Morgunblaðið - 10.11.2011, Side 1

Morgunblaðið - 10.11.2011, Side 1
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011 BARÁTTAN HELDUR ÁFRAM M ed ia G ro up eh f |H SÍ |1 10 1 20 11 Akureyri - Grótta Höllin, Ak. | Kl. 18.30 Fim. 10. nóv. | N1-deild karla FH - Haukar Frestað Fim. 10. nóv. | N1-deild karla Valur - HK Vodafone-höllin | Kl. 19.30 Fim. 10. nóv. | N1-deild karla Fram - Afturelding Framhús | Kl. 20.00 Fim. 10. nóv. | N1-deild karla Fram - ÍBV Framhús | Kl. 18.00 Fim. 10. nóv. | N1-deild kvenna HK - Valur Digranes | Kl. 14.00 Lau. 12. nóv. | N1-deild kvenna FH - Grótta Kaplakriki | Kl. 16.00 Lau. 12. nóv. | N1-deild kvenna KA/Þór - Stjarnan KA-heimilið | Kl. 16.00 Lau. 12. nóv. | N1-deild kvenna N1-deild karla N1-deild kvenna íþróttir Knattspyrna Leikmenn íslenska landsliðsins, sem skipað er leikmönnum 21 árs og yngri, mætir Englendingum í undankeppni EM á Weston Homes Community-vellinum í Colchester 4 Íþróttir mbl.is HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Arnór Atlason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við danska meistaraliðið AG Köben- havn. Það var tilkynnt í gærkvöldi áður en liðið lék sér eins köttur að mús að Skjern í 8-liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar í hand- knattleik. Arnór verður þar með í herbúðum AG fram á mitt árið 2015 en nýi samningurinn tekur gildi um mitt næsta ár þegar núverandi samningur hans við félagið rennur út. „Það kom ekkert annað til greina úr því að Akureyri handboltafélag gerði mér ekki tilboð,“ sagði Arnór á léttu nótunum í samtali við Morg- unblaðið á tíunda tímanum í gær- kvöldi. „Það var aldrei neinn vafi í mín- um huga að en vera áfram hjá AG úr því að félagið vildi gera við mig nýj- an samning. Ég er mjög ánægður með þetta og hugsa ekki um að fara eitthvað annað. Ég er hjá toppliði,“ sagði Arnór sem verið hefur fyrirlið stórliðsins sem er bæði danskur meistari og bikarmeistari um þess- ar mundir. Áður en Arnór gekk til liðs við AG hafði hann leikið um fjögurra ára skeið með FCK Kaupmannahöfn en atvinnumannaferililinn hóf hann með eins árs dvöl hjá þýska 1. deildarliðinu SC Magdeburg. Arnór hefur leikið 114 A- landsleiki og skorað í þeim 268 mörk. Hann hefur átt fast sæti í ís- lenska landsliðinu í sjö ár og var m.a. í liðinu sem vann silf- urverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking fyrir þremur árum og bronsverðlaun á Evrópumeist- aramótinu í Austurríki í janúar 2010. Þá var hann einn mátt- arstólpa íslenska 20 ára landsliðs- ins sem varð Evrópumeistari árið 2004. Sýning í Bröndby-höllinni AG sló upp sýningu á heimavelli sínum í gærkvöldi í gegn Skjern og vann með 16 marka mun, 33:17, eftir að hafa verið ellefu mörkum yfir í hálfleik, 20:9. Eins og tölurnar gefa til kynna var um algjöra einstefnu að ræða í leiknum og engu líkara á köflum en að aðeins eitt lið væri á vell- inum. Arnór skoraði tvö mörk í leiknum og Snorri Steinn Guð- jónsson eitt. Guðjón Valur Sig- urðsson, fór á kostum, einkum í fyrri hálfleik og skorað sex mörk. Það er því nokkuð ljóst að AG- liðið sýnir enga miskun í titilvörn sinni í bikarkeppninni. Ekkert annað kom til greina  Arnór verður hjá AG til ársins 2015 Morgunblaðið/Gísli Baldur Áfram Arnór Atlason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við AG. Stjarnan úr Garðabæ nældi sér í gær í liðs- styrk fyrir átökin næsta sumar í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Gunnar Örn Jónsson, fyrrver- andi leikmaður Breiðabliks og KR, gerði þá tveggja ára samning við félagið. Samningur Gunnars við Íslands- og bikarmeistarana í Vesturbænum var útrunninn og honum því frjálst að hafa félagaskipti. Gunnar er 26 ára gamall en gekk illa að vinna sér sæti í byrjunarliði KR á síðustu leiktíð en lék þó marga mikilvæga leiki þegar leið á sumarið eins og bikarúrslitaleikinn á móti Þór. Samningsbundnir ungir menn Um leið og Gunnar skrifaði undir samninginn var tilkynnt að þeir Atli Jóhannsson og Tryggvi Bjarnason hefðu framlengt samninga sína við félagið. Einnig gerðu ungir og efni- legir leikmenn félagsins samninga við félagið. Urðu þeir Íslandsmeist- arar með 3. flokki í sumar og ganga nú upp í meistaraflokk félagsins. Um er að ræða þá Aron Rúnarsson Heið- dal, Atla Frey Ottesen Pálsson, Daníel Andra Baldursson, Svein Sig- urð Jóhannsson og Þorr Geir Rún- arsson. kris@mbl.is  Myndbandsviðtal við Gunnar Örn er að finna á mbl.is. Bjarni þéttir raðirnar í Garðabæ Gunnar Örn Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.