Alþýðuhelgin - 10.12.1949, Page 12

Alþýðuhelgin - 10.12.1949, Page 12
348 ALÞÝÐUHELGIN VALENTIN KATAJEW — Gúmmískórinn. Það er vissulega engum erfiðleik- um bundið að týna gúmmískó í spor- vagninum. Óg það því fremur, þegar einn þorparinn treður sér upp að liliðinni á manni og annar kemur aftan frá og stígur ofan á hælinn á manni —• og gúmmískórinn er allur á bak og burt. Að týna gúmmískó eru þó aðcins smámunir. Þannig missti ég gúmmískóinn minn í einu vetfangi og meira að segja hafði ég — því miður — ekki tíma til að hljóða. Þegar ég steig inn í sporvagninn, voru báðir gúmmískórnir á sínum stað, ég minnist þess greinilega. Ég stíg út úr vagninum, og sjá — þarna er annar gúmmískórinn, en guð minn góður; hinn vantar. Ég sé, að þarna er annar skórinn, þarna er sokkurinn og buxurnar eru á sínurn stað, en gúmmískóinn vantar. Auðvitað er engin leið að hlaupa á eftir sporvagninum. Ég fór úr þeim gúmmískónum, sem eftir var, vafði hann innan í dagblað og gekk svo áfram. Eftir vinnutíma, hugsa ég með mér, get ég byrjað að leita. Skóskönunin get- ur þó naumast verið týndur. Ein- hvers slaðar verð ég þó að grata hann upp. Að vinnu lokinni hóf ég leitina. Ég ráðfærði mig við sporvagnaum- sjónarmann, sem ég þekkti. Hann gaf mér strax von. „Hrósaðu happi,“ sagði hann, ,,að þú skyldir týna hon- um í sporvagninum. Hefðir þú týnt honum á einhverjum öðrum opinber- um stað, hefði ég ekki viljað taka ábyrgð á honum, en að týna ein- hverju í sporvagninum er hreinasta liapp! Við höfum séi'staka skrifstofu fyrir týnda hluti. Farðu nú þangað og sæktu skóinn þinn.“ „Nú, jæja,“ sagði ég, „þakka þéf kærlega. Mér finnst steini létt af Urjósti mínu. Það er nefnilega aðal- . atriðið, að gúmmískórinn er næstum því nýr. Þetta er aðeins þriðji velur- inn, sem ég nota hann.“ Daginn eftir fór ég svo á skrifstof- una fyrir týnda muni. „Get ég, félagi, fengið ai'tur gúmmískóinn minn? Ég týndi honum í sporvagninum.“ „Það getur þú!“ svaraði hann. „Hvers konar gúmmískór var þetta?“ „Gúmmískórinn,“ svaraði ég, „er af þessari vanalegu stærð, nr. 12.“ „Við höfum,“ svaraði hann, „ef til vill tólf þúsund gúmmískó nr. 12. Þér verðið að taka fram sérstök kennimerki.“ „Kennimerkin,“ svaraði ég, „eru þessi venjulegu! Yfirleðrið er í tætl- um, fóðrið vantar innan í, flókinn er þegar orðinn slitinn!“ „Við höfum,“ svaraði afgreiðslu- maðurinn, „ef til vill þúsund slíka gúmmískó. Eru engin önnm- sérstök kennimerki?“ „Jú,“ sagði ég, „sérstök kenni- merki eru þessi: Táin er rifin hring- inn í kring og er því ekki lengur til staðar. Hæll var heldur enginn á honum. — Hann var slitinn upp til agna. En hliðarnar voru ennþá á honum. Þær hafa enzt vel allt til þessa!“ „Setjist niður augnablik,“ sögðu þeir. „Við skulum undir eins athuga málið.“ Óg allt í einu koma þeir með gúmmískóinn minn. Ég gladdist þegar innilega. Ég var blátt áfram hrærður. — Sjáið nú bara til, hvernig hið frábæra skipu- lag heldur hlutunum í jafnvægi! Og þvílíkt ágætisfólk! Að gera sér svona mikið ómak út af einum gúmmískó. „Þakka kærlega fyrir!“ sagði ég. „Ég verð yður þakklátur fram í and- látið. Látið mig nú fá hann. Ég ætla að láta hann á mig strax.“ „Nei, heiðraði félagi!“ svöruðu þeir. „Við megum ekki sleppa hon- um. Við vitum ekkert. Ef til vill haf- ið þér alls ekki týnt skónum yðar.“ „En auðvitað hef ég týnt lion- um,“ sagði ég. „Það er mjög sennilegt, en við megum þó ckki sleppa honum! Þér verðið að færa okkur vottorð um, að þér hafið raunvcrulega týnt honum. Látið húsvörðinn hjá yður staðfesla þetta; þá munurn við afhenda gúmmískóinn tafarlaust." „En, félagai’,“ sagði ég. — „Heirna hjá mér veit enginn um þotla. Ef til vill gefur húsvörðurinn mér svo ekkert vottorð.“ „Hann mun áreiðanlega gefa það!“ svöruðu þeir. „Það tilheyrir hans verkahring að gefa út vottorð!" Ég horfði enn þá einu sinni á gúmmískóinn minn og fór svo mína leið. Dagimx eftir fór ég svo til yfirhús- varðarins. „Geiúð svo vel og gefið mér vottorð,“ sagði ég. „Gúmmí- skórinn minn er týndur.“ „Er það þá satt?“ sagði húsvörð- urinn, „að þú hafir týnt honum? Eða eru þetta aðeins svik?“ „Guð veri oss náðugur,“ sagði ég. „Ég hef í raun og sannleika týnt honum!“ „Slcrifið þá. yfirlýsingu," sagði húsvörðurinn. Ég skrifaði yíirlýsinguna. Daginn eftir fékk ég svo hina embættislegu viðurkenningu húsvarðarins. Með hana íór ég svo til skrifstofunnar fyrir týnda muni. Óg viti menn, nú fékk ég gúmmískóimi minn afhentan tafarlaust. Þegar ég sctti hann á mig, komu tár í augu mér af viðkvæmni. Aðeins einn hlutur er hörmuleg- ur: í vikunni sem leið, þegar mála- í'eksturinn út af skónum mínum stóð sem hæst, týndi ég hinurn skón- um. Allan tímann bar ég hann, inn- pakkaðan í dagblað, undir hendinni, en — ég get ekki munað, hvar ég lét hann. Það sem mestii máli skiptir er, að það var ekki í sporvagninum. Og hlut, sem týnist ekki í sporvagnin- um, veit maður alls ekki hvar á að finna. En aftur á móti hef ég nú hinn gúmmiskóinn. Ég setti hann upp á kómmóðuna. Og þegar mér leiðist, þarf ég ckki annað en líta á gúmrní- skóinn og þá hverfa allar áhyggjur, eins og dögg fyrir sólu. Hann er mér eins konar ímynd hins fullkomna stjórnarfyrirkomu- lags. -----------4------------- Frúin við stúlku, sem hún er að fala í vist: — Hvers vegna voruð þér ekki lengur hjá fyrri liúsbændum yöar? Stúlkan: — Vel á minnzt, ég ætl- aði einmitt að fara að spyi'ja yðui-, hvers vegna stúlkan, sem fór frá yð- ur í gær, var ekki lengur í vistiixni.

x

Alþýðuhelgin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.