Morgunblaðið - 10.11.2011, Side 4

Morgunblaðið - 10.11.2011, Side 4
BADMINTON Kristján Jónsson kris@mbl.is Hið árlega badmintonmót Iceland International fer fram á næstu helgi í húsakynnum TBR og hefst á morgun. Eins og nafnið gefur til kynna er mótið alþjóðlegt og að þessu sinni koma keppendur frá tíu löndum. Alls verða keppendur sjö- tíu og einn talsins en þó eru erlend- ur keppendurnir færri en reiknað var með. Árangur í mótinu gefur mynd- arleg stig á heimslistann og á Ól- ympíuári er það býsna mikilvægt. Íþróttamenn keppast jú við að safna stigum í þeim tilgangi að komast nógu hátt á heimslistann til að komast inn á leikana. Ragna sterkust í kvennaflokki Morgunblaðið sló á þráðinn til Árna Þórs Hallgrímssonar, lands- liðsþjálfara frá Akranesi, og spurði hann hvers væri að vænta á mótinu í ár og um möguleika íslenskra keppenda. „Ragna er skráð sterk- ust í mótið í kvennaflokki og á þar af leiðandi mikla möguleika á því að vinna. Það er hið besta mál því hún er á Ólympíuári og fær 2.500 stig fyrir að vinna mótið,“ sagði Árni og því má bæta við að Ragna hefur einmitt unnið þetta mót fjórum sinnum í röð í einliðaleik en mótið var ekki haldið árið 2008. Í fyrra var minna verðlaunafé í boði í mótinu og þá gaf mótið ekki eins mörg stig á heimslista því það var fært niður um styrkleikalista. Að þessu sinni er samanlagt verð- launafé hins vegar 5 þúsund doll- arar og fyrir vikið gefur mótið fleiri stig á heimslistann. Magnús á möguleika Ragna er í 75. sæti heimslistans en hæst skrifaði keppandinn í karlaflokki er ekki eins ofarlega á listanum. Tékkinn Pavel Florian fékk röðun númer eitt í einliðaleik karla en hann er í 144. sæti á heimslistanum en Svíinn Mathias Borg er næststerkastur í mótinu samkvæmt listanum en þar er hann í 179. sæti. „Ég myndi halda að Ís- landsmeistarinn Magnús Helgason væri sterkasti íslenski spilarinn og reikna með því að hann eigi mögu- leika á móti öllum í þessu móti. Það er svolítið erfitt að átta sig á styrk- leika þeirra erlendu spilara sem taka þátt í mótinu. Við höfum rennt yfir nafnalistann og marga þeirra þekkjum við ekki, til dæmis í hópi þeirra dönsku. Magnús og Tinna spila auðvitað í Danmörku og kann- ast aðeins betur við þessa spilara þó að þau hafi ekki mætt þeim oft. Ég held að þetta verði mjög jafnt mót í flestum flokkum,“ sagði Árni ennfremur. Blendnar tilfinningar Að sögn Árna hafa oft á tíðum mætt á bilinu 60-100 erlendir kepp- endur á mótið á Ólympíuári. Hann segist ekki kunna skýringuna á því hvers vegna þeir eru innan við þrjá- tíu að þessu sinni. „Það eru blendn- ar tilfinningar í þessu því maður vill að Íslendingar vinni mótið og fái mikilvæg stig en einnig að sem flestir útlendingar komi á mótið.“ Mikilvæg stig í boði vegna ÓL í London á næsta ári Morgunblaðið/Kristinn Sigurstrangleg Ragna Ingólfsdóttir, fremsta badmintonakona landsins, þykir sigurstrangleg í einliðaleik kvenna á Iceland Internationalmótinu.  Badmintonfólk frá tíu löndum mætir til leiks á Iceland International Iceland International » Alþjóðlegt badmintonmót sem haldið er árlega hérlendis. Mótið er í þeim styrkleikaflokki að gefa mikilvæg stig á heims- listann. » Ragna Ingólfsdóttir getur nælt sér í 2.500 stig á heims- listanum með sigri í mótinu en meðaltalið hjá henni úr alþjóð- legum mótum er 1.900 stig. Sigur yrði henni því mik- ilvægur í viðleitni hennar til að vinna sér sæti á Ólympíu- leikunum í London. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011 Arnór SveinnAð- alsteinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu sem lék með Breiða- bliki þar til í sumar, hefur samið til tveggja ára við norska fé- lagið Hönefoss. Arnór, sem er 25 ára gamall, fór síðsumars til Höne- foss sem lánsmaður frá Breiðabliki og tók þátt í frábærum endaspretti liðsins sem tryggði sér sæti í úrvals- deildinni eftir árs fjarveru og stóð uppi sem sigurvegari í 1. deildinni í mótslok. Arnór var í byrjunarliði í öllum ellefu leikjunum eftir að hann kom til liðsins, sem hægri bakvörð- ur, og skoraði eitt mark.    