Hermes - 01.12.1960, Blaðsíða 14
Frá stjórn
N.S.S.
Þegar þetta blað kemur fyrir
sjónir ykkar, góðir lesendur, er að
hefjast nýr þáttur í starfsemi N.S.S.
— blaðaútgáfa — ef svo mætti að
orði komast. Blaði þessu er þó ekki
ætlað að koma út reglulega, held-
ur aðeins þegar tilefni gefst og þörf
er á. Með útgáfu þessa litla blaðs
hyggst N.S.S. ná til sem flestra með-
lima sinna, og ná þar með því tak-
marki sambandsins að það sé ekki
aðeins félag fyrir útskrifaða Sam-
vinnuskólanemendur sem búa í
Reykjavik og nágrenni heldur líka
fyrir þá sem búa úti á landsbyggð-
inni.
Hingað til hefur, eins og áður
er greint, öll starfsemi N.S.S. mið-
ast við þá sem búa á suðvestur-
horni landsins, nema hvað hið ár-
lega nemendamót á að tengja með-
limina saman,
Greinarstúfur þessi átti aðallega
að vera spjall frá stjórninni um
hvað gert hafi verið undanfarið og
svo það hvað við höfum í hyggju.
Eftir að nemendamótið var haldið
hafa verið gerðar nokkrar tilraun-
ir til félagsstarfs, og þá helzt að
nefna tvö ferðalög og svo skemmt-
unina sem haldin var í félagsheim-
ili Kópavogs og tókst með ágætum.
Þess má geta hér til gamans að
hagnaður af þeirri skemmtun var
um það bil 400,00 kr. sem mun
vera það mesta sem N.S.S. hefur
haft upp úr skemmtun hingað til.
í sept. var haldinn almennur fund-
ur, þar sem rætt var um aldurs-
takmark inn í Samvinnuskólann. I
tilefni af þeim fundi var Guðmundi
Sveinssyni skólastjóra sent bréf um
það sem gerðist á fundinum. Guð-
mundur svaraði bréfinu um hæl
mjög vinsamlega og óskaði eftir
viðræðum við stjórnina um málið.
Hringamálið svonefnda, sem N.S.
S. tók í sínar hendur hefur þokast
ögn áleiðis, og er nú verið að gera
útlitsteikningu af fyrirhuguðum
hring. Því mun verða lokið innan
skamms. Ef hringur sá sem nú er
til umræðu og verið er að teikna
hlýtur samþykki, eru góðar horfur
á að hann muni verða tilbúinn fyrir
næsta vor, og hefur stjórnin ásett
sér að vinna eins ötullega að fram-
gangi þessa máls og hægt er. Það
er vert að taka það fram hér að
í þessu máli má hvorki fljótfærni
né skyndiákvörðun ráða úrslitum,
þar sem þetta er hlutur sem standa
á í áraraðir og þeir eiga að bera
hreyknir á hendi sér sem lokið hafa
námi í Samvinnuskólanum.
Varðandi framtíðarhorfur er að
vísu ekki hægt mikið að segja, en
þó er ætlunin að halda uppi ein-
hverju félagslífi á vegum N.S.S. í
vetur. T.d. mun, þegar þetta blað
kemur út, hafa verið eitt
skemmtikvöld þar sem spilað var
Bingó o.fl. Þá er í ráði að halda
dansleik um jólin og verður nán-
ar tilkynnt um það síðar.
Nú um þessar mundir er verið að
innheimta ársgjöld í N.S.S. og verða
póstkröfur að öllum líkindum send-
ar jafnhliða blaðinu til þeirra sem
búa úti á landi. Það er mjög æski-
legt að félagar bregðist fljótt og
vel við þegar að innheimtunni kem-
ur, því að þó að starfsemin sé ekki
mikil er mjög nauðsynlegt að hafa
nokkurt fé á milli handa.
í lok þessa spjalls vil ég leyfa
mér að þakka Sigurði Hreiðari
Hreiðarssyni og Degi Þorleifssyni
fyrir að hafa átt hugmyndina að
blaði þessu og að hafa unnið vel
og dyggilega að útgáfu þess.
K. Jónasson.
14
HERMES