Morgunblaðið - 14.11.2011, Page 5
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2011
Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik,
náði sér vel á strik með Zaragoza í gær þegar liðið vann
Murcia 67:59.
Jón var næststigahæstur hjá Zaragoza og skoraði 13
stig en hann lék um helming leiktímans.
Hittni Jóns var með ágætum og setti hann niður öll
fimm skot sín úr teignum og eitt af þremur utan þriggja
stiga línunnar. Var þetta besti leikur Jóns í sókninni frá
því hann gekk til liðs við Zaragoza frá Granada í sumar
en hann er alla jafna mjög traustur í vörninni.
Zaragoza er í 12. sæti deildarinnar sem er almennt
talin sú sterkasta í Evrópu en Manresa er í 8. sæti eftir
tap fyrir Lagun Aro 88:82. Landsliðsmaðurinn ungi Haukur Helgi Pálsson
kom ekki við sögu hjá Manresa að þessu sinni en hann hefur talsvert fengið
að spreyta sig í upphafi leiktíðar. kris@mbl.is
Jón Arnór náði sér vel á strik
Jón Arnór
Stefánsson
KR-ingar sömdu um
helgina við tvo nýja leik-
menn fyrir næstu leiktíð í
Pepsideild kvenna í knatt-
spyrnu. Um er að ræða
norðurírska landsliðs-
markvörðinn Emmu Mary
Higgins, sem lék með
Grindavík í sumar, og
Önnu Garðarsdóttur, sem
kemur frá Aftureldingu.
Higgins á að baki 45
A-landsleiki fyrir Norður-Írland og
hefur leikið ellefu Evrópuleiki fyrir
Glentoran Belfast United. KR-ingar
ákváðu í haust að segja upp
samningi sínum við mark-
vörðinn Írisi Dögg Gunn-
arsdóttur og mun Higgins
leysa hana af hólmi.
Anna er 23 ára gömul og
var á mála hjá Val áður en
hún gekk í raðir Aftureld-
ingar. Hún hefur leikið 26
leiki í úrvalsdeild og skorað í
þeim sjö mörk.
KR gekk illa á síðustu leik-
tíð og hélt sér með naumindum
áfram í deildinni á markatölu þegar
upp var staðið. sindris@mbl.is
Landsliðsmarkvörður í KR
Emma
Higgins
ordsjælland
Morgunblaðið/Eggert
gnar einu af ellefur mörkum sínum í sumar.
Í LAUGINNI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Skagamærin Inga Elín Cryer varð
Íslandsmeistari í þremur greinum og
setti Íslandsmet í þeim öllum á Ís-
landsmeistaramótinu í 25 metra laug
sem lauk í Laugardalslauginni í gær.
Hún byrjaði mótið á að slá tveggja
ára gamalt met Sigrúnar Brár
Sverrisdóttur um 5/100 úr sekúndu í
800 metra skriðsundi sem hún synti
á 8:46,42 mínútum. Því næst bætti
hún met sitt í 200 metra flugsundi
um 1,25 sekúndu, kom í mark á
2:16,72 mínútum, og í gær vann hún
400 metra skriðsund á 4:15,09 mín-
útum og bætti sig um 4/100 úr sek-
úndu. Þar að auki fékk Inga Elín silf-
ur í 200 metra skriðsundi en allt
þetta gerði hún þrátt fyrir að vera
nánast raddlaus, með hálsbólgu og
stíflað nef.
„Ég er búin að vera með svo rosa-
lega hálsbólgu. Hún hefur samt eng-
in áhrif á mig núna en í gær sleppti
ég 4x400 metra fjórsundi því ég gat
bara varla andað. Ég er búin að vera
með þessa flensu síðan á þriðjudag-
inn en ég læt þetta ekkert stoppa
mig,“ sagði Inga Elín sem verður
átján ára síðar í mánuðinum. Inga
Elín hefur ávallt keppt fyrir sund-
félag Akraness og segir það bæði
hafa kosti og galla. Helsti gallinn sé
skortur á aðstöðu, aðallega yfir vetr-
armánuðina.
Vantar stærri innilaug
„Ég var sex ára þegar ég byrjaði
almennilega að æfa en var líka í ein-
hverju ungbarnasundi og svona áð-
ur. Ég hef alltaf verið á Akranesi og
kann rosalega vel við að æfa þar.
Eini gallinn er að það vantar stærri
innilaug. Við erum með 25 metra úti-
laug sem er ekki nógu gott þegar það
byrjar að snjóa og svona, og þá þarf
stundum að sleppa æfingum. Við er-
um með 12,5 metra innilaug en það
er bara ekki nóg. Hún er samt góð til
að æfa snúninga og svona,“ sagði
Inga Elín sem einbeitir sér að því
þessa dagana.
„Það er alltaf hægt að gera betur
og núna er ég til dæmis að æfa mig á
fullu í snúningunum því ég þarf að
verða betri í þeim, og í að koma á
nægilega miklum hraða inn í snún-
ingana,“ sagði Inga Elín. Fávísum
blaðamanni lék forvitni á að vita
hvort mikill munur væri á að keppa í
25 metra og 50 metra laug.
