Hagtíðindi

Árgangur

Hagtíðindi - 01.08.2002, Blaðsíða 2

Hagtíðindi - 01.08.2002, Blaðsíða 2
2002390 Vöruskiptin við útlönd janúar–júlí 2002 External trade January–July 2002 2001 Janúar– júlí 2002 Janúar– júlí Breyting frá fyrra ári % Change on previous year % Á gengi ársins 20021 At average exchange rates1 January–July 2002 Millj. kr. Million ISK 1 Breyting frá fyrra ári á föstu gengi. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða var meðalverð erlends gjaldeyris mánuðina janúar– júlí 2002 2,9% hærra en á sama tíma árið áður. Change on previous year at constant exchange rates. Based on trade-weighted index of average foreign currency prices in terms of ISK; change on previous year 2.9%. 2001 Júlí 2002 Júlí Útflutningur alls fob 15.416 16.371 106.246 123.463 13,0 Exports fob, total Innflutningur alls fob 16.941 17.438 117.502 114.316 -5,4 Imports fob, total Vöruskiptajöfnuður -1.525 -1.067 -11.256 9.147 · Balance of trade Vöruskiptin við útlönd janúar–júlí 2002 External trade January–July 2002 Vöruskiptajöfnuður Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 16,4 milljarða króna og inn fyrir röska 17,4 milljarða króna fob. Vöruskiptin í júlí voru því óhagstæð um 1,1 milljarð en í júlí í fyrra voru þau óhagstæð um 1,4 milljarða á sama gengi. Fyrstu sjö mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 123,5 milljarða króna en inn fyrir 114,3 milljarða króna fob. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 9,1 milljarði króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 11,6 milljarða á sama gengi¹. Fyrstu sjö mánuði ársins var því vöruskiptajöfnuðurinn 20,7 milljörðum króna betri en á sama tíma í fyrra. Útflutningur Verðmæti vöruútflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 14,2 milljörðum eða 13% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 63% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14% meira en á sama tíma árið áður. Aukningu vöru- útflutnings má því helst rekja til aukins útflutnings á sjávar- afurðum, aðallega frystum flökum, fiskmjöli og heilum frystum fiski. Útflutningur iðnaðarvara hefur einnig aukist, aðallega á lyfjavörum og lækningatækjum. Á móti kemur að mun minna hefur verið selt af skipum úr landi en á síðastliðnu ári. Innflutningur Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 6,6 milljörðum eða 5,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Að stærstum hluta má rekja samdráttinn til minni inn- flutnings á fjárfestingarvörum og eldsneyti.

x

Hagtíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.