Morgunblaðið - 14.11.2011, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2011
Íslenskt fimleikafólk átti ágætu
gengi að fagna á Norður-Evrópu-
mótinu í áhaldafimleikum sem fram
fór í Svíþjóð um helgina. Róbert
Kristmannsson og Hildur Ólafs-
dóttir unnu bæði til verðlauna í úr-
slitum á einstökum áhöldum. Róbert
varð í 3. sæti í keppni á bogahesti
þar sem hann hlaut 12,75 stig og
Hildur fékk 12,7 stig fyrir gólfæfing-
ar sínar og vann einnig til brons-
verðlauna.
Auk þess að vinna til bronsverð-
launanna varð Róbert í 4. sæti í
keppni á svifrá þar sem hann hlaut
13,2 stig. Bróðir
Róberts, Viktor,
hefði átt að keppa
á svifrá en varð
að gefa eftir sæti
sitt vegna bak-
meiðsla. Hann
varð í 5. sæti á
tvíslá með 13,3
stig og í 7. sæti í
hringjum með
11,95 stig.
Bjarki Ásgeirsson var einnig
nærri verðlaunasæti en hann varð í
fjórða sæti í æfingum á bogahesti
þar sem hann hlaut 12,6 stig.
Kvennalið Íslands varð í 3. sæti af
tíu þjóðum í fjölþrautarkeppninni á
laugardag með 140,05 stig en Sví-
þjóð sigraði þar með nokkrum yf-
irburðum og hlaut 152,5 stig.
Thelma Rut Hermannsdóttir varð
þar í 9. sæti en Róbert og Viktor
urðu jafnir í 7.-8. sæti í karlaflokki
og Ólafur Garðar Gunnarsson í 9.
sæti, þar sem íslenska liðið varð í 4.
sæti. Litlu mátti muna að karlaliðið
næði 3. sætinu af heimamönnum en
aðeins munaði 1,2 stigum á liðunum.
sindris@mbl.is
Róbert og Hildur nældu bæði í brons
Viktor
Kristmannsson
Knattspyrnumaðurinn Kristinn Stein-
dórsson úr Breiðabliki verður næstu
daga til reynslu hjá danska úrvalsdeild-
arfélaginu Nordsjælland. Vefsíðan fót-
bolti.net greindi frá þessu í gær. Þar
segir að Kristinn, sem hefur verið einn
besti maður Pepsideildarinnar síðustu
ár og skoraði 11 mörk síðasta sumar,
hyggist reyna fyrir sér erlendis en
samningur hans við Breiðablik rann út í
lok síðustu leiktíðar.
Nordsjælland er í 2. sæti dönsku úr-
valsdeildarinnar eftir 15 umferðir en er
sjö stigum á eftir Íslendingaliðinu FC
Köbenhavn. sindris@mbl.is
Kristinn skoðar aðstæður hjá No
Markaskorari Kristinn Steindórsson fag
Árangur keppenda á Íslandsmeist-
aramótinu í sundi í 25 metra laug
sem lauk í gær var með allra besta
móti. Alls féllu 13 Íslandsmet og 19
aldursflokkamet sem hlýtur að telja
afar góður afrakstur. Á seinni tveim
ur dögum mótsins, í gær og í fyrra-
dag, náðust átta Íslandsmet og 11
aldursflokkamet.
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi,
sem rætt er við annars staðar hér í
opnunni, var senuþjófur mótsins en
hún bætti Íslandsmet fjórum sinnum
og stúlknamet níu sinnum. Hún fékk
viðurkenningu á uppskeruhátíð eftir
mótið í gær fyrir besta afrek mótsin
í kvennaflokki, samkvæmt reglum A
þjóðasundsambandsins, en því náði
hún í 200 metra baksundi. Besta af-
rek mótsins í karlaflokki átti liðs-
félagi Eyglóar, Anton Sveinn McKe
sem setti nýtt Íslandsmet í 1.500
metra skriðsundi. Hann varð meista
í flestum einstaklingsgreinum, eða
samtals fjórum. Eygló Ósk er 16 ár
og Anton 17 ára og ljóst að hér er
um að ræða afskaplega efnilegt sun
fólk. Bæði verða þau í eldlínunni á
Norðurlandamóti unglinga hérlendis
næsta mánuði.
