Alþýðuhelgin - 06.04.1950, Síða 3

Alþýðuhelgin - 06.04.1950, Síða 3
ALÞÝÐUHELGIN 111 sínu. Og árið 1825 bættist þar við hin þyngsta heimilissorg. Kona Tegnérs hafði þá alveg misst æskufegurð sína. Hún var meðallagi há vexti, sterk og feit, stórskorin í andliti. nær því karlmannleg, varirnar þykkar og rauðar og augun hörkuleg. i fram- göngu og limaburði fór hún lítt að sið annarra kvenna, hún var höst og meinleg í orðum. HeimilisStjórn hennar fór í ólagi og henni var lítt lagin sú list að gera heinrilið skemmtilegt og yndislegt. Tegnér hafði alltaf verið vanur þ\ú, þegar hann sat heima hjá sér með vinum sínum, að tala gálauslega og allt annað en siðlátlega. Og þegar hann varð biskuD, gat hann ekki lagt þann sið niður. En um þessar mund- ir tók kona hans að líkja eftir hon- um í þessu. Þegar hún varð biskups- frú, varð hún langtum frekari í framgöngu en hún hafði verið nokk- urn tíma áður, og um leið losaði hún mjög ura. bönd þau, sem hún hafði haft á sér og skapferli sínu. Af þeim sökum hættu margar af kunningja- konum hennar að koma til hennav og sögðu, að orðfæri hcnr.ar og allur viðræðubragur væri svo, að þær gætu ekki hlýtt á hana Tegnér og konu hans hafði lengi e:gi komið vel saman. Og svo lítur út, sem ein- hverjir hafi 1825 ópðið 'il þess, að fræða hann um ýmislegt, svo hann hafi fengið alveg nýja skóðun á skapferli hennar. Frá beggja hálfu mátti svo líta á, sem slitið væri hjónabandi þeirra, og stundum gengu slík ósköp á milli hiónanna, að senda þurfti eftir raenni einum, er var vinur beggja og bió nálægt þeim, til þess að reyna til að gera þau sátt að kalla um sinn. Öll sú fyrirlitning fyrir konum, sem rit Tegnérs eftir þetta eru full af, eiga beinlínis rót sína að rekia til þessa tíma. Öll lífsskoðun hans breyttist alveg. Hann var reyndar eins ör til ásta og áður og jafnvel 1839 lagði hann ást við konu með slíkum ofsa í tilfinningum, að hann orti kvæðið „Hinn dauði“. En traust hans til kvenna var horfið og með því tr-auét hans á hreinleik og sálarprýði mannanna. Áður var hann öruggur í skapi og glaðlyndur, nú varð allri sálarró hans raskað og hann varð þunglyndur. Áður unni hann frelsi og var framfaramaður í pólitík. Nú varð hann svo, að hann manna mest unni fornri hcfð og það svo, að úr hófi keyrði, og í pólitík varð hann manna afturhaldssamastur. í skáldskap stendur Tegnér langt á baki Oehlenschlrger.*) En hann hefur sömu þýðingu fyrir Svía sein Oehlenschlrger hefur fyrir Dani. llit hans eru endurfæðing fornlistarinn- ar í skáldskap Norðurlanda. Tcgnér er sjálfur lifandi vottur þjóðarein- kennis Svía og hann sýnir það eins vel í skáldskap sínum og Oehlen- schli'ger sýnir hið danska þjóðarein- kenni. Skáldskaparform Tegnérs er þó nokkuð eldra. Hann var barn 13. aldarinnar, klassískur en ekki róm- antískur í anda, og allt fram í and- látið fannst honum hann vera Gjist- afs-maður, þ. e. a. s. fylla flokk Gúst- afs 3. og hans manna í bókmenntum Svía. Skáldskapur Oehlenschlágers á aftur á móti rót sína að rekja til byrjunar 19. aldarinnar; hann er barn rómantíkurinnar, þegar hann byrjar að yrkja, og fram að dauöa sínum taldi hann sig andstæðan andastefnu þeirri, er fylgt var við hirðir harðstjóranna á síðari hluta 18. aldarinnar. Tegncr fékk menntun sína frá Frakklandi, en Oehlen- schl ger sína frá Þýzkalandi. Auk þcss var skapferli Tcgnérs í m.irg- um greinum að sínu leyti eins frakk- *) Þessum dómi Brandesar munu ekki margir sammála. neskt og Oehlenschh'gcrs var þýzkt, af því hann var þýzkur að ætt. Af því kom það og, að hin frakkneska andastefna gagntók Tegnér ’svo mjög. Bæði eðlisfar hans og menn- ing Svía voru skyld henni. Skoði menn viturleik beggia, stendur Oehlenschláger langt á baki Tegnér. Þótt Tegnér sé langt frá að vera jafningi danska skáldsins í því, að lýsa mönnum og skapferli þeirra, þá hefur hann alla yfirburðina yfir hann í því, að skilja háttu aldar sinn- ar. Það var einungis í æskú sinni, að Oehlenschlsger skildi, hvað fram fór í Evrópu um hans daga. Tcgnér skildi það alla sína ævi langtum betur, miklu skýrara og skarpara. Það var einhver hóglífisblær yfir vitsmunum Oehlenschlágers. Tegn- ér var allt öðruvísi. Ilann var ofsa- maður, einnig að vitsmúnum til, og þegar hann beindi þeim að einhverju efni og fann eitthvað nýtt, þá fór hann með það með slíku andans fjöri. að svo ,var, sem gneistar brvnnu úr orðum hans. Það má sjá af bréfum hans, sem bcra langt af Oehlenschlágers. Manndyggðir Tcgnérs voru mikl- ar. Hann clskaði sannlcikami, ekki svo sem þeir, er láta sér nægja hið óskýra, hið dularfulla, eða miður ljósa hugsun, heldur sem þeir, er Frh. á 116. síðu.

x

Alþýðuhelgin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.