Alþýðuhelgin - 06.04.1950, Page 5

Alþýðuhelgin - 06.04.1950, Page 5
ALÞÝÐUHELGIN 113 þó ekki sé nema upp í dagblað, þá fleygi ég skærunum út um glugg- ann. Leiktu þér að saumadótinu. Það er tími til kominn að þú farir að læra eitthvað af því, sem kven- fólk á að kunna.“ Svo klippti ég einu sinni pínulítið gat á magann á bangsanum mínum, og út um gatið kom voða gomma af sagi. Svo stakk ég hann með stork- nefinu, og alls staðar kom út sag. Svo klippti ég magann neðan frá og upp úr, og þá dembdist sagið úr hon- um, og það var ekkert eftir nema höfuðið, handleggirnir og fæturnir. Nú er hann eins og fjórar pylsur og bolti. Mamma varð voða reið, en ég notaði bangsann fyrir teppi framan við brúðurúmið. Maginn er flatur eins og teppi, og hausinn og fæturn- ir og handleggirnir liggja á gólfinu eins og bjarnarfeldurinn fyrir fram- an rúmið hennar Maríu frænku. Það var hún sem gaf mér saumakörfuna. Já, og svo leiddist mér einu sinni, og af því brúðan mín gat opnað og lokað augunum langaði mig að sjá hvernig hún væri innan í sér. Svo klippti ég annað augað úr henni. Ég fór voða varlegl, en það var úr gleri, svo það brotnaði og varð að bláum glerbrotum. Innan í henni var lítil blýkúla og band, og það var hægt að sjá límið þar sem hárið var fest á höfuðið. Það var voða óhuggulegt. Pabbi getur allt, svo hann tók brúð- una og reif af henni hárið og setti í hana nýtt auga. Það var úr hvít- baun, sem hann hafði málað auga á. En þá varð brúðan alveg eins ljót og fólk með glerauga. Já, það er satt! Þú þarft ekki að glápa svona á mig! Ef maður missir úr sér augað, þá setur læknirinn í mar.n riýtt auga úr gleri svo maður sé ekki eins ljót- ur. Auðvitað getur maður ekki séð með því, en fólk, sem ekki veit það, heldur að maður geti það. Stundum kemur kona að heimsækja okkur, og hún er með glerauga, og þegar það horfir á mig rek ég út i'ir mér tung- una. Hún getur ekki séð það, og það er voða gaman. Svo lagði ég einu sinni bruðuna á eldhúströppurnar, og þegar elda- buskan kom út, steig hún á hana og braut hana. Ég fór að gráta, og mamma var fjarska reið við hana og sagðist ætla að draga frá laununum hennar það sem brúðan kostaði. Og svo keyptu þau handa mér brúðu. En þá, skilurðu, þá gat ég ekki klippt augun úr nýju brúðunni, og þá varð ég að reyna að finna upp á einhverju öðru. Fyrst klippti ég kögrið af rúmteppinu, og þegar ég þóttist vera að matreiða, hafði ég það fyrir makkarónur í súpuna. Svo klippti ég kampana af kettinum okkar, það er að segja ég ætlaði að gera það. En þegar ég ætlaði að klippa þá, klóraði kisa mig, og mamma sá það og gaf mér utan und- ir. Gluggatjöldin hjá okkur eru bú- in til úr litlum hringum og ferhyrn- ingum, og ég fór að klippa sundur þræðina á milli þeirra. Ef maður er laginn að klippa — en maður vferð- ur að vera voða nákvæmur — þá er hægt að búa til stjörnur úr hringun- um og litla ferhyrninga úr stóru fer- hyrningunum. En mamma flengdi mig af því hún komst að því, og mér þýddi ekkert að segja að það hefði ekki verið ég sem gerði það. Þá vissi ég ekki meir hvað ég átti að klippa. Það síðasta sem ég klippti voru skóreimarnar hans pabba, og um daginn þegar hann kom seint heim og þaut fram úr rúminu og þprfti að flýta sér í vinnuna og gat ekki notað skóna, þá var ég líka flengd. Svo þú mátt trúa því að ég var stúr- in yfir því að storkurinn minn fékk ekkert að borða. En nú hef ég fundið upp á dálitlu, sem enginn veit um. Af því það er svo heitt lætur mamma Jóa litla liggja strípaðan í vöggunni þegar hún fer út að verzla. Hún biður mig um að gæta hans vel svo hann detti ekki fram úr. Einu sinni svaf hann á bakinu og brosti og kreppti hnef- ana. Hann hefur voða lítinn hvítan maga með gat í miðjunni. Ég tók skærin og læddist fjarska hægt að vöggunni, og svo stakk ég hann í magann með skærisoddinum, en bara með oddinum, skilurðu, og bara pínulítið. Það sást ekki einu sinni neitt far. Það kom út blóðdropi, eld- rauður, og sat þar fastur. Jói litii vaknaði og var voða skrítinn i fram- an, og svo fór hann að gráta og klóra sér á maganum. Hann ataði sig allan í blóði með litlu fingrunum sínum. Þegar mamma kom heim sagði ég henni að eitthvað hefði stungið hann, og mamma þvoði honum og bylti öllu til í vöggunni. En hún fann ekkert. Hún sagði að það hlyti að hafa verið köngulló, því húsið okkar er svo gamalt, og ég hjálpaði henni að leita að köngullónni. Og svo þegar mamma stóð rétt hjá mér hrópaði ég:. „Þarna, mamma, þarna! Hún fór inn um gatið þarna!“ Það var gat á veggnum. Ég sagði að það hefði verið féit köngulló og á stærð við nögl. Seinna fyllti pabbi upp í öll götin á veggjunum. Daginn eftir stakk ég Jóa litla í rassinn af því hann svaf á magan- um, og mamma sagði við pabba að köngullóin hefði aftur stungið Jóa. r

x

Alþýðuhelgin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.