Hermes - 01.12.1960, Qupperneq 7
Föndurklúbbur hefur það mark-
mið að sameina alla áhugamenn um
tómstundaiðju í einn samstæðan
hóp, og fá honum ákveðin kvöld til
starfsemi sinnar. Ekki er komin
verulegur skriður á félag þetta, en
kosinn hefur verið formaður, Vé-
dís Elsa Kristjánsdóttir.
Ljósmyndaklúbbarnir hafa nú ver-
ið fluttir, af salernum vistanna, og
hreiðrað um þá í uppgjafa þvotta-
húsi á fyrstu hæð. Einum stækk-
ara hefur verið bætt við, og eru þeir
nú þrír talsins.
Tónlistarklúbburinn hefur nú aft-
ur tekið í notkun hin fullkomnu
hljómflutningstæki skólans, en þau
voru á fyrra vetri dæmd óstarfhæf
af formönnum klúbbsins og einum
kennara, eftir árangurslausar sam-
setningartilraunir af þeirra hendi.
Átti að senda tækin til viðgerðar
fagmanna, en á síðustu stundu gat
hinn snjalli Vilhjálmur sett þau
saman á réttan hátt. Á hann þakk-
ir skilið fyrir að hafa þannig forð-
að þessum dýrmætu tækjum frá al-
gjörri tortímingu.
Tómstundakennari hefur einnig
leitazt við að koma reglu á íþrótta-
iðkun í útivistum, einkum með það
að markmiði, að allir geti verið
með. Nokkur kurr kom í fyrstu upp
meðal ósamvinnuþýðra manna
vegna skipulagningar þessarar,
fannst þeim að með þessu væri
athafnafrelsi þeirra skert. Lagaðist
þetta þó fljótt, og reyndist á mis-
skilningi byggt. Knattspyrnan er
sem fyrr aðalíþróttin. Bekkjaliðin
cru jöfn, hafa unnið sinn leikinn
hvort. Merkilega lítið hefur verið
um meiðsli í boltanum það sem af
cr, aðeins einn fótbrotnað, og tveir
orðið óvígir sakir snúnings spark-
lima. Handknattleikur hefur nú að
mestu verið friðaður kvenfólkinu.
Er það ekki að ástæðulausu, því
þegar einum karlmanni tókst að
lauma sér í raðir kvenna, endaði
það með óviti einnar ungmeyjar af
hans völdum. Blakið er vinsælt,
enda hættulítil íþrótt, og jafnan
þröng mikil báðum megin netsins.
Frjálsar íþróttir virðast nú vera að
komast í tízku í Bifröst, einkum
virðist hástökk og kúluvarp njóta
mikilla vinsælda. Róður hefur verið
mjög dýrkaður, einkum af svonefnd-
ur ,,anti-íþróttamönnum“ og hefur
spunnizt mikið umtal og blaðaskrif
um afrek þeirra og hetjuskap.
Einu sinni í viku geta áhugamenn
nú komizt í hina nýju sundlaug að
Varmalandi. Mikill áhugi hefur ver-
ið um ferðir þessar, og leikur grun-
ur á, að annað vaki fyrir sumum
karlmanna, en einlægur sundáhugi.
skal þó ekkert fullyrt um það.
Gufubaðstofu hefur nú verið kom-
ið fyrir í nýju byggingunni. Hefur
sitt kynið stofuna hvorn daginn,
og hefur sú tilhugun valdið nokkr-
um vonbrigðum. Stundarfjórðungs
afsláttur hefur verið gefinn á úti-
vist, þeim sem gufuböðin stunda, og
á það sinn þátt í vinsældum þeirra.
Haldið var námskeið í hjálp í
viðlögum snemma á skólaárinu. Sig-
urður Teitsson erindreki S.V.F.f.
dvaldi hér í eina viku, og kenndi
Framhald á 15. síðu.
f 'l
HERMES
Útgefandi: Nemendasamband
Samvinnuskólans.
Ritstjórar, blaðamenn og
ábyrgðarmenn: Dagur Þor-
leifsson, Sigurður Hreiðar.
Ljósmyndari: Kári Jónasson.
Prentað í: Prentsmiðju Jóns
Helgasonar, Reykjavík.
Myndamót: Rafmyndir hf.
Myndamót af haus og teikni-
myndum: Myndamót hf.
Afgreiðslu annast Magnea Sig-
urðardóttir, SÍS.
v______________________________J
HERME S
7