Met Antons Sveins reyndist eina
Íslandsmetið í karlaflokki á mótinu
en 12 sinnum slógu konurnar met.
Meta
13 Íslandsmet og
Eygló og Anton
Morgunblaðið/Kristinn
Alsæl Bryndís Rún Hansen keppti fyrir norska félagið Bergen Svömmerne í Laugardalnum. Hún er hér alsæl eftir að hafa bætt Íslandsmet sitt í 50 m flugsundi.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára í hand-
knattleik kvenna í Val hafa byrjað leiktíðina
með afar sannfærandi hætti í N1-deildinni og
eru með fullt hús stiga eftir fimm umferðir.
Valur mætti HK í Digranesinu á laugardaginn
og sigraði 32:25 en HK hafði aðeins tapað ein-
um leik þegar kom að því að mæta meist-
urunum.
„Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með
og staðan var til að mynda 7:7 eftir um það bil
korter. Við hrukkum í gang í kjölfarið og náð-
um að komast í 13:7. Mér fannst sigurinn ekki
vera í hættu eftir það þó þær hafi saxað á for-
skotið í seinni hálfleik. Við fengum aðallega á
okkur ódýr víti og ódýr mörk að mér fannst,“
sagði Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir lands-
liðskona úr Val og HK-liðið kom henni ekki á
óvart enda setti Valsiðið leikinn upp sem einn
af þeim erfiðari í vetur.
„Þær hafa verið nokkuð sterkar í upphafi
móts og ég held að þær séu með virkilega mikið
sjálfstraust. Mér finnst þær hafa bætt sig síðan
í fyrra og eru búnar að stíga eitt skref til við-
bótar. Það hafa þær sýnt með því að vinna
Fram og spiluðu hörkuleik á móti Stjörnunni
um daginn. Við stilltum þessu upp sem einum
af stóru leikjunum á tímabilinu. Við komum í
leikinn af fullum krafti, eins og við reynum allt-
af að gera, og tókum HK-liðið alvarlega. Þær
voru með einhverjar yfirlýsingar um að þær
ætluðu að verða fyrstar til að vinna okkur og
auðvitað kveikti það bara í okkur.“
Valur á meira inni
Fram hefur komið í máli margra leikmanna
og þjálfara í deildinni að Valsliðið sé skrefi
framar en næstu lið sem á eftir koma. Ragn-
hildur segir Valskonur þurfa að halda einbeit-
ingu og telur liðið eiga nokkuð inni. „Fyrirfram
eigum við að vera með sterkasta liðið en við
höfum spilað fáa leiki og það líður langur tími á
milli leikja. Mér finnst við ekki hafa fundið al-
mennilega taktinn. Deildin virðist vera sterk-
ari en hún var í fyrra og liðin eru að kroppa stig
hvert af öðru í ríkari mæli en ég reiknaði með.
Við þurfum að vera mjög einbeittar ef við ætl-
um að klára deildina með titli. Mér finnst að
það komi of langir kaflar í okkar leikjum þar
sem við eigum að geta spilað betur en þetta er
smám saman að komast í rétta átt,“ sagði
Ragnhildur í samtali við Morgunblaðið en hún
skoraði fjögur mörk í leiknum.
Yfirlýsingar úr herbúðum
HK hjálpuðu Valskonum
Meistarar Vals með fullt hús stiga Þrátt fyrir það á liðið nokkuð inni
Varnarmúr Elísa Ósk Viðarsdóttir fær hraustlegar m
N1-deild kvenna
» Valur er með fullt hús stiga eftir sigur á
HK 32:25 á útivelli.
» Grótta náði í sitt fyrsta stig þegar liðið
gerði jafntefli á móti FH 23:23. Sunna
María Einarsdóttir skoraði 6 mörk fyrir
Gróttu og Eva Björk Davíðsdóttir 7 fyrir FH.
» Martha Hermannsdóttir skoraði 11 mörk
fyrir KA/Þór en það dugði ekki til sigurs
því Stjarnan vann 26:24 á Akureyri. Sól-
veig Lára Kjærnested skoraði 10 mörk fyrir
Stjörnuna.