Hermes - 01.12.1960, Side 4
Nemendamót
1960
Hópur af ungu fólki hafði safn-
ast saman fyrir utan Sambandshús-
ið í Reykjavík skömmu eftir há-
degi laugardaginn 4. júní. Þetta
voru útskrifaðir nemendur úr Sam-
vinnuskólanum ásamt nokkrum
gestum. Áfangastaðurinn var Bif-
röst í Borgarfirði þar sem halda
átti nemendamót Samvinnuskólans,
hið annað í röðinni. Mikill galsi og
glaðværð var ríkjandi, því nú skyldi
skemmta sér með gömlum félögum
á kunnugum stað. Stemning var
góð og voru raddböndin óspart slíp-
uð á leiðinni þangað uppeftir. í Bif-
röst var komið stuttu fyrir kvöld-
verð. Nokkrir nemendur voru þeg-
ar komnir og tóku á móti okkur
með kátínu og enn meiri söng.
Dagskráin var áætluð þannig að um
kvöldið áttu að fara fram skemmti-
atriði ásamt dansi, en daginn eftir
átti svo aðalfundur Nemendasam-
bandsins að hefjast, er tími þótti
tilkominn.
Eftir stutta stund glumdi bjallan
og gaf til kynna að kvöldverður
væri framreiddur, en við minnt-
umst þess að sú hin sama bjalla
hefði ekki alltaf haft jafn góðan
boðskap að færa og nú, er hún var
að vekja ískalda vetrarmorgna,
alltof snemma að manni fannst, eða
að hringja í próf undir tvíræðu
glotti hringjarans, sem sjaldan var
sprækari en þá. En nú beinlínis
kitlaði hún mann í magann. Kýldu
menn nú vambirnar með gómsætu
hangikjöti, sem hinn snjalli kokk-
ur okkar hafði brasað og skorið
niður af þeirri list sem honum er
einum lagið, og ekki minnkaði mat-
arlystin ef maður sá honum bregða
fyrir. Dagskrá kvöldsins átti ekki
að hefjast fyrr en klukkutíma eft-
ir kvöldverð, svo þeir sem ekki voru
í undirbúningi, uppvaski eða öðr-
um snúningum, lögðust fyrir og
spjölluðu um daginn og veginn,
meðan kjötið var að sjatna, og enn
aðrir fengu sér smá blund. Á rétt-
um tíma var mótið svo sett af hátt-
virtum formanni Nemendasam-
bandsins, með nokkrum vel völd-
um setningum. Kynnirinn kynnti
atriðin jafnóðum og skaut einum
og einum góðum inn á milli. Fyrsta
atriðið var léttur þáttur sem los-
aði rækilega um hlátursböndin. Þá