Hádegisblaðið - 26.09.1940, Page 1
!• árg. Fimmtudaginn 26. sept. 1940 12. tbl.
5 tima loftárás á Be
----♦----
Lengsta loftárás sögunnar
London, kl. 8 í morgun.
í nótt gerðu brezkar sprengjuflugvélar árásir á Berlín
og Kiel auk hafnanna við Ermarsund.
Árásin á Berlín var hin ákafasta og lengsta, sem gerð
hefir verið síðan styrjöldin hófst. Samkvæmt tilkynningu
flugmálaráðuneytisins, sem birt var kl. 7 í morgun, hafði
árásin staðið yfir í 5 klukkutíma samfleytt, frá 11 í gær-
kveidi til 4 í morgun. Nánari fréttir verða ekki birtar fyrr
en búið er að vinna úr skýrslum flugmannanna.
I Berlín er viðurkennt, að árásin hafi verið hörð og
löng. en engar fréttir koma þaðan um tjón á mannvirkjum,
enda er hlutlausum fréttariturum bannað að koma á þá
staði, er orðið hafa fyrir sprengjum. f
ÞjóOverjar vorpuðu enn í nótt
íkveibjnsprengjnm yfir London.
-------♦-------
Margir særðust og miklar skemdir urðu.
London, kl. 8 í morgun.
Þýzkar flugvélar vörpuðu
þungum sprengjum og í-
kveikjusprengjum á ýmis
hverfi í London í nótt. Tjón
verð allmikið á mannvirkj-
um og víða komu upp eldar,
en tekizt hefir að hefta út-
breiðslu þeirra. — Margt
manna hefir særzt og nokkr-
ir beðið bana.
Árásir voru einnig gerðar
á Wales og ýmis héruð í suð-
austur- og norðvestur-hlut-
um landsins.
Það er nú kunnugt, að 26
óvinaflugvélar voru skotnar
niður í gær yfir Bretlandi.
Fjórar þeirra urðu fyrir
skotum úr loftvarnabyssum,
en hinum grönduðu enskar
orustuflugvélar.
200 gylllni fjrrir að gefa
nppljrsingar um dvaiar-
stað brezkra flugmanna
i Hollandi.
London, kl. 8 í morgun..
Þjóðverjar hafa auglýst í
hollenzka útvarpinu, að hver
sá, sem gefi upplýsingar um
dvalarstað enskra flug-
manna, sem álitið er að séu í
Hollandi, skuli fá 200 gyllini
að launum. Flugmenn þessir
eru áhöfn brezkrar sprengju
flugvélar, er mun hafa nauð-
lent í Hollandi á heimleið úr
leiðangri til Þýzkalands.
Enn hefir enginn vitjað fjár-
ins.
Óspektir hermanna I
gærkveldi.
Rðða brotiu i Oddfellow
Um kl. 11 í gærkveldi var
lögregla kvödd að salarkynn-
um Oddfellowhússins. Stóðu
hermenn fyrir utan húsið og
kröfðust inngöngu. Þegar þeim
var neitað, gripu þeir til byss-
unnar og brutu eina af hinum
stóru rúðum veitingasalarins
Frh. á 3. síðu.