Hermes - 01.10.1968, Síða 11
ur á land í Guatemala og selur bátinn sinn með ónýtri
vél, og kaupir yfirvöldin með dollurum sínum og
lætur lögregluna og herinn þjóna sér þar til hann
situr í Chicago sem græni páfinn og stjórnar United
Fruit sem í sögunni nefnist Hitabeltisbananasamlagið
eða Tropical. Allt verður að víkja fyrir valdasýki og
ágirnd þessa manns, hann hrífst af kynblendings-
stúlku og hún verður ástfangin af honum, hún skilur
hvað þau eru ólík og þau muni aldrei sameinast og
klæðist brúðarskarti sínu og kastar sér í fljót, og gef-
ur sig fljótinu.
A ástarsmnd þeirra hafði hann sagt: þú talar eins-
og þú talaðir upp úr svefni.
Og hversvegna vakna? sagði hún.
Mér finnst sá ekki með réttu ráði sem alltaf dreym-
ir.
Þeir sem eru af þínum kynstofni, Geo, eru alltaf
vakandi, en við ekki. Okkur dreymir dag og nótt. Hún
biður hann að loka augunum og láta sig dreyma. Eg
hef ekki tíma til þess, segir hann. Hún svarar: En
þann sem dreymir hann lifir aldir. Þið hinir, þið eruð
einsog börn, af því að þið eldist ekki innra með ykk-
ur. Þið eldist á ytra borðinu. Þið eruð alltaf ungling-
ar, barnalegir unglingar. Mann verður að dreyma til
þess að láta blóðið eldast.
Geo Maker Thomson þekkir enga miskunn. Ef
einhver er í vegi fyrir honum þá kann hann alltaf ráð
til að losa sig við hann, til dæmis með vel heppnuðu
bílslysi, og hann segir skýrt: Ef við grípum inn í leik-
inn þá verður það alltaf að vera til ágóða fyrir þá
sem undiroka. Viðskiptafélagar hans eiga það til að
halda aftur af honum í hinu nakta ofbeldi og fá hann
til að beita ísmeygilegri aðferðum þar sem fögur orð
einsog frelsi og framfarir eru tálbeitur og sú tækni
þeirra nefnist agressífur altrúismi, það er hin tvíbenta
ísmeygilega hjálp sem er neytt upp á þiggjandann
sem honum stafar mest hætta af.
Og þarna sem fyrr er sögurásin sízt óbrotin heldur
óumræðilega margslungin og sveiflast fram og aftur
um sviðið, og okkur er sýndur urmull af fólki sem
sumt verður svo ógleymanlegt þótt við sjáum það
stutta stund líkt og í fornsögum okkar, myndirnar
orka með sprengikrafti, sagan er rykkjótt með gos-
hrinum í ósköpum þessa söguljóðs, eða keðju prósa-
ljóða.
En sama árið og Græn 't Páfinn kom út þótti þáver-
andi forseta United Fruit nóg um framfaraviðleitni
Arbenz-stjórnarinnar í Guatemala þegar hún gekk
svo langt úr hófi að ætla sér að láta alþýðuna fara
að njóta góðs af þeim landeignum sem United Fruit
hafði svælt undir sig. Þessi græni páfi vorra daga
sém heitir Remond fann sér handbendi að nafni
Castillo Armas og gerði hann að nýjum herra forseta,
el senor presidente 1954 með amerískum herjum og
vopnum. Og honum fylgdi annar álíka harðstjóri
Fuentes að nafni. Og enn fór Asturias í útlegð, fyrst til
Argentínu þar sem Alberti var fyrir og fleiri spönsk
skáld. Þar var hann um sinn en fluttist síðar til
Evrópu.
Asturias gerði hlé á bananaþríleiknum og gaf út
smásagnasafn sem lýsti hinum ömurlegu viðburðum
þegar Bandaríkjamenn börðu niður frelsið í Quate-
mala og framfaraviðleitni og komu hinum afturhalds-
sömu hershöfðingjum til valda samkvæmt hugsjónum
CIA: Weekend en Quatemala, Helgi í Guatemala
sem kom út í Buenos Aires 1956. Asturias fékk starf
sem háskólakennari þar og var síðan gerður prófessor
í bókmenntum 1959- Helgi í Guatemala tileinkaði
Asturias landi sínu: Til Guatemala, míns fósturlands,
sem lifir í stúdentahetjum sínum, píslarvottum meðal
bænda, fórnfúsum verkamönnum og stríðandi þjóð,
segir á titilblaði. Þessar sögur bregða upp margvísleg-
um myndum sem smndum verða súrrealistískar og
yfirnáttúrlegar en segja allar harmsögu þjóðar sem