Hermes - 01.12.1960, Page 16

Hermes - 01.12.1960, Page 16
Frá mann- frœðirann- sóknum Aka- demíunnar Af mörgum merkum fyrirbærum er sprottið hafa úr frjóum jarðvegi félagslifs í Samvinnuskólanum, sið- an skólinn var staðsettur að Bif- röst, má hiklaust telja Akademíuna eit hið merkasta. Akademía Samvinnuskólans var stofnuð annað skólaárið að Bifröst, og voru stofnendur þeir Ragnar Ágústsson, nú starfsmaður hjá Þjóðviljanum, Jón Ásgeirsson, nú- verandi starfsmaður Samvinnu- trygginga, Sigurður Gunnarsson, nú- verandi gjaldkeri Samvinnuspari- sjóðsins, Friðrik Á. Helgason, nú starfsmaður hjá Trygging h.f., Jenni R. Ólason, nú bókari hjá Kaupfé- lagi Stykkishólms og Jóhann Örn Sigurjónsson, sem nú vinnur í Landsbankanum. Stefna og mark- mið þessa félags skyldi vera að vinna að og efla hverskyns menn- ingarviðleitni innan skólans. Aðil- ar skyldu vera sex, þrír úr hvorum bekk. Æðsti maður Akademíunnar var titlaður forseti, og var Ragnar Ágústsson fyrstur kjörinn til þessa cmbættis. Allt frá stofnun hefur Akademí- an starfað af þrotlausri atorku og þolinmæði að því verkefni, sem hún setti sér í upphafi. Verður hér nokkru nánar rætt um einn þátt í starfsemi hennar veturinn 1957 til 1958. Einn aðili Akademíunnar hafði lítilsháttar lagt stund á mann- fræði (anthropology), sem ugg- laust má telja með merkustu vís- indagreinum, og miðar flestum frem- ur að lausn margra þeirra vanda- mála, er mannkynið hefur glímt við frá örófi alda. Var nú ákveð- ið á einu þingi Akademíunnar, að hún legði krafta sína fram til fx-am- dx-áttar þessum fræðum, með fýs- iskum rannsóknum á nemendum skólans. Piltar skólans tóku þessu undan- tekningarlítið vel, en um kven- kindina gegndi, því miður, nokkuð öðru máli. Ekki aðeins þvertóku þær fyrir allar athuganir á líköm- um sínum, heldur hófu þær einnig skipulagðar ofsóknir á hendur vís- indamönnunum. Með lævíslegum vélabrögðum í'ændu þær málbandi, einu nauðsynlegasta rannsóknar- tæki Akademíunnar, og geymdu það á leyndum stað allt til vors. Skömmu eftir ránið fóru Akademiu- menn í heimsókn til þeirra stúlkna, er mest stóðu fyrir ofsóknunum, og kröfðust þess kurteislega, en ákveðið, að málbandið væri látið af hendi. Er því var neitað, sáu boðberar vísindanna sig tilneydda að halda ræningjunum um skeið í stofufangelsi, ef vera kynni, að hungur og þorsti neyddi þær til að láta málbandið af hendi. En sú von brást. Beittu meyjarnar öllum hugs- anlegum kvenlegum brögðum til að losna úr prísundinni; börðu og spörkuðu í umsátursmenn, bitu þá og klóruðu og blinduðu suma með því að ræna gleraugum þeirra. Þess á milli gerðu þær sér upp grát og kveinan. En Akademiumenn vissu, að þeir voru að berjast fyrir góðu málefni og létu sér hvergi bregða, unz kennari nokkur kom á vett- vang og beitti valdi sínu til að binda enda á umsátrið. En þá skeði hryggilegur atburður. Trylltar af hatri og hefndarfýsn réðust tíu námsmeyjar á einn Akademíumann, misþyrmdu honum á ruddalegan Framhald á 15. síðu. 16 HERMES

x

Hermes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.