Alþýðuhelgin - 10.12.1949, Qupperneq 3

Alþýðuhelgin - 10.12.1949, Qupperneq 3
ALÞÝÐUHELGIN 339 sem eftir væri til lokanna, gæti ég fengið skiprúm hjá sér, en hann reri úr Stafneshverfi. Klukkan þrjú sömu nótt lagði ég af stað suður eft- ir og fór í róðurinn með föður míri- um. Reri ég svo með honum fram til lokanna. * Á lokadáginn fórum við félagarnir þrír inn í Reykjavík. Gerðum við okkur þá dagamun, eins og títt var, og vorum ofurlítið við skál. Létum við þá taka mynd af okkur saman til minnirigar um atburð þann, sem hér hefur verið lýst. Ameríski togarinn, sem bjargaði okkur, lá í höfn í Reykjavík þennan dag, og hitti ég skipstjórann á götu. Fagnaði hann mér mikið og einlæg- lega og bauð mér með sér um borð. Sat ég þar um hríð í góðum fagnaði og við rausnarlegar veitingar. Lýkur svo þessari frásögn. SMÆLKl Kona nokkur, sem hafði hvað eft- ir annað orðið fyrir því óláni, að lenda í árekstri, meðan hún var óvön akstri, keyrði einhverju sinni austur á Þingvöll. Hún var nú farin að venjast nokkuð og orðin öruggari en áður. Einhvers staðar í Mosfells- sveitinni sér hún hvar símamenn eru að klifra upp í símastaur, $em stóð við veginn. — En þeir asnar, sagði liún við fólkið, sem í bílnum var. — Þcir halda víst að ég hafi aldrei stýrt bíl fyrri! Söðlasmiður einn, sem jafnframt var leikpredikari, var mjö mælskur í viðtali við menn og hafði mest gam- an af að heyra sjálfan sig tala, en aðr- ir komust varla að fyrir honum. Dag nokkurn kom maður til hans og ætlaði að biðja söðiasmiðinn að srníða fyrir sig hnakk. Sóðlasmiður- inn fór að halda yfir manninum predikun, svo að mannauminginn komst ekki að með að segja ncitt. Loks missti hinn tilvonandi við- skiptamaður þolinmæðina cg sagði: — Lofið mér nú að komast að mcð að segja það, sem mér liggur á hjarta. — Sjálfsagt, góði, sjálfsagt. Not- aðu tækifærið á meðan eg snýti mér. Félagarnir þrír, sem af komust, talið frá vinstri:. Ásgeir Daníelsson, Magnús Guðmundsson, Magnús Hákonarson. íslendingúm, þeim ísak frá Óseyri við Hafnarfjörð og Jóni, föður Emils íáðherra. Togarinn var á leið inn til Reykja- víkur, þegar hann bjargaði okkur,. og sigldi nú beint þangað. Skipverjar rilúðu að okkur eftir föngum, færðu okkur í þurr föt og rauðkyntu ofn- inn í hásetaklefanum. En jafnskjótt og við komum á skipsfjöl greip okk- Ur ákafur skjálfti, og var ég a. m. k. ekki laus við hann, þegar við kom- Uih inn á Reykjavíkurhöfn. En ekki höfðu skipverjar annað að bjóða okkur til hressingar en te eða kókó, sem við höfðum ekki lyst á. Skip- stjórinn var afar glaður yfir björg- Uninni og kom margar ferðir fram í riásetaklefann til að grennslast eftir iíðan okkar. IIEIMFERÐIN. Til Reykjavíkur var komið síðari hluta dags, Stigura við þegar á land og komum fyrst til Eyjólfs Eiríks- sonar húsgagnabólstrara og Guðrún- ar Eyvindsdóttur frá Stafnesi, konu hans. Skiptum við þar um föt og þáðum góða hressingu. Föðurbróðir minn, Magnús Guðnason stein- höggvari, bauðst til að ílytja okkur suður í Voga í lystivagni, sem hann átti, en lengra náði akvegurinn ekki þá. í Vogum vora tveir vélbátar, sem Ágúst Flygenring gerði út. Fengum víð annan þeirra til að flytja okkur til Keflavíkur. Þegar við komum á bryggjuna í Keflavík, var faðir minn þar fyrir með hesta handa okkur. Riðum við síðan sem leið lá suður á Hvalsnes og vorum komnir þangað kl. 12 á miðnætti. Áður en faðir mirin skildi við okk- ur, lét hann orð falla um það, að ef ég hugsaði til að róa eitthvað það

x

Alþýðuhelgin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.