Hádegisblaðið - 13.09.1940, Side 1
I. árg. • Föstudaginn 13. september 1940. 1. tbl.
Lítið Mað —
Þetta litla dagblaö er að
þrennu leýti frábrugðið öðrum
dagblöðum, er út hafa komið hér
á landi. f fyrsta lagi er það ó-
pólitískt og lítur á landsmála-
stefnur og flokkaskiptingu sér
óviðkomandi. f öðru lagi óskar
það ckki eftir föstum áskrif-
endum og getur því miður ekki
orðið við slíkum tilmælum. í
þriðja lagi býður það engum að
birta auglýsingar, nema hlutað-
eigendur komi þeim sjálfir á
framfæri við blaðið.
Hádegisblaðinu er fyrst og
fremst ætlað að vera fréttablað,
og hvað viðvíkur flutningi er-
lendra frétta, mun það Ieggja
sig fram um öflun nætur- og
morgunfrétta, og skýra frá at-
burðum þess tímabils, sem ávalt
er óbrúað milli morgunblaða,
sem prentuð eru síðla kvölds og
fyrri hluta nætur og nónblað-
anna, sem verið er að prenta
allan morguninn og nokkuð
fram yfir miöjan dag. En láti
sér einhver fátt um finnast og á-
líti það ekki ómaksins vert að
fylla þetta skarð, og sízt á þess-
um róstu tímum, þegar allar
fréttir séu lognar, og alltaf log-
ið eins, þá er eitt ráð öruggt til
að verða ekki fyrir óþægindum
af þessu meinlausa blaði, nefni-
lega að lesa það alls ekki.
í tilliti til innlendra frétta
munum við leitast við, og leggja
á það alveg sérstaka áherzlu, að
flytja frásagnir af þeim atburð-
um og hræringum þjóðlífsins,
sem hinum blöðunum sézt yfir,
eða þykja ekki þess virði, að
þeirra sé getið. í fámcnnu og
flokkspólitískt fjötruðu landi
sem íslandi er hundsun og yfir-
hilmingar þekktari fyrirbrigði
en margir hyggja í flutningi
frétta. Stundum Ieynir sér ekki
Þýzkar spreagjuflupélar gerðu
ákafar árásir á London ! nótt.
London í morgun kl. 8.
Þýzkar flugvélar gerðu árás á London í nótt, og er það
sjötta nóttin í röð, sem Þjóðverjar eru á sveimi yfir London.
I þetta skipti urðu þýzku flugvélarnar að fljúga mjög hátt
sökum ákafrar skothríðar úr loftvarnabyssum, og tókst fá-
um þeirra að komast inn yfir borgina sjálfa.
arfbundið, þegjandi samkomu-
lag um þögnina. Það cr nú einu
sinni svona. Á þessu er til önn-
ur skýring, og hún er sú, að oft
geta verið um það skiptar skoð-
anir, hvau teljast skuli til
frétta. Þegar einhver deyr eru
það jafnan mikil tíðindi fyrir
ættingja og vini hins látna. Þeg-
ar barn fæðist er það mikill við-
burður fyrir einhverja, stund-
um marga. Þegar fólk stofnar
til hjúskapar staðnæmast hugir
margra við brúöarbeðinn. Það
eru gómsætar fréttir.
Þetta eru allt fréttir, sem
og hver frásögn úr persónulífi
þegnanna í fámennu landi, þar
sem flestir þekkja flesta. Dánar-
tilkynningar og hjúskaparfréttir
eru vinsælasta efni, sem íslenzk
blöð flytja. Og svo eru sorgbitn-
ir vandamenn Iátnir horfast í
augu við dýra auglýsingareikn-
inga! Við flytjum ókeypis and-
látsfréttir, en ekki „minningar-
orð.“ Og við getum þess, þegar
vinir ykkar eignast erfingja.
Nýja heimsborgara eiga blöðin
að bjóða velkomna í veröldina.
En við slíku verður ekki tekið
í síma.
í trausti þess, að hvað frétt-
ir snertir sé ávallt af nógu að
taka, leggur þetta litla blað úr
hlaði. Ef það getur ekki lifað,
þá hverfur það aftur til dauð-
ans. S. B.
Enn hafa engar fréttir verið
birtar um tjón af völdum árás-
ar þessarar, en talið er, að það
sé mjög lítið. Nokkrir eldar
komu upp, en voru slökktir
jafnharðan. Samgöngur í borg-
inni eru með eðlilegum hætti.
Árásiruar stóðu yfir frá því í
gærkveldi og fram á dag.
Klukkan rúmlega 7, þegar fólk
var á leið til vinnu sinnar í
London, var enn gefið merki um
loftárás.
Næturárásir Þjóðverja á aðr-
ar borgir í Englandi voru minni
en undanfarnar nætur. Nokkr-
ar skemmdir hafa orðið á hús-
um, en um manntjón er ekki
getið. Þýzk flugvél var skötin
niður yfir borg einni í Wales og
lenti hún á húsi og eyðilagði
það.
I Midlands stóðu árásirnar
lengur en nokkru sinni áður, án
þess að valda þó verulegu tjóni.
í þeim hluta landsins var
nokkrum hvinsprengjum varp-
að.
Sprenging í púðurverksmiðju.
Það er nú kunnugt, að 50
manns fórust, en 200 særðust
Frh. á 3. síðu.