„Þjálfarinn minn segir að það
skipti engu máli fyrir mig hvort ég
keppi í 25 eða 50 metra laug því ég er
svo fljót að ná upp taktinum, en per-
sónulega finnst mér betra að keppa í
50 metra laug þegar það eru færri
snúningar. Ég er mjög vön að keppa
í 25 metra laug og finnst það auðvit-
að bara fínt en ég verð að fara að æfa
meira í 50 metra laug út af Ólympíu-
leikunum á næsta ári. Ég stefni á að
komast þangað,“ sagði Inga Elín.
„Hissa á að bæta mig“
Önnur sunddrottning og ekki síðri,
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi,
setti einnig Íslandsmet í þremur
greinum. Hún tvíbætti met sitt í 100
metra baksundi og varð fyrst til að
synda það á minna en einni mínútu,
kom í mark á 59,81 sekúndu. Hún
náði Íslandsmetinu í 200 metra fjór-
sundi af Erlu Dögg Haraldsdóttur,
synti það á 2:15,22 mínútum, og
bætti sig svo um rúmar þrjár sek-
úndur í sinni sterkustu grein, 200
metra baksundi, sem hún synti á
2:08,00 mínútum.
„Ég er í raun ekki nægilega vel
hvíld fyrir þessa keppni því ég er að
stíla inn á að ná sem bestum árangri
á Norðurlandamóti unglinga í næsta
mánuði,“ sagði Eygló Ósk sem er að-
eins sextán ára en er ekkert að æsa
sig yfir hlutunum.
„Ég var mjög hissa á að ná að
bæta mig. Ég ætlaði að komast undir
mínútuna í 100 metra baksundi en
bjóst samt ekki við því að geta það,“
sagði Eygló. Hún mun nú draga úr
æfingum þegar líður að fyrrgreindu
NMU sem fram fer hérlendis í næsta
mánuði, en stóra markmiðið er að
fara á Ólympíuleikana.
„Það er markmiðið að fara til
London. Þangað til eru mót á borð
við NMU og Reykjavík International
Games þar sem ég vil standa mig vel.
Ég þarf auðvitað að bæta mig nokk-
uð til að komast á Ólympíuleikana og
er núna um það bil fjórum sekúndum
frá lágmarkinu í 200 metra baksundi.
Því ætla ég að ná.“
Morgunblaðið/Kristinn
Sigursæl Eygló Ósk Gústafsdóttir syndir hér baksund í Laugardalnum en hún tvíbætti Íslandsmetið í 100 m baksundi og bætti einnig tvö önnur met.
Með flensu en þrjú met
Inga Elín Cryer og Eygló Ósk Gústafsdóttir settu þrjú Íslandsmet hvor
Skagamærin nánast raddlaus sökum veikinda Horfa báðar til London
Íslandsmet
» Inga Elín Cryer setti Íslands-
met í 200 metra flugsundi og
400 og 800 metra skriðsundi í
Laugardalslauginni um
helgina.
» Eygló Ósk Gústafsdóttir tví-
bætti Íslandsmet sitt í 100
metra baksundi og setti einnig
nýtt met í 200 metra baksundi
og 200 metra fjórsundi, auk
níu stúlknameta.
ast
m-
-
m
k
r
ns
Al-
-
ee,
ari
a
nd-
s í
Inga Elín Cryer frá Akranesi bætti
þrjú met eins og lesa má um hér til
hliðar. Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
úr SH, sem varð meistari í tveimur
einstaklingsgreinum, tvíbætti eigið
Íslandsmet í 50 metra baksundi.
Fyrst synti hún á 27,91 sekúndu og
varð Íslandsmeistari, en hún gerði
gott betur og kom í mark á 27,49
sekúndum í 4x50 metra fjórsundi.
Boðsundssveit SH vann það sund
jafnframt á nýju Íslandsmeti, 1:56,23
mínútum. Sveitina skipuðu ásamt
Ingibjörgu þær Karen Sif Vilhjálms-
dóttir, Snjólaug Tinna Hansdóttir og
Bára Kristín Björgvinsdóttir.
Bryndís Rún Hansen, sem keppti
fyrir norska félagið Bergensvömm-
erne, setti nýtt Íslandsmet í 50 metra
flugsundi. Hún synti það á 27,04 sek-
úndum og bætti gamla metið sitt frá
árinu 2009 um 16/100 úr sekúndu.
Loks hafði Ragnheiður Ragnarsdóttir
úr KR sett Íslandsmet í 100 metra
fjórsundi á 1:01,72 mínútum.
Þá eru ótalin afrek keppenda á
borð við hinn 17 ára Kolbein Hrafn-
kelsson úr SH og sundkónginn Jakob
Jóhann Sveinsson úr Ægi sem urðu
Íslandsmeistarar í þremur ein-
staklingsgreinum hvor, líkt og Ragn-
heiður, Eygló og Inga Elín. sindr-
is@mbl.is
aregn
g 19 aldursflokkamet
unnu bestu afrekin
móttökur hjá Önnu Úrsulu Guðmundsdóttur.
Morgunblaðiði/Kristinn