Alþýðuhelgin - 10.12.1949, Qupperneq 8

Alþýðuhelgin - 10.12.1949, Qupperneq 8
344 ALÞÝÐUHELGIN Loídikíur m Guðbrand biskup Þorláksson. Kvæði það, sem hér fer á eftir, er merkilegt að því leyti, að þar er að .íinna hina merkustu greinargerð um það, hverjar bækur Guðbrandur Hólabiskup Þorláksson lét prenta. Kvæðið ber það með sér, að það er ort skömmu eftir að kveðinn var upp Alþingisdómur sá, út af málaferlum biskups, þar sem biskup var dæmd- ur til konungs náðar eða ónáðar. Sá dómur var felldur árið 1620. Er auð- séð á kyæðinu, að vinir biskups hafa þá verið mjög uggandi um hans hag, og jafnvel búizt við því, að hann yrði að láta af embætti. Höfundur kvæðis þessa, Björn Sturluson, hefur vafalaust verið eitt af betri skáldum sinnar samtíðar, enda ber „Lofdiktur" þessi ljósan vott um það, að hagorður maður á í hlut. Annars er fremur fátt vitað um ævi Björns Sturlusonar og skáld- skap. iíefur dr. Páll E. Ólason dreg- ið það saman í riti sínu „Menn og menntir“, IV. bindi. Þar segir: , 0 - ' ***»— leyfi handa Birni til land- vistar, enda gerðist hann vel metinn maður, var t. tekinn í dóm- endatölu í héraðsdómum. Björn fórst í skipreika 1621. Honum er svo lýst, að hann hafi verið skáld mikið og lista- maður, og tákn- ar það, að hann hafi verið þjóð- hagssmiður. Að því má þykja lúta þessi saga: Síra Ámundi Ormsson var um hríð að- stoðarprestur föður síns, síra Orms Egilsson- ar á Kálfatjörn, og síðan prest- ur þar eftir hans dag. Ilann hafði einhveriu sinnibeðiðBjörn „Björn Sturluson bjó að Þorkötlu- stöðum í Grindavík. Hann fæddist 1559. Ekki er kunnugt um ætterni hans. Kona hans hét Anna og var dóttir Helga Úlíhéðinssonar í Grindavík. Þeir mágar, Helgi og Björn Sturluson, urðu sekir um víg (1587). Sá hét Ingimundur Hákonar- son, er veginn var, og hafði Helgi átt hendur sínar að verja og Björn komið honum til hjálpar. Var og Birni kenndur síðasti áverki á Ingi- mundi, er dró hann til dauða. En Helgi bar örkuml eftir alla ævi. Sátt var komið á með þeim, er eftirmál áttu eftir Ingimund, og skyldi þeir mágar, Helgi og Björn, inna af höndum 10 hundruð, en dómur dæmdi, að fellt skyldi niður í þriðj- ung þegngildi til konungs, vafalaust af því, að um nauðvörn var að ræða. Skyldi og Helgi hafa landsvist, en landsvist Björns komin undir misk- unn konungs, svo að meiri hefur sök hans þótt í dóminum. Ekki hef- að smíða sér aflhólk. Björn sendi presti hólkinn með stúlku frá sér og vísu þessa með: Eydd eru kol, en efnin spillt, — ekki fer allt að dáðum. hafðu nú, prestr minn ,hvorn þú vilt af hólkunum þessum báðum. En prestur svaraði eigi miður hag- lega: Klerkurinn þar á Kálfatjörn klausu hefir til búna: Hafðu þökk fyrir hólkinn, Björn, hins þarf ég ekki núna. Því miður eru ekki kunnar fleiri lausavísur eftir Björn, en af þessari má ráða, hve hagmæltur hann hefur verið og glettinn og þó kunnað hag- lega að dylja gletturnar“. Til munu nú einungis tvö kvæði eftir Björn Sturluson, lofkvæði það um Guðbrand biskup, sem hér fer á eftir, og brot úr bænarsöng nokki'- um. Þá eru einnig til eftir hann ein- ar rímur“, af þeim sjö vísu meistur- um“. Eru þær 18 að tölu. Segir Páll E. . Ólason, að þær séu „þokkalega kveðnar“. Lofdiktur um þanu Ioflcga og virðu- Icga hcrra Guðbrand Thorláksson, 22. hiskup Hólastigtis, ortur af Biriii Stuiiusyni anno 1620. 1. Þögnin gerir þunga lund, þanka mai-gra byngar, en gamanræður stytta stund og stilla hugrenningar. 2. Mai-gir hafa vísnavöl vandað af heiðnum mönnum, gert sér af þeim dægradvöl og diktað um þá hrönnum. 3. Sögurnar ljóðin settu í, sjálfir á sig skyggðu af illþýðinu aumir því að upphafi landið byggðu. 4. Þúsund fimmtigir það svo bar, þá trúi eg datum héldi, allt til þess hér ekkert var andlegt laganna veldi. 5. Skálholtsstigti skipað var og skikkaður biskup líka ísleifur, en ekki1 bar eöla vizku ríka. 1) „Óverðuglega sagt um Isleif biskup, bezta mann“, hefur séra Jón Halldórsson í Hitardal bætt við neð- anmáls, en kvæði þetta er varðveitt í afskrift hans.

x

Alþýðuhelgin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.