Alþýðuhelgin - 10.12.1949, Blaðsíða 16

Alþýðuhelgin - 10.12.1949, Blaðsíða 16
352 ALÞÝÐUHELGIN það væri, en aðrir segja, að það hafi verið hrossskrokkur, sem hann hafi látið í hann og hafi hann lesið yfir honum forn fræði, flutt síðan íram á sjó, þangað sem honum þótti bezt henta, og kveðið um leið: Sittu þar í sextán ár, sjáðu hvorki hrafn né már, rcyrður böndijm rimalár, renni að þér þorskur grár. Er það sögn, að Þorvnldi hafi ekki brugðizt hákarlsafli á þessu miði meðan ákvæðisorðum háns entist aldur. Ræningjaskipið. Á efri árum Þorvalds er það sögn, að óvenjulega stórt skip hafi komið af hafi inn á Eyjafjörð, vestanvert við Hrísey, með svörtum eða bikuð- um seglum. Það héldu menn vera ræningja frá Alzír, og var mikil hræðsla í mönnum við þá í þá daga, síðan þeir ræntu Vestmannaeyjar. Ræningjar skutu báti fyrir borð, og gekk þar á fjöldi manns. Þeir héldu til vesturstrandarinnar undir Sauðanes. Þorvaldur gamli var þá orðinn blindur og hafði litla fóta- ferð. Menn sögðu honum til og báðu hann góðra ráða. Þorvaldur skreidd- ist út og bað leiða sig ofan á sjávar- bakkann, þangað sem víkingarnir hcldu að landi. Hann settist niður og bað að snúa sér rétt á móti skips- bátnum. Voru þá víkingarnir komn- ir svo nærri landi, að þeir voru komnir að þriðju báru. Þá hóf Þor- valdur kvæði sín, og var þetta upp- Sunnan og vestan sendi vind sjálfur heilagur andi, svo strjúki þessi strauma hind strax frá voru landi. Brast þá strax á veður mikið sunn- an og vestan og gekk svo lengi, að víkingar streittust öllum árum að komast í land, en gátu aldrei komizt nær en á þriðju báru. Þá herti veðr- ið svo mjög, að stórskipið hélzt eigi lengur við. Létu þeir á bátnum þá síga undan frá landi og náðu með naumindum stórskipinu. Eru það munnmæli, að skipið hafi sokkið með öllu saman í Eyjafjarðarmynni, og er það haft til sannindamerkis, að á 18. öld hafi komið upp á línum fiski- manna fúnir kaðalstúfar og annað því líkt, sem væri úr skipsreiða, ná- lægt þeim stað, sem skipið hvarf. (Þorsteinn Þorsteinsson á Upsum.) * * * VÍSA, eftir Bendikt yfirdómara Gröndal Héðan er eigi hót að frétta, hærri menn og lægr: stétta alla að sama brunni ber, allir hafa þeir eitt fyrir stafni, engan greini ég samt með nafni. að brjóta það, sem brákað er. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Alþýðuprentsmiðjan h.f.

x

Alþýðuhelgin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.