Hermes - 01.12.1960, Síða 11
Þetta er allt í lagi, þau eru trúlofuð.
Birgi Marínósson, aðalhljóðfærið
sitt, víbrafón, en meirihlutinn
var þarna, og það var fyrir mestu.
Það var reglulega heimilislegt að
heyra aftur í trompetinu hans Guð-
varðar og sjá hann reka magann
út í loftið undir ljúfum tónum þess.
Til bæjarins var farið í vagni frá
Strætisvögnum Kópavogs, og var
mikið sungið á leiðinni. Að leiðar-
lokum og næstu daga luku allir upp
einum munni um það, að þetta væri
eitt það skemmtilegasta kvöld, sem
guð hefði gefið í háa herrans tið.
Engar myndatökur, góði'.
Okkur fannst ekki mega hjá líða,
að taka lítið eitt með af fréttum,
sem falla undir ofanskráða fyrir-
sögn. Við höfðum hugsað okkur að
telja upp alla útskrifaða nemendur,
sem lent hafa heilu og höldnu í
hjónabandsins helgu höfn — og
þótt ekki væri nema á ytri höfnina.
Við höfum tekið það ráð að skipta
þeim hópi í fjóra flokka: Þau, sem
voru saman í bekk og hafa bundizt
tryggðum, þau, sem náðu sér í
maka úr öðrum bekk (ath. að þetta
er ekki töluorð), þá sem hafa sótt
sér lífsförunaut til starfsliðsins, og
þau sem hafa farið út fyrir veggi
skólans þeirra erinda.
Úr fyrsta árganginum sem út-
skrifaðist frá Bifröst kom eitt par,
Elfa Ólafsdóttir og Sigurður Sig-
urðsson. Úr öðrum árgangi Aðal-
björg Ólafsdóttir (Stella) og Jenni
R. Ólason, úr þriðja Álfheiður Guð-
laugsdóttir og Sigurður Hreiðar, og
loks úr fjórða árganginum Hugrún
Einarsdóttir og Geir Geirsson.
Þá kemur annar flokkur, og er
hann allmiklu fjölmennari. Þar er
ekki hægt að taka eftir árgöngum,
því þá yrði að tvítaka hvert par —
sitt undir hvoru árinu. Þess vegna
setjum við ártal í sviga aftan við
hvert nafn, og er það árið, sem við-
komandi útskrifaðist úr skólanum:
Katrín Ingvarsdóttir (1958) —
Kristinn Guðnason (1957). Dagbjört
Torfadóttir (1958) — Þorsteinn
Kristinsson (1959). Inga Guðmunds-
dóttir (1959) — Elís R. Helgason
(1958). Sigrún Sigurðardóttir
(1958) — Grétar Snær Hjartarson
(1959). Lilja Ólafsdóttir (1961) —
Gunnar S. Sigurðsson (1960).
Meira næst.
FORSÍÐUMYNDIN
Forsíðumyndin er af börnum þeirra
Ingu Guðmannsdóttir og Elíasar R.
Helgasonar. Drengurinn heitir Guð-
mann, og verður tveggja ára 27.
des. 1960, en stúlkan heitir Valborg
Huld, og fæddist hinn 3. maí 1960.
Kári Jónasson tók myndina.