðræðurnar. Á heimleiðinni lýsti Pétur því ánægður yfir, að sjálfur hefði hann ekki getað hald- ið upp á afmælisdag sinn dýrðlegar. En daginn eftir kom hann sárhryggur til Axels og sagði: „Viltu gefa mér skýr- ingu, því þetta var allt saman blekking?“ „Það var bróðir minn og Jean frændi, sem fundu upp á þessu,“ sagði Axel hlæjandi. „Frændi var nefnilega í raun og veru kominn með flugvélinni frá Bruxelles. En það var í fyrradag. Skeytið hafði Bene- dikt sjálfur búið til, og útvarpsfréttin var grammófónsplata, sem hann hafði látið tala á og spilaði hann hana svo í útvarps- tækið okkar, og svo hafði Jean frnædi laumast upp á þakið í vélasloppi sínum með gólfið úr stóru tjaldi.“ Félagarnir hlógu glaðlega, þegar þeir heyrðu söguna, og þá varð Pétur auðvit- að líka að gera það sama. Konungsdóttirin, sem vildi ekki spinna. Einu sinni var konungsdóttir, sem vildi alls ekki læra að spinna. „Það er þá bezt að sleppa henni við það,“ sagði konungurinn, en hann bað dótt- ur sína að segja sér, hvers hún óskaði sér á afmælisdaginn. Konungsdóttirin hugsaði sig um alla nóttina, hvers hún ætti að óska sér, en þegar morgnaði gekk hún út í hallargarð- inn til að reyna að láta sér detta eitthvað gott í hug. Um þetta leyti árs — en það var í sept- embermánuði — voru allir runnar og öll gerði full af kóngulóavefum, sem voru alsettir örlitlum, glitrandi daggardropum, sem glóðu í morgunsólinni. Þetta var eink- ar fagurt, og konungsdóttirin hrópaði upp yfir sig: „Nú veit ég, hvers ég óska mér!“ Hún hljóp nú sem leið lá heim í höllina og upp í svefnherbergi foreldra sinna og hrópaði: „Eg óska, að ég fái kjól úr kóngulóavef, sem sé alsettur ljómandi daggardropum, — komið þið með mér og sjáið! “ Ekki kann ég að segja frá því, hvernig konungurinn fór að því að uppfylla lof- orð sitt — ef til vill hefir hann stuðzt við galdra — það getur meir en verið. En endirinn varð sá, að á afmælisdegi konungsdóttur var til reiðu kjóll úr kóngu- lóavefi, loftkenndur og silfurglitrandi, og ljómuðu á honum milljónir smárra dagg- ardropa. „En hvað hann er fallegur! En hvað ég verð fín!“ hrópaði konungsdóttir upp yfir sig, og svo fór hún í nýjakjólinn. Allir karl- ar og konur við hirðina komu nú til að óska konungsdótturinni til hamingju og hneigðu

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/1036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.