Knattspyrnumaðurinn GunnarKristjánsson mun ekki leika með FH-ingum á næstu leiktíð en hann komst að samkomulagi við Hafnarfjarðarliðið um að fá að losna undan samningi. Gunnar kom til FH frá KR í fyrra. Í fyrstu var um lánssamning að ræða en Gunnar gerði síðan samning við FH og var samningsbundinn til ársloka 2012. Gunnar kom við sögu í níu leikjum FH-inga í Pepsi-deildinni í sumar. Hann er 24 ára gamall sem er upp- alinn hjá KR og þá lék hann með Víkingi frá 2006-2008. Hann sagðist í samtali við mbl.is ætla að einbeita sér að námi og m.a. hafa í hyggju að halda utan til náms næsta haust.    Meiðsli í hásinhafa hrjáð Hermann Hreið- arsson nær allt tímabilið og hef- ur hann aðeins náð að spila tvo leiki með Portsmouth í ensku 1. deildinni á leiktíðinni. Her- mann er staddur á Íslandi til að reyna að fá bót meina sinna. Hann var að vonast til að vera laus við meiðslin og hóf æfingar að nýju fyr- ir þremur vikum en meiðslin tóku sig upp aftur.    Ólafur Stefánsson mun hafa ver-ið í hlutverki aðstoðarþjálfara hjá danska handknattleiksliðinu AG síðustu vikur. Sören Colding, fram- kvæmdastjóri AG, segir að eftir að Magnus Andersson tók einn við þjálfun liðsins fyrir nokkru hafi hann vantað aðstoðarmann. Kjörið hafi verið að leita til Ólafs sem hafi hvort eða geti ekki æft eða leikið með liðinu til að taka starfið að sér tímabundið. Colding segist ekki reikna með að Ólafur verði í þessu embætti lengi né heldur að hann verði þjálfari hjá félaginu þegar handknattleiksferlinum lýkur. Fólk sport@mbl.is FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Það er enginn beygur í okkur þó svo að við höfum tapað illa fyrir þeim síðast. Þetta er nýr leikur og við fáum gott tækifæri til að bæta fyrir tapið heima,“ sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður U21 árs landsliðsins í knattspyrnu, við Morg- unblaðið í gær en í kvöld mæta Íslendingar sterku liði Englendinga í undankeppni Evr- ópumótsins. Leikurinn fer fram á Weston Homes Community-vellinum í Colchester sem tekur 10.000 manns og er uppselt á leikinn. „Við förum í þennan leik með því hug- arfari að vinna. Við berum hæfilega virð- ingu fyrir andstæðingnum en við ætlum að taka vel á þeim. Við verðum að berjast eins og ljón og við munum reyna að sækja hratt þegar möguleiki gefst á því. Það er mik- ilvægt fyrir okkur að þora að halda bolt- anum innan liðsins. Við sýndum það í leikn- um á Laugardalsvellinum í síðasta mánuði að við getum það alveg. Það þýðir ekkert fyrir okkur að ætla að hanga í vörninni all- an tímann. Það býður bara hættunni heim,“ sagði Þórarinn Ingi, miðjumaðurinn sterki úr ÍBV, sem segir að stemningin í hópnum sé góð og menn klárir í hörkuslag en Ís- lendingar etja síðan kappi við Belga í Mons á mánudaginn. Eftir góðan sigur á Belgum, 2:1, í fyrsta leik sínum í undankeppninni, töpuðu ís- lensku strákarnir, 2:0, fyrir Norðmönnum á Kópavogsvelli og 3:0 á móti Englendingum á Laugardalsvellinum þar sem hinn eldfljóti Alex Oxlade-Chamberlain úr Arsenal skor- aði öll mörkin. Englendingar hafa unnið alla þrjá leiki sína í keppninni, skorað 11 mörk en aðeins fengið á sig eitt. Noregur og Belgía mætast einnig í kvöld í Noregi í þessum riðli keppninnar. „Er enginn beygur í okkur“ Morgunblaðið/Ómar Barátta Þórarinn Ingi Valdimarsson í baráttu við Alex Oxlade-Chamberlain á Laugardals- velli í haust.  Uppselt á viðureign Englands og Íslands í Colchester í undankeppni EM  Þórarinn Ingi Valdimarsson segir að vel verði tekið á andstæðingunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.